Skinfaxi - 01.02.1995, Page 14
3. verðlaun í eldri flokki
Ferðumst um
eigið land
Útlendingar hafa löngum hrífist af hestaferðwn.
Á íslandi eru mörg fjöll og alltaf er
verið að búa betur að fjallaferðum. Utlend-
ingar jafnt sem Islendingar fara mikið í
þessar ferðir. Þar má nefna jeppaferðir og
snjósleðaferðir. 4x4 er með ferðir upp á
hálendið á jeppum og snjósleðum. Mikið
er farið í snjósleðaferðir og er fólk mjög
ánægt með ferðimar. Þar er fegurðin mikil,
snævi þakið land og jöklar. 4x4 stendur
fyrir sérstökum jeppadegi. Fjöldi fólks tek-
ur þátt í honum. Famar em leiðir upp á há-
lendið og endað í skála þar sem fólk borðar
veitingar.
Hestaferðir em mjög vinsælar og sækja
útlendingar mikið í þær. Þær gefa einstakt
tækifæri til að skoða landið og náttúmna
og þannig upplifir fólk miklu betur fegurð-
ina. Fólk getur valið hvort það fer í lengri
eða styttri ferðir, allt frá nokkrum klukku-
tímum upp í nokkra daga. Nokkurra daga
hestaferð um hálendið er að margra áliti
mesta ævintýri, því félagsskapurinn við
ferðafélagana og hestana hefur mikið að
segja. Þá nýtur fólk þess best að fara um
hálendið og anda að sér hreinu lofti. íshest-
ar em mikið með hestaferðir og reynir fólk
að nýta sér það eftir bestu getu. Einnig
bjóða ýmis bændabýli um land allt, sem
em með ferðaþjónustu, upp á hestaferðir.
ísland er kjörið land til vetraríþrótta,
einkum til skíðaíþrótta. Á mörgum stöðum
á landinu er búið að koma upp góðri að-
stöðu til skíðaiðkunar. Helstu skíðasvæðin
sem fólk sækir em Bláfjöll, Kerlingarfjöll
og Hlíðarfjall á Akureyri, en þessi svæði
em umlukin háum og hrikalegum fjöllum.
Einnig em fjöll á Vestfjörðum og em þau
heldur brattari því þar er landið svo stór-
skorið. Ekki fara allir upp á fjöll til að fara
á skíði, í hestaferðir og jeppaferðir. Margir
fara líka fótgangandi og leggja á sig erfiðar
ferðir til að ná efsta tindinum. Víða um
landið eru mjög góðar gönguleiðir. Til
dæmis hefur það aukist að fólk fari gang-
andi um Homstrandir.
Fólk hrífst líka af fegurð jöklanna, en
jöklaferðir em bæði erfiðar og hættulegar.
Því ætti enginn að fara í jöklaferð nema að
vera vel útbúinn. Island býður upp á marga
aðra möguleika í ferðalögum og til útivist-
ar.
Á sumrin koma margir útlendingar í
lax- og silungsveiði, þó aðallega í laxveiði.
Og á vetuma er hægt að stunda dorgveiði á
vötnum landsins. Einnig eru haldnar
keppnir í dorgveiði.
Eyjarnar í kringum Island eru margar,
bæði stórar og smáar. Mjög vinsælt er að
skoða eyjarnar á Breiðafirðinum og við
Vestmannaeyjar. Þá fara margir í bátsferðir
til að stunda sjóstangaveiði, og er farið frá
nokkrum sjávarþorpum. Nýlega var farið
að bjóða upp á siglingar á ám. Farið er nið-
ur ámar á gúmbátum og geta ferðimar ver-
ið mjög spennandi, sérstaklega ef ámar eru
straumharðar. En þær geta líka verið
hættulegar ef ekki er farið með vönu fólki.
ísland er mjög fallegt land og gaman að
ferðast um það, sérstaklega fyrir þá sem
hafa gaman af náttúruskoðun og útiveru.
Og hreina loftið hefur líka sín áhrif. Þess
vegna hefur það aukist að fólk stundi úti-
vist.
Vegna hreina loftsins og náttúrufegurð-
arinnar ætti allt fólk að auka útivist og
ferðalög um ísland.
Helga S. Björnsdóttir,
Laugabakkaskóla
14
Skinfaxi