Skinfaxi - 01.02.1995, Síða 19
kannski of sterkir, ekki nógu liðugir, geta
ekki komið fram af því þeir fá svo mikinn
sviðsskrekk og svo framvegis.
- Þú ert nú brautryðjandi, ertu ánægður
með árangurinn?
„Það er alltaf erfitt að vera brautryðj-
< andi. Vissulega er ég ánægður með það
hvað greininni hefur skilað vel áfram sem
sést kannski best á því að ég var kjörinn
Iþróttamaður ársins. Gallinn er aftur á móti
sá að hér á landi má enginn einn ná mjög
langt á einhverju sviði. Um leið og einhver
nær langt er reynt að draga hann niður.
Þetta er gallinn við okkur Islendinga. Þetta
er ég alltaf að reyna að kenna krökkunum -
að maður má aldrei draga niður árangur
annarra heldur stuðla að því að öðrum
gangi vel og meta árangurinn síðan.“
- Er starf þitt ekki bæði þakklátt og van-
þakklátt þar sem þú ákveðin fyrirmynd?
„Það er alltaf erfitt að vera til fyrir-
myndar, einkum ef krakkar setja þig á sér-
stakan stall. Eg er ekki þannig því að ég er
bara nákvæmlega eins og krakkarnir að
öllu leyti, ekkert öðruvísi. Eini munurinn
er kannski sá að ég ákvað að leggja á mig
eins mikið og ég framast gat. Ég sagði það
einu sinni í sjónvarpinu að það sé ekkert
merkilegt við það að vera íþróttamaður
sem nær langt. Munurinn á honum og öðr-
► um er einungis sá að hann hefur lagt meira
á sig. Slíkt geta allir - þetta er bara spum-
ingin um hvað fólk er reiðubúið til að
fóma miklu.“
Óréttlæti er óbærilegt
- Krefst góður árangur ekki mikils
skipulags og sjálfsaga?
„Jú, maður má alls ekki láta hlutina fara
í skapið á sér þó manni finnist þeir stund-
um ganga hægt. í þessari grein get ég ekki
mætt á neina æfingu eins og tíðkast í öðr-
um greinum. Ég mæti bara inn í minn sal
og er þar svo einn. Slíkt krefst meira af
manni til þess að maður geti keyrt sjálfan
sig áfram heldur en í hópíþróttum þar sem
kannski fimmtán strákar em að hvetja þig
til dáða.“
- Skapgerðin hlýtur að spila þarna
stóran þátt. Hvemig ert þú skapi farinn?
„Ég held ég sé mjög jafnlyndur og verð
sjaldan vondur. Ég get reyndar misst stjórn
á skapi mínu ef mér finnst sannleikurinn
fótum troðinn. Mér finnst óréttlæti óbæri-
legt. Það versta sem ég veit þegar einhver
krakki segir til dæmis við annan: „Svaka-
lega ertu feitur," eða uppnefnir einhvern
vegna þess að hann er með skalla og þar
fram eftir götunum. Ef menn gætu ein-
hverju ráðið um útlit sitt þá hefðu þeir
sköllóttu hár. Mér finnst miklu nær að gera
grín að þeim sem geta tekið gríni - til
dæmis með því að segja við einhvem sem
er rosalega góður í íþróttum að hann sé
hræðilega lélegur og svo framvegis. Hitt
ber bara vott um skort á persónuleika."
- Ert þú hjátrúarfullur með tilliti til
keppni?
„Nei, ekki get ég sagt það. Reyndar
keppi ég alltaf í glænýjum sokkum.
Kannski er þessi hjátrú hjá íþróttafólki til
komin vegna þess að þegar þú ferð að
keppa þá vilt þú hafa hlutina eins, þú vilt
alltaf hafa sama ferlið þar sem líkaminn
bregst illa við öllu óöryggi. Maður vill
hafa allt á hreinu þegar til keppninnar
kemur. Ég ráðlegg fólki sem er að fara í
keppni að leggjast á bakið, loka augunum,
einbeita sér í tíu mínútur, slaka á og takast
á við þetta. Velgengni í keppni byggist á
því að vera vel undirbúinn bæði líkamlega
og andlega.
Ef ég væri íþróttamaður og ætlaði að
hugsa fram í tímann þá mundi ég taka fyrir
að minnsta kosti heilt ár. Ég myndi borða
rétt fæði alveg fram að keppninni og undir-
búa mig með þetta tiltekna mót í huga sem
er svo kannski ekki fyrr en eftir heilt ár.
Þetta er eins og með heimalærdóminn sem
maður þarf að stunda reglulega og hann
tekur þá skamman tíma í senn. Eftir ákveð-
inn tíma er svo komið að prófi og þá ertu
vel undirbúinn. Maður þarf að gera áætlun
langt fram í tímann ef góður árangur á að
nást.“
Kennslan fyrirferðarmikil
- Hvað er framundan hjá þér?
„Kennslan erlendist verður fyrirferðar-
mikil á næstunni. Síðan er ég að vinna í
stöðinni minni. Það er jafnframt fyrirhugað
að ég fari til Finnlands og kynni mér það
sem þar er verið að gera í tengslum við
þolfimi fyrir krakka - hipphopp þolfimi og
eitthvað fleira. Finnar eru mjög framarlega
í hvers kyns tómstundaframboði fyrir böm
og unglinga. Ég ætla líka að kíkja á heims-
sýningu í Berlín þar sem mér hefur verið
boðið að koma sem sýningargestur en þar
koma fram fulltrúar frá öllum mögulegum
íþróttagreinum í heiminum. I desember
verður heimsmeistaramót í Frakklandi en
ég veit ekki hvort ég tek þátt í því, það
kemur í ljós.“
A ferð í London ásamt eiginkonu sinni, Ragnheiði Melsteð.
Skinfaxi
19