Skinfaxi - 01.02.1995, Síða 26
íslenskur líffræðingur vinnur að merkilegri rannsókn:
Hæfileg þjálfun eflir
ónæmiskerfið
-líkaminn verst betur t.d. krabbameinsfrumum og alnæmi
Fyrstu niðurstöður merkilegrar rann-
sóknar, sem nú er unnið að í Svíþjóð benda
til þess að hæfileg líkamsþjálfun efli
ónæmiskerfi líkamans, þannig að hann eigi
mun betra með að verjast ýmsum lífs-
hættulegum veirusýkingum. Islenskur líf-
fræðingur, Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir, er í
hópi fólks sem vinnur að umræddri rann-
sókn. Hún stundar nú doktorsnám við líf-
eðlisfræðistofnun háskólans í Gautaborg í
Svíþjóð, þar sem hún hefur numið sl. fjög-
ur ár. Skinfaxi sló á þráðinn til hennar og
grennslaðist nánar fyrir um viðfangsefni
hennar ytra.
„Eg stefni að því að verja doktorsrit-
gerð mína næsta haust,“ sagði Ingibjörg
Hrönn. „Af þessum sökum fara allar rann-
sóknir mínar fram við Gautaborgarháskóla
þar sem ég starfa undir handleiðslu Peter
Thorén prófessors.
Þegar ég hélt utan til framhaldsnáms
var ætlun mín að vinna með þetta svokall-
aða „hlauparottumodel“. Það byggir á því
að dýr eru þjálfuð í hlaupum - án þess þó
að þau séu þvinguð til þess. Þau hlaupa
þegar þau vilja. Eg hef unnið með hópi
fólks sem hefur rannsakað losun svokall-
aðra endorfína, þ.e. morfína sem losna úr
læðingi í heilanum við hreyfingu. Þau hafa
m.a. áhrif á blóðþrýsting, sársaukaþrösk-
uld, hegðun dýranna og ýmislegt annað.
Upphaflega ætlaði ég sem sé að takmarka
mig við þessa þætti en síðan kom í Ijós að
ónæmiskerfið hefur þarna einhverju hlut-
verki að gegna.
Við fórum þá að kanna þann þáttinn
sérstaklega og fengum þá þær niðurstöður
að við þjálfun eykst virkni ónæmiskerfis-
ins og þá sérstaklega virkni hinna svoköll-
uðu náttúrulegu drápsfruma (NK fruma, e.
Natural Killing Cells). Þessar frumur eru
fyrsta svar líkamans gegn mörgum veiru-
sýkingum, þar á meðal alnæmi, og krabba-
meinsmyndun. Við fundum það út að ótrú-
lega mikill munur er á virkni MK-frum-
anna í þeim dýrum sem gangast undir
hlaupaþjálfunina og hinum sem ekki fá að
hlaupa. í ljós hefur komið að helmingi
fleiri krabbameinsfrumur verða eftir í
Hœfileg líkamsþjálfum styrkir ónœmiskerfi líkamans.
Ingibjörg H. Jónsdóttir líffrœðingur.
lungum þeirra dýra sem ekki hlaupa, að til-
teknum tíma liðnum."
Trúðu tæpast
niðurstöðunum
„ Við trúðum niðurstöðum okkar tæp-
ast fyrst og höfum því margítrekað tilraun-
imar og fengið sömu niðurstöðu. Nú emm
við að reyna að komast að því hvað það er
sem hleypir þessari virkni NK-fmmanna af
stað þegar við hlaupum - til dæmis tauga-
kerfið eða einhver hormón. Umrædd end-
orfín em meðal þeirra þátta, sem koma til
greina, er geta haft áhrif á fmmur ónæmis-
kerfisins. Samspil taugakerfis og ónæmis-
kerfis er áhugaverður þáttur í lífeðlisfræði
þjálfunar og spumingin snýst um það hvað
gerist við hreyfingu."
Ingibjörg Hrönn undirstrikar, að mikla
varkárni þurfi að sýna þegar niðurstöður
dýrarannsókna séu yfirfærðar á menn.
„En það hefur verið sýnt fram á það í
mönnum að hæfileg þjálfun hefur jákvæð
áhrif á ónæmiskerfið. Það er hinsvegar
erfitt að að athuga áhrif þjálfunar á vörn
gegn krabbameinsfrumum, nema með
dýrarannsóknum. Eg held að maður geti
sagt það með nokkurri vissu að eitthvað
gerist við þjálfunina sem virkar hvetjandi á
NK-frumurnar - en það er mjög erfitt að
heimfæra reynsluna af dýmm yfir á menn.
Eg hef einnig verið að vinna með
íþróttafólki að rannsóknum á ofþjálfun og
hef komist að því að þegar þjálfunin er
komin yfir ákveðin mörk gæti það leitt til
26
Skinfaxi