Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1995, Qupperneq 29

Skinfaxi - 01.02.1995, Qupperneq 29
Starf til styrktar íþróttum í landinu -rætt við Árna Þór Árnason formann stjórnar íslenskra getrauna Þátttaka í getraunum hefur gert ýmsum ungmenna- og íþróttafélögum í landinu kleift að byggja upp enn öflugra íþrótta- starf en ella hefði orðið, svo sem fram kom í síðasta tölublaði Skinfaxa. Það þótti því tilvalið að spjalla við Árna Þór Ámason, formann stjómar getrauna og spyrjast fyrir um starfsemina og nýjungar sem kynnu að vera á döfinni. ,,Nú hafa getraunirnar starfað í sam- fleytt 27 ár og á þeim tíma hafa þær skilað íþróttahreyfingunni í landinu um 1000 milljónum króna í hagnað," sagði Árni Þór. „Menn velta svo fyrir sér hvert allir þessir peningar hafi farið. Um 76 % em fé- lagaáheit, 12% renna til héraðssamband- anna, 6% til KSÍ og 6% til aðildarfélag- anna. Eignarhluturinn er þannig að ISI á 70% í fyrirtækinu, UMFÍ 20% og íþrótta- sjóður ríkisins 10%. Ágóði Iþróttasjóðsins hefur mnnið til uppbyggingar íþróttamið- stöðvarinnar á Laugarvatni. Hver einasta króna, sem inn kemur, fer í rekstur og inn í íþróttahreyfinguna. Okkur hefur tekist að lækka rekstrarkostnaðinn úr 20% niður í 11%. Einn þáttur í hagræðing- unni er fólgin í því að við erum nýbúnir að gera betri samninga við þá aðila sem veita okkur þjónustu, Gteck og Getspá. Það er amerískt, alþjóðlegt fyrirtæki sem á þessa getraunaleiki sem við emm að vinna eftir og það tekur sín gjöld í ákveðnum prósent- um.“ Þróun getrauna - Hvemig hefur starfsemin þróast? „Getraunirnar byrjuðu með miklum krafti eins og ýmsar nýjungar sem Islend- ingar tileinka sér. Þá vom allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að vinna fyrir fé- lagið sitt. En svo dvínaði þessi áhugi smátt og smátt og um tíma virtist starfseminnar ekki bíða neitt annað en að lognast út af. Það var svo ekki fyrr en við fórum út í al- þjóðlegt samstarfs sem hjólin fóm að snú- ast á nýjan leik. Þetta varð meira spenn- andi og meira sem hékk á spýtunni. í nóv- Arni Þór Arnason. ember 1991 hófum við samstarf við get- raunirnar í Svíþjóð, en það var í fyrsta skipti sem tvær þjóðir, með tvo ólíka gjald- miðla höfðu með sér samstarf og vom með alla vinningsflokka sameiginlega. Síðan hefur starfsemin beinst æ meir inn á þessa braut og við tekið þátt í samstarfi við fleiri þjóðir eins og til dæmis Eurotips, sem nær til Austurríkis, Svíþjóðar og Danmerkur. Nú emm við svo að fara inn í samstarf um Euro-toto, en það em Evrópuleikirnir sem leiknir em í sumar. Toto er nafnið sem not- að er yfir getraunir í Þýskalandi og á Italíu þar sem getraunir eru mjög sterkar og er eiginlega orðið alþjóðaorð. Við höfum líka verið að reyna að hressa upp á ímynd ís- lensku getraunanna, okkur hefur vantað hressara vömmerki, sem er nú orðið 1x2 á svörtum eða rauðum gmnni. I október munum við koma með nýjan leik sem ætlað er að höfða til yngra fólks. Hann mun heita „Lengjan" og verður kynntur þegar nær dregur. Síðan við fómm að taka þátt í þessu al- þjóðlega samstarfi höfum við aflað þjóðar- búinu um 120 milljóna í gjaldeyristekjur. - Til marks um það er stóri vinningurinn, 15,3 milljónir - en Svíamir þurftu að borga okkur 14,6 milljónir af þeirri upphæð. Þetta er því útflutningsstarfsemi." Vinsælir hópleikir „Nýlega var farið að bjóða upp á hóp- leikina sem hafa orðið mjög vinsælir. Við Ýmis ungmennafélög hafa notað getraunahagnað til að byggja upp öflugt íþróttalíf eink- um meðal yngri flokkanna. Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.