Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1997, Page 58

Skinfaxi - 01.02.1997, Page 58
Gættu líka að öxyggi þeirra í fjármálum Við sendum börnin okkar ekki úlpulaus út í kuldann, hjálmlaus á hjólið og kútlaus í laugina. En hvað með fyrirhyggju í fjármálum? Sá þáttur er lítið kenndur í skólum og því er það á ábyrgð okkar foreldranna að leggja grunninn að fjárhagslegu öryggi barna okkar í framtíðinni. Veröldin tekur líka stöðugum breytingum og umhverfið gerir sífellt meiri kröfur til þess að við ábyrgjumst sjálf fjárhagslega framtíð okkar. Áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs er tilvalin leið fyrir okkur foreldra að leggja grunninn að fjárhagslegu öryggi barna okkar í framtíðinni og um leið, að gera þau meðvituð um mikilvægi sparnaðar og fjárhagslegrar ábyrgðar. Eitt símtal getur skipt sköpum og reglulegur sparnaður barna þinna er tryggður. Það er líka notalegt að hugsa til þess að einn góðan veðurdag muni börnin njóta sparnaðarins. Þau verða okkur þakklát um aldur og ævi fyrir að hafa pantað áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs þegar þau voru lítil. Áskriftarsíminn er 562 6040. Áskrift er lífstíll

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.