Skinfaxi - 01.12.1998, Blaðsíða 34
Þórir Jónsson formaður UMFÍ vill...
banna áffengi á...
Áfengi var selt á stórum íþróttaviðburðum í sumar og ekki eru allir sáttir við
þá ákvörðun íþróttafélaganna að leyfa þessa sölu. Jóhann Ingi Árnason
innti formann UMFÍ álits á þessu máli...
Skiptar skoðanir eru á því
hvort leyfa eigi
áfengissölu á stórum
íþróttaviðburðum hér á
landi. Margir voru
óhressir með það að
bjór hafi verið seldur
á knattspyrnuleikjum í sumar og
einn þeirra er Þórir Jónsson
formaður Ungmennafélags íslands.
Hann hefur ákveðnar skoðanir á
þessum málum og segir að íþróttir
og eiturefni fari aldrei saman. En
finnst honum að það eigi alfarið að
banna sölu áfengis á íþróttaviðburðum
hér á landi?
„Já.“
-Ekkert meira um það að segja?
„Mér finnst alveg óþarfi að rökstyðja það
neitt frekar."
- Hvað finnst þér um þau atvik sem
komu upp á knattspyrnuleikjum í sumar
þegar bjór var til dæmis til sölu á meðan
á leik KR og ÍBV stóð?
„Mér finnst það mjög miður og ekki vera
af hinu góðu. Mér finnst áfengi og íþróttir
aldrei eiga samleið og menn eigi að skilja
þarna á milli.“
- En finnst þér í lagi að íþróttamenn
fagni sigrum með kampavíni og
vindlum?
„Mér finnst það líka afar óviðeigandi.
Það er alla vega ekki við hæfi að gera það
úti á velli strax að leik loknum. Ég held að
menn geti nú fagnað þó að þeir séu ekki
með kampavín, það eru margir aðrir góðir
drykkir til á markaðnum."
- Til dæmis kók og mjólk eins og
reyndar hefur verið notað í
bikarkeppninni í knattspyrnu?
„Já, já, til dæmis. Ég held líka að menn
ættu að vera í nógu mikilli sigurvímu
eftir stóra sigra og alveg óþarft að
bæta á hana.“
- En hver er skoðun þín á
áfengisauglýsingum í fjölmiðl-
um?
„Ég er mótfallinn áfengis-
auglýsingum. Fyrst og fremst er ég
mótfallinn þeim þar sem þær fara
alltaf að höfða til unglinganna. Maður er
farinn að sjá ýmislegt sem á að heilla
unglinga til að kaupa bjór og annað áfengi
og þetta getur haft þau áhrif á einhverja
unglinga að þeir haldi að nauðsynlegt sé
að drekka til að draga fram lífið. Ég er
alveg á móti þessu.“
Mér finnst áfengi og íþróttir
aldrei eiga samleið