Skinfaxi - 01.06.1999, Side 2
ritstjórinn
efni
skinfaxi
Komið til að vera
Fjórða árið i röð stendur Ungmennafélag íslands fyrir útgáfu
á sérstöku blaði tileinkuðu forvarnarstarfi. Blaðinu hefur
ávallt verið dreyft ókeypis og svo er einnig í ár. Uppsetning
og efnisval forvarnarblaðanna hefur verið mjög lík frá upphafi
og talað hefur verið við marga fræga einstaklinga úr
þjóðfélaginu. Emilíana Torrini, Páll Óskar og lulian
Duranona voru til dæmis í fyrsta blaðinu sem kom út árið
1996. Árið eftir voru meðal annars viðtöl við Elmu Lísu,
Þorgrím Þráinsson, Loga Bergmann Eiðsson og Fjölni
Þorgeirsson. í fyrra var spjallað við Flermann Gunnarsson,
Biyndísi Elólm og Völu Flosadóttur. í ár bætast nýir
viðmælendur í þennan hóp. Selma Björnsdóttir, Hreimur í
Landi og sonum, Haukur Ingi Guðnason, lóhann B.
Guðmundsson, Þórður Guðjónsson og Þórarinn Tyrfingsson
eru meðal þeirra sem tala um sína reynslu af vímuefnum þetta
árið. Allt þetta fólk hefur að sjálfsögðu haft sínar skoðanir á
forvarnarmálum en allir eru þó sammála um að áfengi, eiturlyf
og tóbak séu slæm efni og nánast alltaf miklir skaðvaldar,
bæði á sál og líkama. Við hjá Ungmennafélagi íslands viljum
koma fram þakklæti til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem styrkt
hafa þessar útgáfur í gegnum árin og það er von okkar að hið
svokallaða forvarnarblað Skinfaxa sé komið til að vera.
lóhann Ingi Árnason
Ritstjóri:
Jóhann Ingi Árnason
568-2929
Auglýsingar:
Edda Sigurðardóttir
Markaðsrmenn
568-2929
Ljósmyndir:
Sigurjón Ragnar
699-1181
Blaðamaður:
Valdimar Kristófersson
697-4020
Ritstjórn:
Sigurbjörn Gunnarsson
Anna R. Möller
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Vilmar Pétursson
Framkvæmdastjóri:
Sæmundur Runólfsson
Ábyrgðarmaður:
Þórir Jónsson
Prentun:
Oddi
Pökkun:
Vinnustofan Ás
Dreifing:
IB-Blaðadreifing
Skrifstofa Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFI
Fellsmúla 26
108 Reykjavík
sími: 568-2929
fax: 568-2935
netfang: umfi@umfi.is
heimasíða: umfi.is
Velkomin í íþróttamiðstöðina
í Borgarnesi
Sérstök tilboð fyrir hópa
sem villja koma í æfingabúðir
íþrottir gegn vímu.