Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 31
þórarinn Þórarinn Tyrfingsson hefur starfað sem yfirlæknir á Vogi frá árinu 1979 eða í 20 ár. Hann hefur því kynnst ýmsu í sínu starfi og honum líst ekki á komandi ár. Þórarinn telur að vímuefnaneysla eigi eftir að aukast á næstu árum en þótt ástandið sé ekki gott ætlar hann ekki að hætta sínni baráttu við vímuefnadrauginn. Hverjar eru jákvæðu og neikvæðu hliðarnar á starfi þínu? ,,|ákvæðu hliðarnar eru þær að hér erum við að fást við lækningar á ungu fólki oft og tíðum og ef þær takast á það fólk fyrir sér langa og afkastamikla ævi. Það neikvæða við þetta starf er að menn eru ekki sjálfum sér samkvæmir í öllu þessu, tala um umhyggjuna fyrir þeim sem er í vímuefnavanda." Er umhyggjan eins mikil og menn láta af? ,,Nei, það er nefnilega það dökka að menn vilja ekkert láta á móti sér og eru síðan alveg undrandi á því hvað þetta gengur lítið. Það hvarflar ekki að ráðamönnum eða nokkrum sem eru að taka ákvarðanir í þessum málum að leita sér ráðgjafar hjá fólki sem veit eitthvað um þetta. Það hefur aldrei komið til greina hjá þeim." Eruð þið nógu vel styrkt fjárhagslega? ,,Það er alltaf spurning hvað menn vilja setja á oddinn í þessum málum. Ég hef alltaf haldið því fram að það væri þjóðhagslega hagkvæmt og mundi draga úr útgjöldum ríkisins á öðruni sviðum að setja miklu meiri peninga í forvarnir áfengis- og vímuefnamála. Það mundi spara strax mikla peninga í heilbrigðiskerfinu sjálfu, jyrir utan annað eins og til dæmis löggæslu." En eru menn á eitt sáttir um hver sé besta forvörnin? ,,|á, ég held að menn séu sammála um hver sé besta forvörnin ef menn á annað borð hafa eitthvert vit á þessum málum. Forvarnir þurfa að taka á öllum þáttum, bæði þurfa þær að draga úr eftir- spurn og minnka framboð á vímuefnum. Það er tilgangslaust að vinna að forvörnum nema unnið sé að báðum þessum þáttum. Og það sem meira er að það þurfa öll vímuefni að vera inni í þessum pakka, allt frá tóbakiyfir í heróín. Það eina sem er óeining um er þegar skriffinnarnir og stjórnmála- mennirnir sjálfir fara að búa til óeiningu á meðal fólksins með því að vera stilla mönnum upp við vegg og segja: „Ef við setjum pening í þetta þá verðum við að sleppa þessu o.s.frv."" Hvað koma margir tilykkar á hverju ári? ,,Við höfum fengið 700 ný tilfelli á undanförnum árum, s.s. 700 nýir alkóhólistar á hverju ári. Svo er þetta nú krónískt vandamál, sérstaklega hjá unga fólkinu, og það þarf því að koma aftur og aftur. Það tekur oft margar meðferðir að koniast á réttan kjöl. Þeir sem eru mjög veikir og þurfa oft að koma eru kannski um 500-600 manns á ári.” Hvernig metið þið þá einstaklinga sem konia til ykkar, þ.e.a.s. hvort þeir þurfa í raun á aðstoð að halda eða ekki? ,,Við þurfum ekkert að meta það. Einstaklingarnir sem koma vita þetta sjálfir. Það er ekki svo flókið að vita það hvort menn eru að drepa sig á vímu- efnum eða ekki. Það þarf enga mannvitsbrekku til að sjá það. Hingað kernur enginn að ástæðulausu. Ég hef a.m.k. ekki orðið var við það í þau 20 ár sem ég hef verið hérna.” Hvað getið þið vistað marga í einu? ,,í öllum okkar stofnunum gista hjá okkur 120 manns á hverri nóttu." Hvað þarf til svo hægt sé að hýsa alla sem leita sér aðstoðar? ,,Jaa, þetta snýst kannski ekki eingöngu um húsaleysi því það vantar starfsfólk til að vinna við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.