Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 71

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 71
SON ERU AÐ GERA ÞAÐ GOTT HJÁ WALSALL í ENGLANDI „Ég held að það búist enginn við því að við munum halda okkur uppi í vetur. Við erum nánast með sama mannskap og í fyrra og þá var ekki búist við miklu af okkur í 2. deildinni. Mér finnst við samt hafa verið að spila vel og ég er sannfærður um það að ef við höldum áfram á sömu braut munum við ekki falla,“ segir Bjarnólfur aðspurður um möguleika Walsall í deildinni í vetur. Það er ekki mikil stórklúbbastemmning í kringum þetta félag. Áhorfendur eru í kringum 8000 þúsund á hverjum leik en stúkan tekur þó eitthvað í kringum 12 þúsund. Flestir sem búa í Birmingham halda með stóru félögunum eins og Aston Villa eða Birmingham en Walsali á sér þó trygga stuðningsmenn. „Auðvitað gerum við okkur alveg grein fyrir því að við erum litli klúbburinn hérna í Birmingham. Það er mikill rígur hérna á milli félagana og það er mjög skemmtilegt að við séum nú í sömu deild og Wolves og Birmingham. Það verður mikil stemmning á nágrannaslögum við þessi lið og ég held að ef við vinnum bara þá leiki yrðu stuðningsmenn okkar nokkuð sáttir," sagði Bjarnólfur. Þrátt fyrir að Walsall sé ekki stór klúbbur er liðið ekki stjörnulaust. Mark Robins, fyrrum leikmaður Manchester United, leikur í fremstu víglínu hjá Walsall en hann er að reyna að byggja upp ferilinn sinn aftur eftir nokkur erfið ár. „Ég og Robins erum með sama timboðsmann og hann talar stundum um að það sé hálfleiðinlegt hvernig komið sé fyrir Robins. Hann var auðvitað á sínum tíma í aðalliðinu hjá einu stærsta félagsliði Evrópu en eftir að hann fór þaðan hefur allt verið á niðurleið. Hann hefur samt komið sterkur inn í þetta hjá okkur og það er vonandi að hann nái að rífa sig upp aftur,“ segir Siggi sem einmitt þarf að keppa um stöðu við Mark Robins. Annar leikmaður Walsall er vel þekktur en það er kantmaðurinn Tony Daley sem lék á sínum tíma með nágrannaliðinu Aston Villa. Daley kemur með mikla reynslu og á eflaust eftir að styrkja liðið mikið. BÍÐA EFTIR NÝJUM SAMNINGI Bæði Bjarnólfur og Siggi eiga bara eitt ár eftir af samningum sínum við Walsall en þeir eru báðir bjartsýnir á að vera um kyrrt hjá félaginu. „Ég held að þjálfarinn ætli að setjast niður með umboðsmanninum mínum á næstu vikum. Ég sé þá hvað er í boði og hvort ég fram- lengi samning minn við Walsall. Ég held að það sé ekkert slæmt fyrir mig hversu lengi hefur verið dregið að semja við okkur - ég lít líka á það þannig að ég geti þá farið frjálsri sölu ef eitthvað annað betra berst," segir Bjarnólfur sem einmitt kom á frjálsri sölu frá Hibernian til Walsall. Bjarnólfur Siggi „supersub" byrjar yfirleitt á bekknum hjá Walsall en ef illa gengur að skora er hann sendur inn á er þessa dagana að ganga frá húsakaupum í nágrannabænum Oxford svo líklegt verður að teljast að hann verði kyrr hjá Walsall. Siggi er hins vegar rólegri og er enn þá í íbúð og með bíl sem félagið lét hann hafa. „Ég vil vera öruggur um að vera hérna áfram áður en ég fer að fjárfesta í einhverju hér. Ég er samt nokkuð bjartsýnn á að þeir bjóði mér nýjan samning en annars mun ég leita á önnur mið,“ sagði Siggi að lokum og kvaddi blaðamann Sportlífs, enda erfiður deildarleikur á móti Crewe að hefjast. Crewe sigraði leikinn 1 -4 og var það fyrsti ósigur Walsall í 1. deildinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.