Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 20
jóhann
lóhann, býrðu einn úti í Watford eða bj/r Biyndís
hjá þér?
,,Ég bý einn og á ekki von á henni fyrr en á næsta
ári, Hún er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og á eitt
ár í eftir í stúdentinn. Hún ætlar því að klára
skólann áður en hún flytur út til mín."
Nú ert þú búinn að vera í rúmt ár hjá Watford.
Hvernig kanntu við atvinnumennskuna?
,,Mjög vel og ég sé alls ekki eftir því að hafa lagt
mikið á mig til að komast hingað."
Er þetta sama líf og þú hafðir látið þig dreyma um
þegar þú varstyngri?
„Nei, ég get ekki sagt það að öllu leyti. Þetta er
mun erfiðara en maður bjóst við og sérstaklega
andlega. Það tekur mikið á andlega þegar maður
kemst ekki liðið en þrátt fyrir það er þetta mjög
gaman, enda það sem maður hefur alltaf stefnt á.”
Hvernig er staðan hjá þér núna?
„Hún er mjög góð og alltaf að batna. Ég hef verið
svona smátt og smátt að komast inn í þetta-og í
síðustu tveimur leikjum hef ég verið að leika með.
Þannig að það eru vonandi bjartir tímar fram
undan."
Hvað segir Graham Taylor knattspyrnustjóri? Ætlar
hann að fara að nota þig meira?
„Hann hefur nú ekkert rætt það, enda ræðir hann
þá hluti ekki við leikmenn. Hann hefur ekki ástæðu
til þess, enda er hann maðurinn með valdið. Ég
verð bara að leggja mig fram á æfingum og standa
mig þegar ég fæ tækifæri með liðinu og vonandi
fleytir það mér áfram. Þetta hefur skilað sér undan-
farið og ég hef verið að leika sem framherji undan-
farið þótt ég sé fyrst og fremst hægri kantmaður."
Þú ert núbýinn að gera fjögurra ára samning við
félagið. Það hlýtur að segja eitthvað?
„)á, já, ég tel það vera mikla viðurkenningu á því
sem ég hef verið að gera hérna. Þannig að menn
hafa greinilega trú á mér sem er af hinu góða."
Ykkur var spáð fallsæti ýrir mót, heldurðu að þetta
verði erfiður vetur fyrir Watford?
,,|á, hann verður það. En við höfum farið ágætlega
af stað og eins og staðan er í dag þá tökum við bara
einn leik fyrir í einu og gefum allt f hann. Það
verður síðan bara að koma í Ijós hvar við stöndum
í lok tímabilsins en við ætlum í það minnsta að
njóta þess að spiia í úrvalsdeildinni í vetur."
Ef við skiptum aðeins um gír þá reykir þú ekki.
Hvað finnst þér um reykingar?
um fólk sem reykir og það er ekkert Ijótara en
stelpa sem reykir. Mér finnst bara ekkert flott við
fólk sem reykir."
Hvað með áfengi?
„Það er kannski öðruvísi með áfengi, því fylgir ekki
sama lyktin og er í lagi í hófi."
Hvernig er þetta hjá ykkur í Watford? Eru
einhverjar agareglur sem leikmennirnir þurfa að
fara eftir varðandi diykkju?
„Nei, ég get ekki sagt það en það er ætlast til að
menn séu ekki að drekka tveimur dögum fyrir leik.
En það kemur þó á óvart hversu mikið er drukkið
hérna en menningin er reyndar allt öðruvísi en
heima og menn fá sér kannski oftar í glas en drekka
miklu minna í einu heldur en gengur og gerist
Það er mjög óhollt að reykja
og síðan er hræðileg
skítalykt af reykingum sem
fer mjög í taugarnar á mér
„í einu orði sagt þá hata ég reykingar. Ég er alfarið
á móti reykingum því í fyrsta lagi er mjög óhollt að
reykja og síðan er hræðileg skítalykt af reykingum
sem fer mjög í taugarnar á mér. Mér líður illa innan
heima á íslandi. Leikmenn Watford fá sér þó ekki í
glas nema að það sé minnst vika í leik. Þetta er
náttúrlega atvinnan og menn verða að standa sig ef
þeir ætla að halda henni.”
Þegar Watford kom til íslands
að spila við KR þá var tekið
eftir því að leikmennirnir
máttu ekki fá sér í glas þótt |
það væri aðeins á
undirbúningstímabilinu.
Hvernig stóð á þessu?
„Ég eiginlega veit það ekki.
Reyndar var leikurinn við KR a
sunnudegi þannig að það var
ekki tími til að fá sér í glas.
En Taylor var reyndar frekar
strangur þegar við vorum
hérna og leikmenn áttu til
dæmis að vera farnir að sofa
klukkan ellefu á kvöldin. Og |
það er reyndar skiljanlegt þvi
við vorum að byrja a
undirbúningstímabilinu og sa
tími er eiginlega heilagur.
Það fer öll orkan í æfingarnar
og menn mega ekki við því að
vera að sletta úr klaufunum.'-'