Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 24
katrín rós Hvernig er að vera fegusta kona íslands? ,,Það er bara gaman og mikill heiður að hafa verið valin." Finnst þér eitthvað hafa breyst eftir að þú varst krýnd? ,,Nei, ekki beint. Ég fékk náttúrlega ákveðna reynslu og ég kynntist mörgu nýju í keppninni en ég held áfram að lifa mínu lífi eins og ég gerði áður. Það er kannski aðeins meira að gera hjá mér og maður er meira í fjölmiðlunum. Þannig að það hefur ekkert breyst svona persónulega hjá mér.” Þið voruð 23, stúlkurnar sem tóku þátt í íslandskeppninni, og hver annari fallegri. Þið Eg væri ekki á móti því að verð á tóbaki hækkaði - það hefði sjálfsagt áhrif á unglingana! stefnduð sjálfsagt allar á það að vinna. Var mikill rígur á milli keppenda? „Nei, ég varð ekki vör við það. Við vorum allar góðar vinkonur og studdum hver aðra í keppninni." ICRehband Hitahlífar mannjar íyfir 30 ndi gerðum fyrir g vöðva líkamans. tSTOÐ AlhliÖa stobtækjasmíöi Trönuhraun 8 ■ Hafnarf ■ Sími 565 2885 Söluaðilar; Lyfja • Frísport • Útilíf Hvert er hlutverk þitt sem fegurðardrottning íslands? ,,Það er fyrst og fremst að vera fulltrúi íslands hérna heima og í keppni úti í heimi. Ég fór t.d. í keppnina ungfrú Evrópa og síðan er möguleiki að ég taki þátt í annarri keppni en það á eftir að koma í Ijós. Síðan eru náttúrlega gerðar kröfur til mín að ég og komi vel fram á almannafæri.” Eru engin verkefni sem þú þarft að sinna hérna heima? ,,Nei, það er ekki mikið um það. Ég þurfti rejndar fljótlega eftir keppnina að búa til mína draumaíbúð á sýningu sem haldin var í Laugardalshöllinni. Það gæti síðan eitthvað dottið inn en í lok ársins þarf maður síðan að krýna arftaka sinn." Hefur þú mikinn áhuga á fyrirsætustörfum? ,,|á, já, ég hef áhuga á þeim en fyrirsætustarfið er ekkert sem ég stefni á í framtíðinni. Það getur verið gaman að vinna við þetta en þetta verður fyrst og fremst aukastarf hjá mér ef ég ætla mér að sinna þessu eitthvað. í dag er skólinn númer eitt, tvö og þrjú." Þú ert sjálfsagt fyrirmynd margra ungra stúlkna. Hvað finnst þér um það? ,,Ég hef bara gaman af því ef svo er. Það er náttúrlega mikil ábyrgð og maður verður að passa sig á að vera góð fyrirniynd.” Katrín, þú reykir ekki en hvað finnst þér um reykingar? ,,Mér finnst þær í einu orði sagt ógeðslegar. Reykingar eru náttúrlega fyrst og fremst heilsuspillandi og ekki bara fyrir þann sem reykir heldur líka fyrir þá sem eru í kringum reykinga- fólk. Þá er lyktin af þessu ekki til að hrópa húrra yfir og það fylgir mikill sóðaskapur reykingunum, þ.e.a.s. lyktin festist í öllu. Mér líður a.m.k. miklu betur þar sem ekki er reykt." Finnst þér að það eigi að banna reykingar yfirhöfuð eða á hver að geta valið hvað hann vill? ,,Eg tel það nú eðlilegra að fólk hafi frjálst val um hvað það gerir. En mér finnst reykingafólk aftur á móti ekki vera á réttri braut." Reykingar hafa verið að aukast hjá unglingum á undanförnum árum. Finnst þér þetta vera mikið áhyggjuefni? ,,|á, þetta er náttúrlega visst áhyggjuefni því re^kingar eru ekki hollar. Mér finnst að það ætti að fylgja því strangt eftir að unglingaryngri en 18 ára fái ekki að kaupa tóbak. Ég væri ekki á móti því að verð á tóbaki hækkaði - það hefði sjálfsagt áhrif á unglingana sem eiga ekki mikla peninga en það mundi sjálfsagt ekki breyta miklu fyrir fólk sem er orðið háð reykingunum. Verðið skiptir ekki eins miklu máli jyrir það.” Af hverju heldur þú að þetta stafi? ,,Ég gæti ímyndað mér að þetta sé hálfgert tfskufyrirbrigði hjá unglingunum. Þeim finnst þetta töff og eru jafnvel að reyna að ganga í augun á hinu kyninu." Hvað er hægt að gera til að sporna við þessu? „Ég held að það þurfi að auka forvarnirnar. Ég gleymi t.d. aldrei þegar ég var ung og bekkurinn minn fékk að sjá myndband um reykingar. Þá fengum við að sjá fólk sem reykti og lá inni á spítala ^ vegna reykinga. Og einnig fengum við að sjá svört lungu fólks sem hafði reykt mikið um ævina. Ég man að hver einasti nemandi gretti sig _yfir myndbandinu og sagðist aldrei ætla að reykja. Þær forvarnir sem sýna raunveruleikann eru mest sláandi og hafa mestu áhrifin."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.