Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 38
En við stefnum ekki svo langt. Við höfum reyndar farið til Færeyja og spilað þar. Heimurinn er autt blað fyrir okkur. Við stefnum fyrst og fremst á það núna að standa okkur vel hérna heima áður en við förum að huga að einhverju öðru." Það er mikið af efnilegum hljómsveitum hér á landi er einhver hljómsveit sem stenstykkur snúning? ,,|á, já, það er fullt af þeim, t.d. Skítamórall og Sóldögg. Þessi tvö bönd ásamt okkur eru heitustu böndin í dag. Svo eru Stuðmenn náttúrlega „að túra" og þeir eru hljómsveit allra landsmanna og menn bera mikla virðingu fyrir þeim ásamt Sálinni. Þetta eru þær hljómsveitir sem bjuggu þennan markað til á sínum tíma." Hvernig er það þegar svona margar hljómsveitir eru að koma upp í einu. Er mikill rígur á milli þeirra? ,,Við berjumst allir um sömu bitana og við erum því miklir óvinir á vígvellinum en þegar fyrir utan vinnuna erum við mjög góðir félagar." Ef við förum aðeins í aðra sálma er það rétt að þú hvorki reykir né drekkur? ,,|á, ég reyki ekki og bragða sjaldan áfengi. Við hljómsveitarmeðlimir höfum mjög ákveðnar og sterkar skoðanir á um diykkju á meðan við erum að spila. Þetta er vinnan okkar og við biýnum því sterkt á hver fyrir öðrum að það sé bannað að drekka á meðan við erum að spila. Það hafa margar hljómsveitir lent í leiðinlegum málum þegar þær hafa verið að fá sér í glas meðan þær eru að spila. Þannig að við erum harðir á þessu enda er vinnan oft ekki búin þegar við erum búnir að spila því þá á eftir að taka saman græjurnar og koma þeim út í bíl.” Þetta fylgdi oft hljómsveitum í gamla daga, að fá sér í glas á meðan splað var. Er þetta breytt í dag? ,,|á, þetta er liðin tíð og er ekki í tísku lengur. Ef þú hefur séð myndina Doors þá voru skilaboðin á þessum tíma að það væri „kúl" að reykja hass inni í stúdíói og vera alltaf fullur. Þetta var ákveðin ímynd þá sem fylgdi hljómsveitum á þessum tíma. Þetta er breytt núna og mönnum finnst þetta bara bjánalegt. Ef menn þykjast vera einhverjir atvinnumenn hljóta þeir að geta spilað án þess að vera undir áhrifum. Mér finnst þetta vera jafn mikið út í dag og þetta var inn á sínum tíma. Þannig að tíðarandinn hefur breyst.” Verður þú mikið var við áfengisdrykkju hjá áhorfendum þegar þið haldið tónleika? ,,|á, ég verð alltof mikið var við það og sérstaklega hjá ungu körkkunum. Það er alveg svakalegt og sjá þau oft á tíðum og fyrir mitt leiti finnst mér þessi mál hafa farið mikið niður á við í gegnum árin. Ég fer mikið um landið til að spila og tel mig því vita hvað ég er að tala um. En þetta er samt meira hérna í Reykjavík heldur en úti á landi." Ertu að tala um áfengi eða fíkniefni? ,,Ég er aðallega að tala um áfengi. Það virðast allir byrja að drekka og reykja 13 ára. Þetta er alveg ótrúlegt." Hvernig er að spila á böllum þar sem er mikið fyllerf? Er það leiðinlegra? ,,Nei, ég get ekki sagt það því það eru allir í stuði. En skemmtilegustu böllin sem ég spila á eru grunnskólaböllin. Þar er enginn að drekka og krakkarnir sjá þá að það er hægt að skemmta sér án áfengis. Við höfum fengið mjög gott umtal fyrir það að fá krakkana út á gólf og dansa og skemmta sér án þess að það þurfi áfengi. Ég hamra líka mikið á því upp á sviði við krakkana, þegar við erum að spila á grunnskólaböllum, hver þurfi eiginlega vín til að skemmta sér.” Þið fáið prik fyrir þetta? ,,Það er bara svo leiðinlegt að sjá 13 ára krakka vera út úr fullan, ælandi og húkandi úti í horni. En ég ætla samt ekki að banna neinunr að byrja drekka, það er undir hverjum og einum komið." Þið hafið verið að spila eitthvað á skemmtistöðum. Verður þú var við fíkniefnaneyslu? ,,Nei, ég hef aldrei orðið var við neyslu en þú sérð strax mun á hvort að fólk er að skemmta sér eða dópað. Það er mikill munur á þessu fólki. Ég held samt að það sé rosalega mikið um það hérna í bænum að fólk sé að „spítta sig" eins og það er kallað." Hvað með forvarnirnar sem eru í gangi. Gera þær ekkert gagn? ,,Ég veit það ekki. T.d. plakötin sem eru hengd upp vegna reykinga missa algjörlega marks. Það eru kannski 5 prósent af krökkunum sem finnst þetta ógeðslegt en afgangurinn hlær að þessu. Þegar ég var í barnaskóla kom rosalega skemmtilegur og ferskur karlmaður til okkar og talaði um óhollustu reykinga mjög opinskátt. Hann sagðist ekki ætla að banna okkur að reykja heldur aðeins segja okkur frá reykingunum. Þegar hann var búinn að því og allir stóðu á öndinni þá sýndi hann okkur alvörulunga úr fertugum manni sem hafði reykt allt sitt líf og það var alveg kolsvart. Þetta hafði mikil áhrif á mann. Það vantar einmitt meiri nálgun við krakkana í dag, plaköt gera ekki neitt og ekki útvarpsauglýsingar. Það þarf að fá rnenn í þetta sem geta talað við krakkana og náð til þeirra. Þannig virkar þetta. Ég mæli t.d. með Páli Óskari. Hann færi létt með að sannfæra krakkana í skólanum." Svona að lokum þá er veturinn fram undan. Hvað tekur þá við hjáykkur? ,,Eins og er þá erum við að klára nýja plötu seni kemur út fyrir jólin. Og svo tekur við spilamennskan í vetur og síðan verðum við bara að sjá hvað setur." FARMAS/A h.f. Sfðumúía 32 • 108 Reykjavfk sími 588 7122 • fax 588 7120 Fæst i næsta apóteki Ef menn þykjast vera einhverjir atvinnumenn hljóta þeir að spila án þess að vera undir áhrifum vímuefna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.