Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 59

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 59
ARIÐ Á KOSTUM í LANDSSÍMADEILDINNI í SUMAR! Bjarki skipti sköpum ■segir ívar Ingimarsson „KR-ingar hafa lagt mikið undir í sumar og það hefur skilað sér. Þeir eru með geysilega sterkt lið og valinn mann í hverri stöðu. Þeir hafa líka verið að spila skemmtilegan fótbolta og hlutirnir hafa gengið upp hjá þeim í sumar. Þeir hafa verið tiltölulega lausir við meiðsli þrátt fyrir að Andri Sigþórsson hafi nánast ekkert verið með þeim í ufibpori 11% w - Er einhver einn leik- maður sem hefur staðið upp úr hjá KR í sumar? „Ég held að það fari ekkert á milfi mála að Bjarki Gunn- laugsson hefur verið lykillinn að velgengni KR-liðsins í sumar. Hann hefur skorað mikið af mörkum og svo hefur hann náð mjög vel saman við Guðmund Bene- diktsson í framlínunni. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að hann hafi sett punktinn yfir i-ið hjá KR í sumar.“ Alan í sumar og Þjóðverjann í fyrra?“ - Já, aðallega Alan og Jens (Þjóðverjann). „Alan Mörkere er mjög sterkur leikmaður og hann byrjaði vel þegar hann kom. Við verðum hins vegar að hafa það hugfast að strákarnir sem eru að koma frá Færeyjum hafa alla sína tíð leikið á gervigrasi og því er erfitt fyrir þá að venjast því að leika á venjulegu grasi. Ég held að Alan eigi eftir að koma mjög sterkur inn í lið ÍBV á næstu leiktíð. Goran er alveg frábær leikmaður og leikmaður sem ÍBV-liðið vantaði. Hann kom seint en er nú búinn að vinna sér fast sæti í liðinu hjá okkur. Jens, sem kom í fyrra, var mjög góður leikmaður en hann kunni ekki nógu vel við sig hérna í Vestmanna- eyjum, enda kom hann frá stórborg í Þýskalandi. Ég held að það hafi bara verið hann sjálfur sem spilaði sig út úr liðinu þegar honum fór að leiðast í Eyjum. Það er alltaf happdrætti að fá til sín erlenda leikmenn en ég held að við höfum nú verið ágætlega heppnir með þá sem hingað hafa komið." - Hvernig finnst þér deildin hafa spilast. Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart? „Nei, ég held að þetta hafi nú verið nokkuð eftir bókinni. Það kom kannski einna helst á óvart hvað ÍA var lengi í gang. Maður er ekki vanur að sjá Skagamenn í botnbaráttunni en nú hafa þeir rétt úr kútnum og eru komnir í þriðja sætið. Ég held líka að Framarar hafi ætlað sér lengra í sumar en það hefur ekkert gengið upp hjá þeim. Þeir hafa ágætismannskap og ég hef nú reyndar trú á því að þeir lyfti sér upp í þessum leikjum sem eftir eru.“ - Hvað heldur þú að hafi gerst hjá Skagamönnum í upphafi sumars? „Þeir skoruðu bara ekki nein mörk en nú virðast þeir vera komnir með réttu framherjana. Þeir hafa leikið vel að undanförnu og við fengum meðal annars að kenna á því.“ - ÍBV og KR hafa nú barist um íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð og í ár hafa þessi tvö lið stungið af. Þetta eru líka tveir ríkustu klúbbar landsins og virðast eiga auðveldast að fá til sín nýja menn. Eiga þessi lið eftir að berjast um titlana á næstu árum? „Það eru nú þín orð að þetta séu ríkustu klúbbar landsins. Ég veit ekki hvort þessi barátta á milli KR og ÍBV sé komin til að vera en þessi tvö lið hafa lagt mikið undir til að ná góðum árangri. Ég held samt að lið eins og ÍA og Fram verði nú ekkert sátt við að KR og ÍBV skiptist á að vinna mótið, hjá þessum félögum er metnaðurinn meiri en það.“ Nú fara KR-ingar í meistarakeppnina á næsta ári og taka þar við af ykkur. Er ekki sárt að sjá eftir þeirri keppni? „Auðvitað er það sárt en ég vona bara að KR-ingar eigi eftir að standa sig vel þar og koma íslandi á kortið. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenskan fótbolta að öllum íslenskum liðum gangi vel í Evrópu og þar verðum við alltaf að standa saman. Við munum líka taka þátt í Evrópukeppni og munum gera okkar besta þar.“ ívar Ingimarsson og félagar í ÍBV enduöu í 2. sæti í Landssíma- deildinni og töpuðu í undanúrslitum í Coca-Cola-bikarnum fyrir ÍA. Texti: Jóhann Ingi Árnason Myndir: SGG/Foto
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.