Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 58

Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 58
. ÍVAR INGIMARSSON, MIÐJUMAÐUR HJÁ ÍBV, HEFUf „Þetta hefur kannski ekki alveg gengið eins og við ætluðum okkur. Við unnum allt sem í boði var í fyrra og þá gekk okkur allt í haginn. Þetta ár hefur ekki gengið eins vel og við kannski ekki verið að spila eins vel. Ég held að það sé engin ein skýring á þvf hvers vegna við erum ekki að leika jafnvel og í fyrra - það er margt sem spilar inn í og ef ég hefði eina pottþétta lausn værum við eflaust ekki í þessari stöðu núna.“ • Þrátt fyrir að ÍBV-liðið hafi ekki verið að leika eins vel og í fyrra hefur þú verið að fá góða dóma fyrir leik þinn á miðjunni. Ertu ánægður með hvernig þú hefur komist frá leikjum liðsins? „Ég er þokkalega sáttur við mitt framlag. Ég held að flestir leikmenn hafi nú leikið nokkuð vel og það má ekki gleyma því að við erum í öðru sæti í deildinni og féllum út í undanúrslitum í bikarnum. Það er ekki eins og árangur liðsins hafi verið neitt hræðilegur. Það er bara eins og ég sagði áðan, okkur hefur ekki gengið allt í haginn - við komum bara sterkari til leiks næsta sumar." - Þú hefur eflaust heyrt það eins og allir aðrir að fjölmiðlar hafa verið að gagnrýna leikskipulag ykkar. Er þetta ekki sama leikskipulag og undanfarin ár? „Auðvitað hefur maður orðið var við neikvæða umfjöllun en við höfum ekki tekið hana nærri okkur. Við erum að spila alveg eins og í fyrra og árið áður en í sumar hefur það ekki gengið nógu vel. Eins og ég sagði áðan þá er ekki nein ein skýring á því af hverju þetta hefur ekki gengið í sumar - það getur ekki alltaf allt gengið upp hjá manni.“ - KR-ingar eru með aðra höndina á titlinum þegar þetta er skrifað en lítur þú á að þið eigið einhverja möguleika þegar þrjár umferðir eru eftir? „Það getur allt gerst í fótboltanum en ég held að með sigrinum á okkur hafi KR nokkurn veginn tryggt sér titilinn. Við munum hins vegar reyna að klára þessa leiki sem eftir eru með stæl og taka þau níu stig sem eftir eru í pottinum." - Hefur þú fundið fyrir því að stuðnings- menn ykkar hafi snúist gegn ykkur? „Nei, ég get ekki sagt það. Hún hefur kannski aðeins smitað út frá sér, þessi neikvæða umfjöllun en við eigum mjög trygga og góða stuðningsmenn. Okkur hefur gengið mjög vel á undanförnum árum og þess vegna eru stuðningsmenn okkar orðnir kröfuharðir og það er bara allt gott um það að segja á meðan það er sanngjarnt í okkar garð. Ég held að það hafi nú bara sést best á leiknum gegn KR í Frostaskjóli. Þar fjölmenntu Eyjamenn og stóðu við bakið á okkur, klöppuðu fyrir okkur alveg til leiksloka þrátt fyrir að við værum ekki að leika vel. Ég held að það séu ekki mörg félög á íslandi sem eiga slíka stuðningsmenn." - Verður þú áfram í Eyjum? £SSO Eg hef ekki fundið fyrir þvi að Eyjamenn hafi snúist gegn okkur Þetta leikkerfi hefur skilað okkur mörgum titlum en ég hef enga skýringu á því hvers vegna þetta gekk ekki jafnvel í sumar „Ég á eitt ár eftir af samningnum sem ég gerði við ÍBV og mun því leika hér aftur á næstu leiktíð. Mér hefur líkað mjög vel hérna og sé engan ástæðu til að fara neitt annað." - Ertu ekkert á leiðinni í atvinnu- mennsku? „Stefnan er auðvitað sett þangað og umboðs- maðurinn minn er að vinna í þeim málum fyrir mig. Ég mun skoða þau mál í vetur en maður veit aldrei hvað dettur inn hjá manni næst. Ég lít samt á það þannig að næsta skref fyrir mig í fótboltanum er að komast eitthvað út að spila.“ - Nú eru leikmenn eins og Kristinn Hafliðason, ívar Bjarklind og Hlynur Stefánsson með lausan samning. Verður mikið breytt lið á næsta ári hjá ÍBV? „Það er nú ekkert farið að ræða það enn þá. Ég held að það sé rétt sem þú segir að þessir leikmenn séu með lausan samning en ég hef ekki heyrt neitt rætt um það hvort þeir séu á leiðinni eitthvað annað eða hvort þeir ætli að vera hér áfram. Eflaust verða einhverjar breytingar á liðinu fyrir næstu leiktíð eins og gengur og gerist en það fer nú ekkert að gerast í þeim málum fyrr en í fyrsta lagi eftir leiktíðina." - Tvö undanfarin ár hefur ÍBV-liðið verið með útlendinga sem hafa eytt mestöllu sumrinu á bekknum. Hafa þeir ekki verið nógu sterkir til að vera ' aðalliðinu? „Þú ert þá væntanlega að tala um Goran oQ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.