Skinfaxi - 01.06.1999, Page 77
„Ef maður ætlar sér að
komast í aðalliðið hjá
Liverpool þarf maður að
vera betri en Owen og
Fowler.“
Enski boltinn er farinn að rúlla og flest félögin
í úrvalsdeildinni hafa verið drjúg að kaupa
nýja leikmenn fyrir tímabilið. Eitt þeirra liða
sem hafa látið til sín taka á leikmannamarkaðnum
er stórliðið Liverpool sem Haukur Ingi Guðnason,
knattspyrnukappi frá Suðurnesjum, leikur með.
^etta fornfræga félag, sem oftast hefur unnið
ensku deildina, hefur ekki verið svipur hjá sjón
Undanfarin ár en nú vilja menn koma liðinu á
toppinn á nýjan leik og til þess hafa verið keyptir
hiargir nýir leikmenn. Við hjá Sportlífi fengum
Hauk Inga til að meta stöðuna hjá Liverpool fyrir
komandi leiktíð.
Tímabilið er nýhafið og strangt undir-
búningstímabil því að baki. Hvernig gekk
Þér á undirbúningstímabilinu?
.,Ég var mjög óheppinn á þessum tíma því við
fórum í keppnisferð til Sviss í júlí og æfðum þar af
krafti. í fyrsta æfingaleiknum var ég byrjunar-
liðsmaður en ég hafði verið nokkuð slæmur í maga
deginum áður og á leikdag en vildi þó ekki sleþpa
taskifærinu að fá að spila. En eftir aðeins tuttugu
diínútur þurfti ég að fara út af því mér leið svo illa
°9 í Ijós kom að ég var með heiftarlega
diatareitrun. Vegna þessa var ég frá í sex vikur og
er nú fyrst farinn að geta hreyft mig. Ég missti því
af öllu undirbúningstímabilinu og léttist um sex kíló
vegna veikindanna.”
þú hefur því ekki getað sannað þig á
úndirbúningstfmabilinu?
"Nei, mér fannst ég vera kominn á nokkuð gott ról
°9 var í byrjunarliðinu í fyrsta æfingaleiknum en
^ef síðan ekki getað spilað einn einasta leik og því
ekki getað sannað mig.”
Nvernig metur þú stöðuna fyrir þig í
Vetur?
"Ég veit ekki hvað ég á að segja. Houllier keypti
tvo nýja framherja fyrir tímabilið, þá Meijer og
^amara. Mér leist ekkert sérstaklega vel á
Camara í byrjun og fannst hann ekkert sórstakur
en síðan átti hann stórleik í fyrstu umferðinni. Nú
svo eru Fowler, Owen og Riedle til staðar þannig
að ég get ekki sagt annað en að baráttan sé
nokkuð hörð. En Houllier leggur mikið upp úr því
að vera með breiðan og sterkan hóþ eins og Man.
United og fleiri topplið í deildinni og þegar meiðsli
og bönn koma inn veit maður aldrei hvað getur
gerst.”
Hefur Houllier eitthvað rætt við þig hvers
hann ætlast til af þér?
„Nei, hann hefur nú ekki gert það ennþá. En ég er
í þessum þrjátíu mann æfingahóþ hjá Liverpool og
æfi því á fullu með aðalliðinu. Síðan verður maður
að standa sig vel í leikjum með varaliðinu og nýta
tækifærið ef það gefst. Ég vil auðvitað komast í
aðalliðið og fá að spila með þvi en maður áttar sig
stundum ekki á því hjá hvaða klúbbi maður er og
við hverja maður er að berjast um stöður í liðinu.
Ef maður ætlar sér að komast í byrjunarliðið hjá
Liverþool þarf maður að vera betri en Fowler eða
Dwpn ”
Hvernig eru samskiptin á milli leikmanna
liðsins?
„Þau eru mjög góð og það er fínn andi í hópnum.
Hérna eru engir kóngastælar og allir ræða saman.”
Hvernig líst þér á veturinn hjá Liverpool?
„Mér líst vel hann og ég veit að leikmenn ætla sér
stóra hluti. Veturinn í fyrra var hræðilegur og menn
eru samtaka í því að láta slíkt ekki henda aftur.”
En verður ekki dálítið erfitt að ná góðum
árangri með svona marga nýja leikmenn
innanborðs?
„Ég veit það ekki. Nýju leikmennirnir hafa fallið vel
inn í þetta hjá okkur og eru tilbúnir að leggja sig
100% fram. Það er oft þegar svona margir nýir
leikmenn koma að þeir myndi klíku en hérna hafa
þeir blandast vel. Þannig að það ætti kannski ekki
að verða vandamál hversu margir nýir leikmenn
eru hjá liðinu heldur frekar er þetta spurning um
hvernig þeir aðlagast enska boltanum og nýrri
menninau.”