Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2002, Page 4

Skinfaxi - 01.02.2002, Page 4
Nýir framkvæmdastjórar Umhverfissjóður í minningu Pálma Gíslasonar Stella Guðmundsdóttir vill stofnsetja og leggja fram eina milljóna króna í minn- ingarsjóð um Pálma Gíslason, fyrrverandi formanns UMFÍ. Hugmyndin er að vinna að því að gera sjóðinn gildari og nýta vextina til úthlutunar. Stefnt er að því að skipa í nefnd um undirbúning að stofnun sjóðsins og vinna að úthlutunarreglum hans. Leitað eftir samráðum við Umhverfissjóð verslunar- innar og fleiri aðila. Samþykkt að stjórn UMFÍ leggi fram sambærilega upphæð í sjóðinn á næstu árum. Stjórnarmenn fagna hugmyndinni og hvetja til áframhaldandi vinnu við undirbúning að stofnun sjóðsins. Ungmennafélagar hljóta starfs- og gullmerki UMFÍ Á 3. stjórnarfundi UMFÍ sem haldinn var í byrjun febrúar var samþykkt að veita hjón- unum Ásu Marínósdóttur starfsmerki UMFÍ og Sveini Jónssyni, á Kálfskinni á Árskógs- strönd, gullmerki UMFÍ fyrir óeigingjarnt og vel unnin störf í þágu hreyfingarinnar í tugi ára. Merkin voru veitt í 70 ára afmæli þeirra hjóna sem haldið var 9. feb. en nokkir stjórnarmenn mættu þangað. Nýir framkvæmdastjórar hjá HSÞ og UÍA Fyrir nokkru urðu framkvæmdastjóra- skipti hjá tveimur héraðssamböndum. Elma Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, UÍA. Hún hefur þegar hafið störf og leysir af hólmi Þórarinn Ragnarsson sem gengt hefur starfinu undanfarið ár. Honum er þakkað mikið og gott starf og er Elma jafnframt boðin velkomin til starfa. Ingólfur Víðir Ingólfsson hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Héraðssambands Suður- Þingeyinga, HSÞ. Hann leysir af hólmi Stefán Jónasson sem lét af störfum sl. haust. Honum er þakkað gott starf og Ingólfur Víðir boðinn velkominn til starfa. HSH og Umf. Óöinn Héraðssamband Snæfells- og Hnappa- dalssýslu hefur ráðið til sín nýjan fram- kvæmdastjóra Helga R. Guðmundsson. Helgi tekur við af Valgerði L. Guðmunds- dóttur sem sinnt hefur starfinu undan- farið. Nýtt skrifstofuhúsnæði hefur ný- verið tekið í notkun í Stykkishólmi en síðustu mánuði hefur skrifstofa HSH verið í heimahúsum tveggja síðustu framkvæmdastjóra. Við hjá UMFÍ bjóð- um Helga velkomin til starfa og þökkum Valgerði fyrir gott starf. Einnig viljum við óska HSH til hamingju með nýja húsnæðið sem er sjálfsagt sambandinu kærkomið. Á aðalfundi Umf. Óðins sem haldinn var 19. janúar var Jóna Björk Grétarsdóttir kjörinn nýr formaður félagsins. Jóna tekur við af Guðjóni Ólafssyni. Við óskum Jónu til hamingu með kjörið og þökkum jafnframt Guðjóni gott starf. Valdimar endurkjörinn formaður UMSK 78. Ársþing UMSK fór fram á Seltjarnar- nesi í febrúar. Valdimar L. Friðriksson var endurkjörinn formaður sambandsins sem og allir aðrir stjórnarmenn. Tap var á rekstri sambandsins á síðasta ári sem rekja má til mikils kostnaðar vegna þátt- töku í Landsmóti UMFÍ og minni tekjum af getraunum en áætlað var. Auk fulltrúa frá aðildarfélögum UMSK mættu til þingsins góðir gestir, Ellert B. Schram forseti ÍSÍ ávarpaði þingið sem og Björn B. Jónsson formaður UMFÍ. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri Seltjarnarnes- bæjar bauð þingfulltrúa velkomna á Sel- tjarnarnes og bauð síðan til kvöldverðar. í matarhléi voru veittar viðurkenningar afreksmanna á sviðum íþrótta- og félagsmála. Afreksmenn UMSK að þessu sinni eru Helga Dögg Helgadóttir og ísak Halldórsson dansarar úr Hvönn, Félagsmálaskjöldinn hlaut Lárus Rafn Blöndal. Heiðursviðurkenning UMSK var veitt nú í 5. skipti og hlaut hana Sigurgeir Sigurðsson fyrir frábæran stuðning við íþrótta- og ungmennafélög á Seltjarnar- nesi. Menningarsvið UMFÍ vill auka og auðga menningarlega og félagslega þáttinn hjá íþrótta- og ungmennafélögum Á 3. stjórnarfundi UMFÍ, sem fram fór 8,- 10. febrúar var m.a. farið yfir markmið Menningarsviðs UMFÍ, en menningarsviðið skipa: Kristín Gísladóttir, stjórn UMFÍ, Kristinn Daníelsson, Fjölni, Greipur Gísla- son, HSV. Markmið sviðsins: Koma með tillögur að skipulagi og starfi sviðsins. Finna upp á „einhverju." Dæmi um hugmyndir sem upp hafa komið: Listapakki á ferð um landið, Hljómsveitakeppni UMFÍ Söngvakeppni UMFÍ, gæti endað á ULM. Spurningarkeppni UMFÍ Menningarlandsmót UMFÍ Menningarsjóður UMFÍ Hugmyndabanki á heimasíðu UMFÍ Stjórn menningarsviðs UMFÍ samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar að hvetja stjórn UMFÍ til að stofna menningarsjóð sem úthluti fjármagni eins og tilefni þyki til eftir umsóknum. Rætt og samþykkt að benda á verkefnasjóð UMFÍ en áætla fjármuni til menningarverkefna. Stjórn menningarsviðs UMFÍ samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar að hvetja stjórn UMFÍ til að koma á fót hugmynda- banka um uppákomur og menningarvið- burði á heimasíðu sinni. Samþykkt að með nýrri heimasíðu verði boðið upp á þann möguleika að velja ,,Verkefnabanka“ þar sem safnað verði saman upplýsingum um verkefni innan menningar-, umhverfis- og almenningsíþróttamála. Stjórn menningarsviðs UMFÍ samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar að óska eftir leyfi til að útbúa og senda út bækling til sambandsaðila þar sem kynntar verða hugmyndir nefndarinnar og félög hvött til að efla menningarstarf sitt. Ákveðið var að bíða með að gefa út bækl- ing en senda þess í stað bréf til upplýsinga um menningarsvið, sjóði, verkefni og fleira. Eftir að starfið er orðið nokkuð mótað að gefa út sameiginlegan kynningarbækling sviðanna. Stjórn menningarsviðs UMFÍ leggur til að stjórn UMFÍ komi á fót Söngvakeppni Ung- mennafélaga. Forkeppni yrði innan Hér- aðssambanda og úrslitakeppnin myndi fara fram á Unglingalandsmóti þar sem hljóm- sveit mótsins spili undir. Þetta tengist nokkuð verkefnum sem eru í undirbúningi hjá Unglingalandsmótsnefnd UMFÍ. Sviðsstjórn hyggst hittast aftur þegar líða fer á vorið og síðan aftur í haust en vera þess á milli í tölvusambandi. Hún ætlar sér stóra hluti og telur mikla möguleika fyrir hendi til að bæta félags- og menningarstarf ungmennafélagana.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.