Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2002, Side 9

Skinfaxi - 01.02.2002, Side 9
Ertu fyrsti atvinnumaðurinn sem Höttur eignast? „Eftir því sem ég best veit þá er ég það. Það er svolítið skrítin tilfinning en vonandi á Höttur eftir að eiga fleiri atvinnumenn í framtíðinni." Ertu þá ekki alger stjarna á Egilsstöðum? „Nei, ætli það en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér." Hvernig kom það til að þú fórst til Keflavíkur? „Það var þannig að fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, Eysteinn Hauksson, vissi af mér hjá Hetti og benti Gerir þú þér vonir um að komast beint inn í liðið? „Það verður bara að koma í ljós. Hópurinn var minnkaður úr 24 leikmönnum niður í 20 þannig að möguleikarninr eru kannksi meiri fyrir vikið en þetta er bara eins og hjá öllum liðum og maður verður bara að standa sig. Auðvitað vill maður spila sem mest en ég reikna með fyrsta árinu til að koma mér fyrir og sanna mig sem knatt- spyrnumaður. Það má segja að ég stuðning í þessu öllu saman. Ég er fimmti leikmaðurinn sem fer frá Keflavík á jafn mörgum árum í atvinnumennskuna. Auk mín eru það Ólafur Gottskálksson, Haukur Ingi, Jóhann Guðmundsson og Jak- ob Jónharðasson. Eitthvað eftirminnilegt úr bolt- anum sem þú vilt deila með lesendum Skinfaxa? „Tveir leikir á móti KR sumarið 2000 eru í minningunni. Annar var á „Til að ná langt í íþróttum þarf maður að leggja mikla aukavinnu á sig og setja sér markmið og fylgja þeim eftir. Það held ég að sé vænlegt til árangurs." foráðamönnum Keflavíkur á mig. En Eysteinn spilaði lengi með Hetti á Egilstöðum. Nema hvað þá fékk ég samning með tilliti til þess hvernig maður stæði sig. Þetta var sumarið 1999 og spilaði ég þá með öðrum flokki. Síðan kom ég inn í meistaraflokk sumarið á eftir. Ég hef kunnað afskaplega vel við mig í Keflavík þann tíma sem ég hef verið þar. Þetta er mikill íþróttabær með mikla knattspyrnu- og körfubolta hefð." Fornfrægt félag Hvernig líst þér á aðstæður hjá Gautaborg? „Þetta er náttúrulega atvinnumannalið og ég leyfi mér að segja eitt frægasta lið á Norðurlöndunum. Félagið hefur tvisvar orðið Evrópumeistari, árin 1982 og 1987, þar fyrir utan hefur liðið unnið sænska meistaratitilinn 17 sinnum, síðast 1996. Það eru gerðar miklar kröfur til leikmanna þarna úti enda og er liðið ágætt í dag. Það eru tveir leikvangar hjá liðinu, Gamla Ullevi og Nya Ullevi. Liðið spilar á gamla leikvanginum sem er meiri „gryfja" en sá nýi sem er alþjóðavöllur og rúmar um 50.000 manns. En venjulega eru að mæta þetta 10.000 - 15.000 manns á leiki hjá liðinu. Þannig að þetta leggst vel í þig? „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég sá stærsta kostinn í þessu þannig séð að þetta er eins og ein stór fjölskylda og mín kynni af félaginu er þannig." Getur þú nefnt einhverja fræga knattspyrnukappa sem hafa spilað með Gautaborg? „Það hafa nokkrir frægir spilað með Gautaborg en kannski frægasti knattspyrnumaðurinn er Jesper Blomkvist. Hann fór frá Gautaborg til Inter Milan, kom við hjá Machester United en spilar í dag með Everton. En Gautaborg spilaði á þessum árum í Meistaradeild Evrópu. í dag tekur félagið hins vegar þátt í Evrópu- keppni félagsliða. Hver veit nema maður feti sömu slóð!" fari með sama hugarfari í þetta og eins og þegar ég fór til Keflavíkur frá Hetti." Eru launin góð? „Ég ætla ekkert að gefa upp um það en ég ætti allavega að hafa það bærilegt. Þetta er mun minna í sniðum en fólk heldur og ekkert í líkingu við t.d. England og Þýska- land. En ætli ég segi bara ekki eins og Hermann Hreiðarsson, þó að ég sé ekki að líkja okkur saman, þegar hann svaraði álíka spurningu: Ég hef ekki áhyggjur þegar ég kaupi mér kók og prins! Algjör draumur í dós Hefur þig ekki lengi dreymt um að verða atvinnumaður? „Jú, það held ég nú. Þegar maður var spurður að því í skólanum í gamla daga hvað maður ætlaði að verða þegar maður yrði stór svaraði ég iðulega atvinnumaður númer eitt og síðan lögga og þessháttar númer tvö. Ekki grunaði mann um það að þegar maður stæði á tvítugu væri maður orðinn atvinnumaður í knattspyrnu en það má segja að síðasta ár og byrjunin á þessu hafia verið algjör draumur í dós. Nú er samherji þinn hjá Keflavík, Haukur Ingi Guðnason, fyrrver- andi atvinnumaður. Hefur hann gefið þér góð ráð hvað atvinnu- mennskuna varðar? „Haukur Ingi hefur miðlað af sinni reynslu til mín og er gott að fá Laugardalsvellinum þar sem við vorum eiginlega alveg búnir að gera í okkur í fyrri hálfleik og vorum 2:0 undir en unnum síðan 2:3. Það var skemmtileg stemmning sem mynd- aðist í kringum það og mikið af áhorfendum. Hinn leikurinn var bikarleikur gegn þeim sem við unnum 2:1 þar sem ég náði að skora mark." Hvað með vonbrigði? „Það held ég nú. Við höfum tvisvar dottið út úr 8 liða úrslitum í bikarn- um gegn fyrstu deildar liðum. Það voru mikil vonbrigði og sérstaklega síðari leikurinn vegna þess að við vorum með mjög frambærilegt lið." Vill atvinnumaðurinn Hjálmar Jónsson koma einhverjum skila- boðum til ungra íþróttaiðkenda? „Til að ná langt í íþróttum þarf maður að leggja mikla aukavinnu á sig og setja sér markmið og fylgja þeim eftir. Það held ég að sé vænlegt til árangurs." Hver eru markmið atvinnumanns- ins? „Ætli þau séu ekki þau að finna sig hjá nýju félagi og standa sig í því sem maður er að gera. Hvað langtímamarkmið varðar er að ná enn lengra í íþróttinni og spila fleiri landsleiki. Þegar maður er kominn svona langt þá er ég á því að maður ætti allavega ekki að verða verri en maður er í dag ef maður stendur sig og lendir ekki í meiðslum og þess- háttar."

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.