Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2002, Qupperneq 20

Skinfaxi - 01.02.2002, Qupperneq 20
Hópfimleikar hafa rutt sér til rúms í íslensku íþróttalífi á und- anförnum árum. A dögunum / / valdi ISI ungmennafélaga úr Stjörnunni, Hrafnhildi Gunn- arsdóttur, fimleikamann ársins 2001 og er það í fyrsta skipti sem einstaklingur úr hópíþrótt er valinn fimleikamaður ársins hjá ISI. Hrafnhildur var valinn sem fulltrúi hópfimleikahóps Stjörn- unnar úr Garðabæ sem náði frá- bærum árangri í fyrra. Hrafn- hildur var einnig valin Iþrótta- maður Garðabæjar árið 2001. Valdimar Kristófersson settist niður með þessari glæsilegu íþróttakonu og forvitnaðist nán- ar um hópfimleika á Islandi. Hópfimleikar njóta vaxandi vinsælda Ekki lengur annarsflokks grein Þessar viðurkenningar eru sjálfsagt mikill heiður fyrir þig og hópfimieikana á íslandi? „Já, þetta er mjög gott bæði fyrir okkur og fyrir greinina. Áður vildi brenna við að fólk liti á hópfimleika sem einhvers konar annars flokks grein á eftir áhaldafimleik- unum. Þetta hefur verið að breytast og er það ekki síst að þakka góðum árangri í greininni undanfarin ár.“ Þið hafið unnið marga góða sigra í gegnum árin. Hvað er það sem stendur upp úr? „Auðvitað var frábært að vinna bæði bikar og íslandsmeistaratitil í fyrra en það sem stendur upp úr er að sjálfsögðu 4 sætið á Evrópumeistaramótinu í Birmingham 2000.“ Um hvað snúast hópfimleikar? „í hópfimleikaliði gera verið 6-12 einstak- lingar. Keppt er i dansi , dýnustökki og á trampólíni. í dansinum tekur allt liðið þátt en í hinum tveimur greinunum þá er stokk- ið 3 umferðir. í hverri umferð stökkva 6 bestu í viðkomandi stökki hver á eftir ann- arri í eins konar rennsli.“ Þannig að samæfingin og liðsheildin skiptir miklu máli? „Já, hún skiptir öllu máli.“ Þú hefur síðastliðin 8 ára verið í meist- arahópi Stjörnunnar í hópfimleikum og ert í dag orðinn aldursforseti liðsins. Er þetta mikið til sömu stelpurnar sem eru í hópnum ár eftir ár? „Já, ég og ein önnur erum að verða 25 ára og erum eins og er elstar. Það er þó ein eldri 27 ára, en hún er í barneignarleyfi. Ég hef auðvitað séð miklar breytingar í gegn um árin, en kjarninn hefur verið sá sami undanfarin 3-4 ár.“ Er þá erfitt fyrir nýliða að komast inn í hópinn? „Nei, ekki ef það er mikill áhugi fyrir hendi. Það eru þó gerðar vissar kröfur um getu.“ Ástundunartími fimleikafólks er ekki langur. Hvað með hópfimleikana? „Já, hann er allt of stuttur í áhaldafimleik- unum. Hann hefur verið lengri í hópfim- leikunum en samt vildi ég gjarnan sjá hann enn lengri. Aðalástæðan fyrir því að fólk hættir virðist oftast vera tímaleysi frekar en áhugaleysi. Það hefur allavega verið reyn- din með okkar hóp.“ Fyrir fólk á öllum aldri Ég hef heyrt þess getið að þú ætlir ásamt öðru ágætu fólki að reyna að breyta landslagi fimleikana aðeins með því að draga „eldra fólkið" inn í þá? „Já, eins og ég kom inn á áðan þá finnst mér fólk hætta allt of snemma. Oft er það tímaskortur eða þá að fólk telur sig bara

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.