Skinfaxi - 01.05.2004, Side 3
SKINFAXI
Boðberi góðra frétta
Þrastalundur, nýr og glæsilegur
veitingaskóli UMFÍ í Þrastaskógi í
Grímsnesi, í landareign ungmenna-
félaganna hefur verið vígður og
opnaður. Þrastalundur og Þrastaskógur
eru perlur ungmennafélagshreyf-
ingarinnar en Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri Landsbankans færði
ungmennafélagshreyfingunni skóginn
að gjöf órið 1911. „Þrastalundur hinn
þriðji, nú eru ævintýrin rétt að byrja,"
sagði Hafsteinn Þorvaldsson, fyrr-
verandi formaður UMFÍ, við vígsluna ó
Þrastalundi. Veitingasalurinn í
Þrastalundi hefur verið nefndur
Hafsteinsstofa í höfuðið ó Hafsteini.
Ungmennafélagar sem og aðrir
landsmenn eru hvattir til að leggja leið
sína í Þrastaskóg. Þar liggja fjölmargar
skemmtilegar gönguleiðir, leikvangur
og tjaldsvæði er í miðjum skógi, veiði í
Soginu og Alftavatni og miklir
möguleikar til útivistar og leikja.
Snemma ó síðustu öld tóku mörg
ungmennafélög til við að rækta landið
og gróðursetja tré í sérstökum gróður-
reitum. Afram var haldið að græða
landið og hirða. Nokkrum óratugum
síðar var tekið til við að hreinsa fjörur
og rusl meðfram vegum. í tengslum við
þessi verkefni urðu til göngudagar
fjölskyldunnar sem ungmennafélög
hafa staðið fyrir í 20 ór. Nú hafa þessir
göngudagar fjölskyldunnar leitt af sér
verkefnin Göngum um Island og
Fjölskyldan ó fjallið, landsverkefni
UMFÍ sem miða að því að hvetja
landsmenn til gönguferða og fjall-
gangna. I senn eru þetta almennings
íþróttaverkefni, sem og umhverfis-
verkefni, þar sem óherslan, samhliða
líkamsrækt og útivist, er lögð ó
virðingu við lífríki nóttúrunnar, en um
leið að fræðast um nóttúruna og
umhverfið. Til gamans hefur Ijóðasam-
keppni og teiknimyndasamkeppni
verið fléttað inn í verkefnin.
Nú streyma menn ó landsmót,
skreyttir gunnfónum sinna félaga. Víst
er að 24. Landsmót UMFÍ ó
Sauðórkróki verður eitt umfangsmesta
Landsmót síðari tíma. I allt verða
keppendur um 2.200 talsins í um
þrjótíu keppnisgreinum. Afþreying og
skemmtun hefur aldrei verið fjöl-
breyttari og þjónusta og gestrisni
Skagfirðinga er landsfræg. Líklega
munu mörg metin falla og margir
sigrarnir vinnast. Stærsti sigurinn
verður þó ón efa að mæta ó
landsmótið og vera með. Brosa, hafa
gaman og gera sitt besta. Líklega mun
þó eitt landsmótsmet ekki falla, en
ólíklegt er að landsmótsmetið í
rigningu verði slegið. Skín við sólu
Skagafjörður, en sjólfir segja heima-
menn að það sé alltaf sól í Skagafirði.
Starfsemi héraðssambanda og
ungmennafélaga um land allt er
fjölbreytt; íþróttamót, héraðsmót,
sumarhótíðir, sýningar, æfingar, leikir,
ferðalög, gönguferðir, fjallgöngur,
sumarbúðir, leikjaskólar, fjóraflanir,
útgófumól, kynningarmól, margvíslegir
viðburðir fyrir sveitarfélögin og þannig
mætti lengi telja. Mitt í öllum
atganginum mó ekki gleyma
tilganginum. Vinnu sem þroskar börn
og unglinga og alla þó sem að starfinu
koma. Ekki gleyma gleðinni og
ónægjunni sem ó að fylgja starfinu þó
svo að stundum sé mikið að gera í því
að selja klósettpappír og betla
peninga, skipuleggja ferðir og ýmsa
viðburði. Mikill fjöldi sjólfboðaliða
kemur að starfi ungmennafélags-
hreyfingarinnar og gefur af sér til
samfélagsins, til sinnar heimabyggðar,
til síns ungmennafélags. Þetta fólk ó
heiður skilið. Svo mæta þeir stundum
sem gera ekki neitt, og amast yfir öllu
og spyrja af hverju er þetta ekki svona
eða hinsegin. Auðveldasta svarið er
kannski; æ, góði besti þegiðu. Betra er
líklega bara að taka ó honum stóra
sínum, brosa og bjóða viðkomandi að
rétta fram hjólparhönd.
Skinfaxi er mólgagn ungmenna-
félashreyfingarinnar. I Skinfaxa mó
finna brot af því mikla starfi sem er að
finna í hreyfingunni. íþróttastarf,
menningarmól og umhverfismól.
Fréttir af æsku landsins við margvísleg
störf, í leik og keppni. Fréttir af starfi
héraðssambanda og ungmennafélaga
og öllum þeim viðburðum sem þau
standa fyrir. Það er hlutverk og
markmið Skinfaxa að vera boðberi
góðra frétta.
Skinfaxi er að þessu sinni helgaður
nýjum Þrastalundi, Landsmótssumri ó
Sauðórkróki og Göngum um Island,
landsverkefni UMFÍ.
Páll Guðmundsson ritstjóri.
Ritstjóri: Páll Guðmundsson.
Greinaskrif: Páll Guðmundsson.
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar, Páll
Guðmundsson, Omar Bragi Stefánsson,
Einar Elíasson.
Umbrot og hönnun: Guðmundur Karl
Sigurdórsson, Helgi Valberg Jensson.
Framkvæmdastjóri UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson.
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ.
Auglýsingar:
Þjónustumiðstöð UMFÍ - Markaðsmenn.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Valberg Jensson og
Guðmundur Karl Sigurdórsson.
Pökkun: Ás vinnustofa.
Ritstjórn
Anna R Möller.
Sigurlaug Ragnarsdóttir.
Birgir Gunnlaugsson.
Ester Jónsdóttir.
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Skrifstofa Skinfaxa
Fellsmúla 26 - 108 Reykjavik
Sími 568-2929
Netfang: palli@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
3
SKINFAXI - tímarit um íþróttir