Skinfaxi - 01.05.2004, Page 6
FORMAÐUR UMFÍ
í orðabók Árna Böðvarsson fró 1980
er menning skilgreind sem „þroski
mannlegra (andlegra) eiginleika
mannsins, þjálfun hugans, andlegt
líf, sameiginlegur arfur (venjulega
skapaður af mörgum kynslóðum)."
Þegar þessi skilgreining er skoðuð
og hlutverk ungmennafélaga í því
samhengi þá er ekki hægt að neita
því að hlutverk þeirra í menningar-
málum hefur verið mikið.
Eitt af meginhlutverkum ung-
mennafélaga er að þroska eiginleika
mannsins, jafnt mannlega sem
líkamlega eiginleika. I gildismati
aðildarfélaga UMFÍ frá 1997 segir:
„grundvöllur að starfi aðildarfélag-
anna er virðing fyrir einstaklingnum
og áhugi fyrir að efla og þroska
hæfileika hans á þeim sviðum sem
geta hans leyfir". Með tækifæri á að
vinna að ýmsum verkefnum til þroska
mannlegra eiginleika mannsins.
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, afhendir Valgeiri Þorvaldssyni hjá
Vesturfarasetrinu á Hofsósi viðurkenningu í heimsókn ungmennafélaga á
Vesturfarasetrið. Vesturfarasetrið hlaut í vor Umhverfisverðlaun UMFÍ og
Pokasjóðs.
I tæplega 100 ára sögu ungmenna- verið gert með útgáfu á blöðum og
félaga hefur það verið markmið tímaritum þar sem fólk á öllum aldri
margra félaga að þjálfa hugann hjá hefur átt þess kost að koma á
félagsmönnum. Þetta hefur m.a. framfæri efni sem það hefur sett
Horft til framtíðar - Menningarmál
UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll
6