Skinfaxi - 01.05.2004, Page 10
FJÖLSKYLDAN Á FJALLIÐ
■
Ásdís Helgci Bjarnadóttir, stjórnarkona í UMFÍ, setti verkefnið Göngum um
ísland formlega af stað með gönguferð í Jafnaskarðsskógi í Borgarfirði
Fjölskyldan á fjallið
Ungmennafélag íslands, ásamt
aðildarfélögum um land allt,
hafa staðið að verkefni er nefnist
„Fjölskyldan á fjallið". Markmið
þess er að hvetja landsmenn til
að leggja land undir fót og
ganga á brattann. Efla þannig
styrk og þol ásamt því að njóta
fegurðar landsins, bæði þess sem
verður á vegi fólks upp hlíðarnar
og þess útsýnis er blasir við á
hæsta tindi. Ásdís Helga
Bjarnadóttir, stjórnarkona í UMFÍ
og í verkefnisstjórn Göngum um
ísland, hefur leitt þetta verkefni.
„Aðildarfélög UMFI, ungmenna-
félög og Héraðssambönd, hafa í ár
tilnefnt eitt til tvö fjöll á sínum
svæðum í þetta verkefni og komið
fyrir gestabókum á toppi þeirra. í
mörgum tilfellum er um að ræða
önnur fjöll nú í sumar en hafa verið
tilnefnd undanfarin ár. Alls eru
Landsverkefnið fjölskyldan á fjallið
er fyrir stóra sem smáa, pabba og
mömmu, afa og ömmu, alla
fjölskylduna.
tilnefnd 22 fjöll af öllum stærðum og
gerðum. Stuttar leiðalýsingar má
finna í bók sem nefnist Leiðabók
UMFÍ og má fá frítt eintak af henni á
næstu ESSO stöð," segir Asdís Helga.
Fjöllin eru, eins og verkefnistitillinn
gefur til kynna, aðgengileg göngu-
færu fólki á öllum aldri. Sem dæmi
má nefna að nú í byrjun vors hafa
farið fram skipulagðar göngur á fjöll
innan verkefnisins og þátttakendur
verið á aldrinum þriggja ára og upp í
sjötugt. Yngri börn hafa einnig tekið
þátt en eru þá borin upp!
Nú hafa um tólf þúsund manns
skráð nöfn sín í gestabækurnar,
fyrstu tvö sumur verkefnisins.
Vinsælustu fjöllin í verkefninu hafa
verið Eldfell í Vestmannaeyjum og
Eyjan í Ásbyrgi. í haust er gesta-
bókunum safnað saman og þátttaka
í verkefninu skráð niður. Tíu heppnir
göngugarpar eru dregnir úr pottinum
og hljóta vegleg útivistarverðlaun.
„Eg hvet alla landsmenn til að
nálgast Leiðabók UMFÍ og skoða
hvaða fjöll eru tilnefnd í þetta
verkefni á því svæði sem viðkomandi
býr eða ætlar að ferðast til í sumar.
Hafa svo með sér gott íslenskt vatn á
brúsa og ávexti, auk þess að taka
með kort af svæðinu til að fræðast
um umhverfið. Þess má geta að
margir hafa nú í upphafi sumars sett
sér það markmið að ganga á sem
flest fjöll er tilnefnd eru í verkefnið,
eða í það minnsta fjallið sinni
heimabyggð," segir Ásdís Helga
Bjarnadóttir í verkefnisstjórn
Göngum um Island.
Vinsælustu fjöllin í
verkefninu hafa verið
Eldfell í Vestmanna-
eyjum og Eyjan í
Ásbyrgi. í haust er
gestabókunum safnað
saman og þátttaka í
verkefninu skráð niður.
UMFI - Allir með
10