Skinfaxi - 01.05.2004, Síða 21
LANDSMOT UMFI
„Landsmót nú líður mér vel, lengi
hef ég beðið þín. I sumri og sól á
Sauðórkróki við Tindastól," segir
í texta í nýju landsmótslagi 2004.
Ómar Bragi Stefónsson, fram-
kvæmdastjóri landsmóts, tekur
undir þennan texta og segir að
með hverjum deginum sem færist
nær Landsmóti aukist eftir-
væntingin og tilhlökkunin hjó
Skagfirðingum við að taka ó móti
þúsundum gesta til Skagafjarðar
yfir landsmótsdagana. „Ég
hlakka til, þó hlakkar til, þær
hlakkar til, þau hlakkar til, alla
hlakkar til, ég held að þetta sé
rétt hjó mér, bæði mólfarslega
og að öllu öðru leiti," segir Ómar
Bragi, framkvæmdastjóri Lands-
mót, aðspurður um 24. Lands-
móts UMFÍ.
Góð skráning í
fjölbreytta keppni
Skráning hefur gengið vel og stefnir í
að keppendur verði um 2.200 í þeim
29 greinum sem keppt verður í á
Landsmóti. „Það er almenn og mikil
þátttaka á meðal héraðssambanda
UMFÍ og eins hafa íþróttabandalögin
sem nú fá að keppa á Landsmóti í
fyrsta skipti verið með ágætar
skráningar. Til að mynda hefur
íþróttabandalag Reykjavíkur skráð
um 150 keppendur til leiks. Þessar
29 keppnisgreinar sem keppt verður
í eru: badminton, blak, borðtennis,
bridds, dans, dráttarvélarakstur,
fimleikar, fjallahlaup, frjálsar íþróttir,
glíma, golf, gróðursetning, hand-
bolti, hestadómar, hestaíþróttir,
íþróttir eldri ungmennafélaga,
íþróttir fatlaðra, júdó, jurtagreining,
knattspyrna, körfubolti, lagt á borð,
línubeitning, pönnukökubakstur,
siglingar, skák, skotfimi, stafsetning,
starfshlaup, sund og æskuhlaup.
Við erum mjög ánægð með
þátttökuna en ef við teljum saman
skráningu í allar þessar greinar,
þátttöku eldri ungmennafélaga,
fjallahlaupið og æskuhlaupið þá eru
keppendur um 2.200 talsins en það
gerir mótið að einu af stærri mótum
síðari ára," segir Ómar Bragi.
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri landsmóta (fyrir miðju) ásamt
starfsmönnum Landsmótsskrifstofu UMFI á Sauðárkróki, Pétri Friðjónssyni
(t.v.) og Guðlaugu Gunnarsdóttur (t.h.).
Birgir Ari, framkvæmdastjóri UMSK,
leynir á sér og er lunkinn í eldhús-
inu. Hér er hann við keppni í
pönnukökubakstri á landsmóti.
Fjölbreytt dagskrá
„Ég held að það sé nokkuð öruggt að
engum á eftir að leiðast á Lands-
mótinu," segir Ómar Bragi. Fyrir
utan íþróttakeppnina, verður
afþreying og skemmtun mjög
fjölbreytt. Má þar fyrst nefna
Stuðmenn, sem munu halda uppi
fjörinu á kvöldvökum landsmótsins,
ásamt til dæmis Alftagerðisbræðrum,
Geirmundi Valtýs, Karlakórnum
ffeimi, Vox Feminae, og fjölmörgum
öðrum. „Þá verður þarna danskur
dans og fimleikaflokkur sem ferðast
hefur um heiminn með frábæra
sýningu, The World Performance
Show, sem er sambland af dansi og
fimleikum undir hressilegri tónlist,"
segir Ómar Bragi.
Góð þjónusta
og gestrisni í Skagafirði
Það er alkunna að Skagfirðingar eru
gestrisnir og höfðingjar heim að
sækja. Enda bjuggu margir höfð-
ingjar til forna í Skagafirði og sjálfir
telja Skagfirðingar stundum að
íslandssagan hafi gerst að mestum
hluta í Skagafirði. „Sauðárkrókur
verður miðpunktur alheimsins að
okkar mati þegar Landsmótið fer
fram. Það er alla almenna þjónustu
að finna á Sauðárkróki og verslun og
þjónusta opin langt fram á kvöld og
jafnvel lengur."
„Landsmót nú líður mér vel,"
syngur Ómar Bragi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Landsmóta UMFÍ á
Sauðárkróki í sumar. „Og þegar
þetta verður allt saman búið þá líður
mér örugglega miklu betur."
21
SKINFAXI - tímarit um umhverfismál