Skinfaxi - 01.05.2004, Síða 32
PIANO I HAFSTEINSSTOFU
Hafsteinn Þorvaldsson og fjölskylda ásamt Birni B. Jónssyni, Helgu Guðjónsdóttur og Önnu R. Möller . Á myndinni eru
einnig Jónas Ingimundarson og eiginkona hans Ágústa Hauksdóttir.
Hafsteinn gaf hljómfagurt píanó í Þrastalund
Föstudaginn 25. júní var
nýtt og glæsilegt píanó
vígt í Þrastalundi og
verður það varðveitt í
Hafsteinsstofu. Það er
Hafsteinn Þorvaldsson,
fyrrverandi formaður
UMFÍ, sem gaf þessa
veglegu gjöf, en hún er
tilkomin vegna opnunar
og vígslu Hafsteinsstofu,
sem er nefnd í höfuðið á
Hafsteini. Jónas Ingi-
mundarson veitti ráð-
gjöf við kaupin á píanó-
inu og lék hann á það
nokkur lög. Þá spilaði
einnig Helga Þráins-
dóttir, sonardóttir Haf-
steins á fiðlu í tilefni
vígslunnar.
„Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti, hún var að
koma af engjunum heim." Á tímum Hafsteins sem
formanns UMFÍ var sungið við öll tækifæri. Hafsteinn
stjórnaði söng við undirleik Jónasar.
Jónas Ingimundarson, píanóleikari valdi píanóið fyrir
vin sinn Hafstein og tók nokkur lög af sinni alkunnu
snilld við afhendingu þessa fallega hljóðfæris.
Björn B. Jónsson, for-
maður UMFÍ sagði að með
gjöfinni væri verið að
tryggja að menning myndi
blómstra í húsinu. Þakkaði
hann Hafsteini fyrir gjöfina
fyrir hönd UMFÍ.
Hafsteinn sagði við
tækifærið að Þrastalundur
hinn þriðji yrði að hafa
hljóðfæri, en hann tók eftir
að ekkert var sungið við
opnun Þrastalundar fyrir
nokkru. Slíkt hafi alltaf
verið gert hjá UMFI og
bætti hann úr því með að
taka nokkur lög með
gestum. „Nú er byrjaður
nýr tími og nýtt framfara
tímabil í Þrastaskógi. Þetta
er bara byrjunin," sagði
Hafsteinn.
UMFÍ - Ræktun lýðs og lands
32