Skinfaxi - 01.05.2004, Síða 38
FRAMKVÆMDASTJÓRAR ----------------------------------------
Kynning á framkvæmdastjórum héraðssambanda
-héraðssambönd innan UMFÍ eru 19 talsins og 13 ungmennafélög eru með beina aðild
Innan héraðssambandanna eru starfandi tæplega 300 íþrótta- og ungmennafélög og um 450 deildir.
Félagsmenn UMFÍ eru tæplega 70 þúsund. í næstu biöðum fer fram kynning á framkvæmdastjórum
héraðssambanda og ungmennfélaga. Við byrjum á að taka viðtal við Engilbert Olgeirsson,
framkvæmdastjóra HSK og Arngrím Viðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra UÍA.
Nafn: Engilbert Olgeirsson.
Héraðssamband: Héraðssambandið Skarphéðinn,
HSK.
Skrifstofa: Engjavegi 48, Selfossi, sími: 482-1189.
Tölvupóstur: hsk@hsk.is
Heimasíða: http://www.hsk.is
Tölvupóstur framkvæmdastjóra: engilbert@hsk.is
Fjöldi félagsmanna: Samkvæmt síðustu tölum eru þeir
9.288 talsins og fer stöðugt fjölgandi.
Fjöldi félaga: Alls eru 53 félög innan HSK í dag, þ.e. 10
golfklúbbar, 7 hestamannafélög, 1 hnefaleikafélag, 7
íþróttafélög, 1 skotíþróttafélag, 3 knattspyrnufélög og 24
ungmennafélög.
Fjöldi deilda: Sex- aðildarfélög sambandsins eru
deildarskipt og eru 33 deildir starfandi í dag.
Áherslur í starfi: Halda uppi öflugu starfi innan
sambandsins og koma því á framfæri í fjölmiðlum minnst
vikulega.
Næstu verkefni: Fjölmenna með 225 manna keppnislið
HSK á Landsmót UMFI. Síðan tekur við undirbúningur
Íþróttahátíðar HSK, sem haldin verður á Hvolsvelli 24. -
25. júlí nk.
Annað: Það eru ánægjuleg tíðindi að breyta eigi
áherslum varðandi efnistök Skinfaxa og óskar HSK
nýjum ritstjóra velfarnaðar í starfi.
Að lokum: Sjáumst hress á Landsmótinu á Sauðárkróki.
Nafn: Arngrímur Viðar Ásgeirsson
Héraðssamband: Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands, UIA.
Skrifstofa: Kaupvangi 10 Egilsstöðum sími 471-1353.
Fjöldi félagsmanna: um 6000
Fjöldi félaga: 35 og fer fjölgandi.
Fjöldi deilda: Misjafnt milli félaga.
Áherslur í starfi: Sameina krafta þeirra sem vinna að
íþrótta og ungmennamálum til góðra verka. Viðburðir á
vettvangi íþrótta- og mannlífsmála. Leigjum út 300
fermetra sýningatjald fyrir samkomur og hátíðir.
Næstu verkefni: Sumarhátíð UÍA 17.- 18. júlí, draga
saman í skrifstofurekstri og þjónustu vegna þess að
þjónustumiðstöð UMFI er ekki lengur til staðar. Vinna að
fyrirmyndarfélagi ISI meðal félaga á svæðinu og vinna að
framgangi þeirra íþróttagreina sem stundaðar eru í
fjórðungnum. Vinna að framtíðarsýn UÍA til næstu ára.
Annað: Halda þjónustustiginu sem hæstu með sem
minnstum tilkostnaði.
Að lokum: Hér er allt á uppleið á Austurlandi og mikil
jákvæðni í gangi sem UÍA ásamt aðildarfélögum sínum
ætlar að taka þátt í og skapa umhverfi fyrir alla
austfirðinga til metnaðarfulls íþróttastarfs og góðra
samskipta á sviði íþrótta- og ungmennastarfs. Hér er
mikil nýbreytni í skipulagningu íþróttastarfs og mörg
félög til fyrirmyndar varðandi kostnað iðkenda og
skipulag íþróttastarfs í samstarfi íþróttafélög og skóla.
UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll
38