Skinfaxi - 01.05.2005, Page 5
í ferðum mínum til Víkur á síðustu
mánuðum hefur verið hreint að-
dáunarvert að sjá það uppbygging-
arstarf sem þar hefur átt sér stað í
tengslum við Unglingalandsmótið
sem þar verður haldið um verslun-
armannahelgina.Aðstaðan öll er
þar að verða eins og best verður á
kosið og myndu mörg sveitarfélög
vera stott af þeim framkvæmdum
sem eru í gangi þar Það er með
hreinum ólíkindum hvað samfé-
lagið ÍVÍk, sem telur rúmlega 300
íbúa, er búið að leggja af mörkum
til að halda umrætt mót. Allir sem
vettlingi geta valdið hafa unnið
ómetanlegt sjálfboðaliðastarf
og létt undir með framkvæmda-
aðilum. Samheldnin er einstök,
allir leggjast á e'rtt og brosa út að
eyrum. Allir hafa fyllst miklum eld-
móði og fegrað umhverfi sitt og er
óhætt að segja aðVík skarti sínu
fegursta þessa dagana. Bæjarstæði
Víkur er einstakt frá náttúrunnar
hendi og stutt í fjölda staða sem
áhugavert er að skoða.
Það var alveg Ijóst frá upphafi
að framkvæmdaaðilar ætluðu
ekki einungis að halda unglinga-
landsmót, þeir ætluðu að halda
það með reisn. Hvert atriði er
úthugsað í þaula, útsjónarsemi
og skynsemi er í fyrirrúmi í öllum
framkvæmdum. Það hefur nkt mik-
ill metnaður frá byrjun í öllum að-
gerðum og heimamenn hafa verið
staðráðnir í því að halda glæsilegt
mót.Við getum lært margt af und-
irbúningiVíkurbúa og þrátt fyrir
fámennið blasa staðreyndirnar við.
Þar er að rísa glæsileg íþróttaað-
staða og umhverfið þar í kring
er mjög snyrtilegt. Iþróttahús var
risið og nýlokið er framkvæmdum
við sundlaugina. Framkvæmdir
standa nú yfir af fullum krafti við
íþróttaleikvanginn og þegar þeim
er lokið verður þar fyrsta flokks
aðstaða til æfinga og keppni í frjáls-
um íþróttum.
Unglingalandsmótið er
vfmulaus fjölskylduhátfð, en ekki
útihátíð, og því ákjósanlegur kost-
ur fyrir fjölskylduna að vera saman
þar sem unglingar etja kappi í
íþróttum og leikjum í heilbrigðu
umhverfi. Nútímafjölskylda þarf að
finna sérfleiri samverustundir og
um stærstu ferðahelgi sumarsins
gefst kjörið tækifæri-fyrir hana að
vera saman í fögru og skemmti-
legu umhverfi. Ibúar i'Vík eru
frægir fyrir gestrisni og þeir munu
eins og áður taka vel á móti gest-
um Unglingalandsmótsins þar um
verslunarmannahelgina.
íþrótta- 09 fjölshylduhdtið
Unglingalandsmótin eru fjölskyldu-
hátfðir þar sem íþróttir og ungling-
ar eru í fyrirrúmi. Lögð er áhersla
á að öll fjölskyldan komi saman og
eigi góðar minningar ÍVÍk. Það þarf
að sjálfsögðu ekki að geta þess að
unglingalandsmótin eru vímuefna-
lausar hátíðir enda eiga vímuefni
hvers konar enga samleið með
þeim. Unglingalandsmótin hafa
hvarvetna vakið mikla athygli og
þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt
hafa verið öðrum til mikillar fyrir-
myndar með allri framkomu hvort
sem er í keppi|i eða leik.
íþróttakeppni: Keppt er í 9
greinum; Frjálsum íþróttum, fitness,
körfubolta, knattspyrnu, sundi,
glímu, golfi, hestaíþróttum og skák.
Öll keppnin fer fram ÍVík í Mýrdal.
Hæfileikakeppni: Það er ekki
einungis keppt í hefðbundnum
iþróttagreinum á Unglingalands-
mótinu heldur er hæfileikakeppnin
stór þáttur. Þar gefst krökkum á
aldrinum I I -18 ára tækifæri til
að láta Ijós sitt skína. Keppninni
verður skipt upp í þrjá flokka;
Hljómsveitakeppni, söngkeppni og
opinn flokk.
Nýjar greinar/jaðargreinar:
Á Unglingalandsmótinu i'Vík verð-
ur haldið áfram á sömu braut og 1'
fyrra og kynntar nýjar greinar sem
eru ekki eins mikið stundaðar og
hefðbundnar keppnisgreinar Að
þessu sinni verða freestyle, kassa-
klifur bogfimi og leikhússport. Öll-
um þátttakendum á mótinu gefst
kostur á að prófa þessar greinar
og taka þátt í þeim.
Afþreying: Fjölbreytt afþreying
verður alla dagana á mótssvæðinu
fyrir unga sem eldri. Sem dæmi
má nefna göngukeppni fjölskyld-
unnar; ýmsa leiki og leiktæki auk
gönguferða umVík með leiðsögn.
Tjaldsvæði:Tjaldsvæðið er að-
eins spölkorn frá keppnissvæðun-
um og því hægt að leggja bílnum
alla helgina. Ekkert gjald er tekið
fyrir gistingu á tjaldsvæðinu okkar
og gildir það fýrir alla.
Gisting keppenda:Tjaldgisting
er sú gisting sem gengið er út frá
hjá keppendum.
bátttökuréttur: Þátttökurétt
hafa öll börn og unglingar á
aldrinum 11-18 ára. Keppt er í ald-
ursflokkum og er skiptingin aðeins
misjöfn milli íþróttagreina.
Aðstaða: Aðstaða ÍVÍk verður
hin glæsilegasta þegar flautað
verðurtil leiks. 16 m sundlaug er á
staðnum og nýtt íþróttahús. Knatt-
spyrnuvellir verða í nágrenni tjald-
svæðisins og verið er að vinna við
frjálsíþróttaaðstöðuna en þar
verða 400 m hlaupabraut og
stökk- og kastsvæði lögð tartani.
Golfvöllurinn, sem er mjög glæsi-
legur; er skammt undan og eins
verður keppni í hestaíþróttum
í nágrenni við tjaldsvæðið. Skák-
keppnin og glímukeppnin verður
einnig íVík.
Þátttökugjald: Keppnisgjald er
kn 4.500 - fyrir einstakling.
Ritstjóri:
Jón Kristján Sigurðsson,
jonkristjan@umfi.is
Ljósmyndir:
Sigurjón Ragnar.Jón Kristján
Sigurðsson.Jónas Erlendsson o.fl.
Umbrot og hönnun:
Jóhann Páll Kristbjörnsson.
Prentun:
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Prófarkalestur:
Helgi Magnússon.
Auglýsingar:
PSN samskipti ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn B.Jónsson, formaður UMFI.
Ritstjórn: Anna R. Möller, Sigur-
laug Ragnarsdóttin Birgir Gunn-
laugsson, Ester Jónsdóttir.
Þjónustumiðstöð UMFÍ:
Fellsmúla 26 - 108 Reykjavik.
Sími 568-2929.
Netfang: umfi@umfi.is.
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn:Sæmundur Runólfs-
son framkvæmdastjóri.Valdimar
Gunnarsson landsfulltrúi, Ómar
Bragi Stefánsson landsfulltrúi með
aðsetur á Sauðárkróki, Berglind
Hreiðarsdóttir rrtari, Þóra Krist-
insdóttir bókhald.Jón Kristján
Sigurðsson ritstjóri Skinfaxa og
kynningar- og upplýsingafulltrúi,
Svava Björnsdóttir Blátt áfram.
w
141653
Skinfaxi er prentaður á umhverfisvænan pappír
SKINFAXI - Qefið úl samíleytt síðnn 1909
5