Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2005, Side 6

Skinfaxi - 01.05.2005, Side 6
/ Framkvæmdir við íþróttavöllinn ÍVÍk stóðu yfir af fullum kraftí þegar blaðið var þar á ferð. Slökkvibifreið staðarins kom í góðar þarfir og vökvaði hlaupabrautina. Nokkrum dögum síðar hófust malbikunarframkvæmdir en þeim er nú lokið. „Mérfinnst allur undirbúningur hjá framkvæmdaaðilum íVík hafa tekist afar vel og það er raunar al- veg ótrúlegt að horfa á alla þessa uppbyggingu sem á sér þar stað. Það er Ijóst að öll keppnissvæði verða vel úr garði gerð og mér finnst eiginlega að þeir aðilar sem hafa komið að þessu séu hálfgert kraftaverkafólkVið áætlum að um eitt þúsund keppendur komi til mótsins en við vitum það ekki ná- kvæmlega fyrr en skráningu lýkur Sagan hefur sýnt okkur að aðsókn- in verður meiri með hverju árinu sem li'ður og á því verður engin breyting því að við finnum fyrir miklum meðbyr Allur undirbúning- ur hefur gengið samkvæmt áætlun, dagskrá og tímasetningar liggja til- búnar á borðinu og öll mannvirki eru að verða tilbúin. Menn vinna þessa dagana hörðum höndum á frjálsíþróttavellinum við lagningu gerviefnis á hlaupabrautir Þegar þessu verki lýkur verður risin þar frábær aðstaða," sagði Omar Bragi Stefánsson, framkvæmda- stjóri Unglingalandsmótsins ÍVAt - Þú varst einnig framkvæmdastjóri mótsins á Sauðárkróki í fýrra. Kemur það ekki að góðum notum fyrir mótíð íVík? ,,Það gerir það og að sjálfsögðu notum við þá reynslu sem fyrir er í hreyfingunni við framkvæmd þessa móts. Það komu inn ung- lingalandsmótsnefndina fulltrúar frá UMFI og ég sem framkvæmda- stjóri með ákveðna reynslu.Við miðlum síðan þessari reynslu til þeirra sem i' nefndinni eru og heimafólks.Við ætlumst svo til að þessi kunnátta varðveitist heima i' héraði svo að heimamenn geti haldið sín mót enn glæsilegri en þeir hafa gert fram til þessa.Við höfum i' gegnum árin verið að byggja upp ákveðinn lageraf lands- mótsvarningi sem er fluttur milli mótsstaða á hverjum tíma svo að ekki þarf að fjármagna og festa kaup á þessum hlutum á hverjum stað fyrir sig. Þetta skiptir miklu máli að mínu mati," segir Ómar Bragi. - Nú er verið að halda unglinga- landsmót í 8. skipti. Hvaða gildi hafa þessi mót i huga þínum? „Það sýnir sig að þau hafa alveg ómetanlegt gildi. Það kemur best í Ijós i' aðsókninni á mótin og heilu fjölskyldumar koma aftur og aftur Unglingalandsmótin eru gríðarlega góður valkostur; það er auðvitað fullt af ffnum útihátíðum um versl- unarmannahelgina en landsmótin hafa ákveðna sérstöðu þar sem unglingamir I I -18 ára eru í fyrir- rúmi. Þeir hafa fýrst og si'ðast mjög heilbrigða afþneyingu á daginn og á kvöldin hafa þeir kvöldvökur en öllu er lokið klukkan 23.30 og þá ætlumst við til að okkar dagskrá sé lokið. Snemma. næsta morgun tekur svo við skemmtileg keppni þannig að við erum ekki á neinu næturgöltri.Við erum fyrst og fremst með íþróttamót og fjöl- skylduskemmtun þar sem við eig- um góða stund saman, skemmtum sjálfum okkur og hvert öðru." - Nú styttíst óðum írhótíð. Ertu ekki orðinn spenntur að sjá mótið verða að veruleika? „Já, ég hlakka virkilega til þessa móts og það hefur verið sérlega gaman að vinna með fólkinu í Vík. Eg hlakka því verulega til að uppskera það sem við erum búin að sá til og vinna að undanfama mánuði," sagði Ómar Bragi Stefánsson.framkvæmdastjóri Ung- lingalandsmótsins ÍVik.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.