Skinfaxi - 01.05.2005, Síða 16
Sandra Brá Jóhannsdóttir er verk-
efnisstjóri Unglingalandsmótsins í
Vk Sandra hóf að starfa að und-
irbúningi mótsins um síðustu ára-
mót, í upphafi í þjónustumiðstöð
UMFI í Reykjavík en á vormán-
uðum flutti hún sig um set austur
ÍVík þar sem skrifstofa var opnuð
í tengslum við mótið sjálft.
„Það er engum vafa undirorp-
ið að það felst í þvi' mikill undir-
búningur að halda svona stórt
mót. Það þarf að skipuleggja svæð-
ið allt nánast reit fyrir reit Hvað
skemmtunina sjálfa varðar þarf að
útvega hljómsveitir með löngum
fyrirvara og safna sjálfboðaliðum
þannig að það er í mörg horn að
li'ta. Hljómsveitirnar; sem spila á
mótinu, verða Á móti sól, Isafold,
Svitabandið og á sunnudagskvöld-
inu spila unglingahljómsveitir
héðan af svæðinu. Það sama kvöld
verður mótinu slitið formlega
með glæsilegri flugeldasýningu.
Jaðargreinar mótsins verða fjóran
leikhússport, kassaklifur freestyle
og bogfimi sem verður skipt á
laugardaginn og sunnudaginn,"
sagði Sandra Brá.
- Hvað stendur fólki til boða í dægra-
styttingu fýrír utan keppnina sjálfa?
,,Það er heilmargt sem fólki stend-
ur til boða og má í því sambandi
nefna göngukeppni fjölskyldunnar;
gönguferðir með leiðsögn og síð-
an að sjálfsögðu þessar jaðargrein-
ar sem krakkarnir geta spreytt sig
á. Þá verður settur upp leiktækja-
garður og ýmsir leikir verða að
auki í gangi. Samstarfsaðilar okkar
verða með kynningar að ýmsu
tagi þannig að það verður nóg
um að vera þá daga sem mótið
stendur yfir. Allir ættu að hafa nóg
fyrir stafni í dægrastyttingu og eng-
um ætti að leiðast sem leggur leið
sína til Víkur þessa helgi."
- Hefur það ekki veríð spennandi
fýrir þig að vinna í undirbúningi fyrír
Unglingalandsmótið ÍVÍk?
„Það hefur verið virkilega gaman
og þessi vinna gefandi. Það hefur
líka verið rosalega spennandi að
sjá mótið sjálft smám saman fæð-
ast ef svo mætti að orði komast.
Sandra Brá Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri Unglingalandsmótsins ÍVIk, á
skrifstofunni sem opnuð var í tengslum vicI mótið á vormánuðum.
Ég hlakka mikið til og er í raun far-
in að telja niður dagana. Það hefur
verið virkilega uppörvandi að
sjá hvað allt fólkið er jákvætt og
viðmótið er þægilegt á öllum svið-
um. Það er mikil tilhlökkun hér á
svæðinu enda hafa allir lagst á eitt,
rétt hjálparhönd og létt almennt
allan undirbúning til muna. Það
er samt alveg ótrúlegt hvað lítið
sveitarfélag getur ráðist i' og leyst
málin með frábærri skipulagningu
eins og raun ber vitni. Hér ÍVÍk á
sér stað uppbygging til framtíðai;"
sagði Sandra Brá.
Hún var þess fullviss að kepp-
endur og gestir ættu eftir að eiga
saman góða helgi saman á staðn- i
um. Það verður allt til alls ÍVik og
góður staður fyrir fjölskylduna að
verja tímanum saman.
Bjöm Ægír Hjörleifsson, lögreglumaftur 09 sápnostjóri I hörfutrotta:
Mótið ó rftir oó verðoVíhurbúum tll sónio
Björn Ægir Hjörleifsson, lögreglu-
maður ÍVÍk og sérgreinastjóri í
körfuknattleik á mótinu.
„Það er í mörg horn að líta en
undirbúningur fyrir svona mót
er ekki hristur sisvona fram úr
erminni. Það er hægt að fullyrða
að vel verði staðið að mótinu,
framkvæmdin öll er í góðum
málum og nú er bara að vona að
veðurguðirnirverði okkur hliðholl-
ir meðan á mótinu stendur" segir
Bjöm Ægir Hjörleifsson, sérgreina-
stjóri 1' körfubolta á Unglingalands-
mótinu og lögreglumaður i'Vík
Hann er einnig stjórnarmaður
í USVS sem er framkvæmdaað-
ili Unglingalandsmótsins 2005.
Björn Ægir hefur yfir að ráða
góðri reynslu f körfuboltanum en
si'ðustu tvö árin hefur hann þjálfað
lið Drangs úrVík sem leikur í I.
deild. Hann segir körfuboltann
nokkuð umfangsmikinn á mótinu
eins og áður Á mótinu á Sauð-
árkróki f fyrra voru leikirnir 60
en Sigurður telur að þeir verði
ekki færri í ár Fjölnir hefur verið
fjölmennasta liðið síðustu ár en
líka hafa Breiðablik og lið afVest-
Ijörðum verið fjölmenn. Að sögn
Bjöm Ægis hafa frjálsar íþróttir og
knattspyrna verið stórar greinar á
landsmóti en körfuboltinn er sífellt
að vinna á,
„Það hefurverið mikill dugn-
aður i' fólki almennt að koma
þessu móti i' kring og nágrannar
okkar hafa verið reiðubúnir að
leggja fram hjálparhönd. Það
hjálpast allir að og eru einbeittir
að þetta mótshald verði staðnum
til sóma. Uppbygging í íþrótta-
mannvirkjum á eftir að verðaVik
mikil lyftistöng og það er reyndar
með ólíkindum hvað lítill staður
getur gert. Það bara sýnir hverju
hægt er að koma í verk þegar allir
leggjast á eitt. I framtíðinni verður
hægt að halda hér meistaramót i'
frjálsum íþróttum sem er frábært
^ SKINfAXI - tímnrit Ungmennafélags íslands
fyrir ungviðið hér i' sýslunni," segir
Bjöm Ægir
- Hvernig verður umferðarmálum
hér háttað en töluverð umferð er í
gegnum bæinn dags daglega?
„Umferðarhraðinn verðurtekinn
eitthvað niður í gegnum þorpið.
Síðan á eftir að skoða betur hvort
einhverjar lokanir eða einstefnur
verði inni í bænum. Einnig verður
girt meðfram þjóðveginum þannig
að ökumenn geta ekki lagt hvar
sem er og tafið þannig umferð
sem er hér nóg fyrir Ef veðrið
verður gott þarf fólk ekkert að
hreyfa bíla enda fer mótið fram á
litlu svæði og stutt að fara á milli
staða."
Björn Ægir segir að búið sé
að huga að undirbúningi í öllum
hornum og það hafi verið mjög
gaman að koma að þessu verk-
efni. Það er ríkir mikil eftirvænting
á meðal bæjarbúa sem taka munu
keppendum og gestum með hlý-
hug og opnum örmum.