Skinfaxi - 01.05.2005, Page 22
Verkefnisstjóm Göngum um Island. Frá vinstri Ómar Bragi Stefánsson, Ásdís
Helga Bjamadóttir, Alda Þrastardóttir og Einarjón Geirsson.
Göngum um ísland er landsverk-
efni UMFÍ sem sett var á laggimar
sumarið 2002.Verkefnið er unnið
í samstarfi við ungmennafélög um
land alft, ferðaþjónustuaðila og
sveitarfélög. Island hefur að geyma
mikinn fjölda gönguleiða og hafa
nú verið valdar út gönguleiðir í
hverju byggðarlagi. Leiðabók með
tæplega 300 gönguleiðum hefur
fengist gefins um land allt og f
júní verður gefin út ný leiðabók I
leiðabókinni Göngum um Island
er lögð áhersla á stuttar; stikaðar
og aðgengilegar gönguleiðir.
Fjölskyldan á fjallið er einn
liður í verkefninu. Settir hafa verið
upp póstkassar með gestabókum
á 20 fjöllum víðs vegar um landið
en öll þessi fjöll eiga það sam-
eiginlegt að tiftölulega er létt að
ganga á þau. Markmiðið er að fá
fjölskyldur í létta fjallgönguferð og
stuðla þannig að aukinni samveru,
útivist og um leið likamsrækt inn-
an fjölskyldunnar
A heimasíðunni Gangais
er að finna upplýsingar um 900
gönguleiðir á íslandi ásamt áhuga-
verðum fróðleik fýrir göngu- og
útivistarfólkVefurinn gangais er
samstarfsverkefni Ungmennafélags
Islands, Ferðamálaráðs Islands og
Landmælinga íslands.
I verkefnisstjóm Göngum um
ísland eru Ásdís Helga Bjamadótt-
in UMSB/stjóm UMFI, Einar Jón
Geirsson, UDN/stjóm UMFI.AIda
Þrastardóttir; Ferðamálaráði, og
Ómar Bragi Stefánsson, landsfull-
trúi UMFÍ.
Ásdís H. Bjarnadóttir rrtari
UMFI, er formaður verkefnis-
stjómar Göngum um Island. bað
lá beint við að spyrja hana hvert
hefði verið upphaf þessa verkefnís.
„Verkefnið var upphaflega
þróað f samvinnu við aðila innan
Ungmenna- og iþróttasambands
Austurlands (UÍA), og því stýrt
þaðan um tíma. Þriggja manna
verkefnisstjórn stýrir verkefninu
með fulltrúum úr hreyfingunni
sem og frá Ferðamálaráði, auk
landsfulltrúa UMFÍ.Verkefnið hafði
og hefur það að meginmarkmiði
að hvetja almenning til útivistar
og kynna þær merktu gönguleið-
ir sem er að finna um allt land.
Ábendingar um gönguleiðir hafa
komið frá einstaklingum, aðildarfé-
lögum UMFI, ferðamálasamtökum
og ýmsum öðrum. Allar leiðimar
eru kynntar á heimasíðunni ganga.
is og þar er einnig að finna kort af
lengri gönguleiðum. Styttri leiðim-
ar eru kynntar í svokallaðri Leiða-
bók - Göngum um ísland sem
hefur verið gefin út og mun koma
uppfænð nú í júni'. Leiðabókin mun
liggja frammi fyrir almenning á
Oli'sstöðvunum ásamt upplýsinga-
miðstöðvum ferðamanna"
- Hefur gönguleiðum fjölgað með
árunum?
„Gönguleiðunum hefur fjölgað
jafnt og þétt I upphafi voru þær
um 170 en em nú að nálgast 300.
Mikil vakning hefúr verið meðal
fólks og ýmsir aðilar eru famir að
merkja gönguleiðir. Það eftt og sér
hefur vakið athygli ferðamanna á
svæðunum sem og lagt gmnn að
bertri umgengni við landið. Gera
má ráð fyrir að enn fleiri leiðir
bætist við á næstu ámm og hvetj-
um við alla sem eru að merkja
leiðirtil að tilkynna þær inn á
heimasíðuna gangais!”
- Hvað eru þátttakendumír margir
til þessa?
„Við höfum ekki tölu á þvi' en við
höfum prentað Leiðabókinatvíveg-
is í 40.000 eintökum og þau hafa
runnið út eins og hertar lummur
Við vitum þó að um 12.000
manns hafa skráð sig í gestabækur
sem er að finna á um 23 fjöllum
i' tengslum við verkefnið. Fjöllin
eru einnig í Leiðabókinni en það
er sérstakt verkefni sem nefnist
Fjölskyldan á fjallið.Við gemm því
ráð fýrir að almenningur kannist
nú vel við verkefnið og fólk sé
virkir þátttakendur f þvi'. Geta má
þess að um 7000 heimsóknir hafa
verið á viku á heimasíðunni ganga
is þannig að það styður þá reynslu
okkar að landsmenn séu ánægðir
með framtakið og séu virkir í verk-
efninu ekki bara á sumrin heldur
alft árið - sem er frábært"
- Er er ekki fólk á öllum aldri að
taka þátt?
„Fólkið er á öllum aldri. Miðað
við þá sem hafa skrifað sig i'
gestabækurnar em börn niður í
um fjögurra mánaða tekin með á
bakinu upp á fjöllin. Öldungamir
hafa ekki heldur látið sig vanta
þangað upp. Því miður em þó fáar
leiðir ennþá sem em aðgengilegar
hreyfihömluðum en við vonum
að þeim fjölgi og hvetjum eindneg-
ið til þess að slíkum stígum verði
fjölgað á næstu mánuðum.Verkefn-
ið er sem sé fyrir alla göngufera
og þátttakan algjörlega ókeypis
- bara nálgast Leiðabókina, kikja á
gangais og drffa sig af stað,” sagði
Ásdís H. Bjamadóttir
21
SHINFAXI - tímorit Ungmennaíélogs ítlonds