Skinfaxi - 01.12.2006, Síða 4
Evrópumótið ífimleikum íOstrava ííékklandi:
Frábær árangur hjá
Gerplustúlkum
Gerplustúlkur stóðu sig með eindæmum vel á Evrópu-
mótinu í hópfimleikum sem lauk í Ostrava íTékklandi
5. nóvember sl. Stúlkurnar lentu í öðru sæti og er þetta
besti árangur hjá íslensku hópfimleikaliði. Sænska liðið
Stockholm Top Gymnast varð Evrópumeistari með 26,15
stig. Gerpla hlaut 25,25 stig í öðru sæti og í þriðja sæti
lenti danska liðið Slagelse GF með 25,10 stig.
Árangur Gerplustúlkna er enn ein stað-
festingin á velgengni fimleika hér á landi
á síðustu árum. Árangur þeirra vakti mikla
athygli ytra og er mikil lyftistöng fyrirfim-
leika í heild sinni á (slandi.
„Við vorum allar afar stoltar af árangri
liðsins á Evrópumótinu í Ostrava. Við lögð-
um upp með að hafa gaman að því sem
við værum að gera. Við vissum hvað við
gætum og ef við værum heppnar gætum
við allt eins farið mjög langt. Liðið er sterkt
og hafði alla burði en það má ekkert út af
bregða. Einbeitingin og viss heppni verður
að vera til staðar og segja má að þessir
þættir hafi verið með okkur á Evrópumót-
inu," sagði Ása Inga Þorsteinsdóttir, ein af
þjálfurum Gerplunnar sem varð í öðru
sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum fyrir
skemmstu.
Ása Inga var sjálf þátttakandi í þessu liði
en hætti iðkun á sl. vori og gerðist þjálfari
liðsins. Hún er 24 ára gömul og hefur verið
þjálfari hjá Gerplu í níu ár. Ása Inga sagði
það hafa verið sérlega gaman að fylgjast
með stelpunum á mótinu. Gleðin skein úr
hverju andliti og þær voru staðráðnar í því
að komast eins langt og kostur væri. Ása
segir flestar stelpurnar hafa æft fimleika frá
barnsaldri, verið fyrst í áhaldafimleikum og
síðan fært sig yfir í hópfimleikana.
„Það skiptir afar miklu máli að halda
stelpum við efnið en hópfimleikarnir gefa
einmitt færi á því. Þetta er hópvinna þar
sem skiptir máli að vinna saman/'sagði Ása
Inga.
- Hvað er fram undan hjá þessum
stelpum?
„Það er Norðurlandamótið í lok apríl.
Þangað verður farið með sama hugarfari
og á Evrópumótið. Við verðum alltaf betri
og betri og það verður spennandi að vinna
með þetta lið áfram. Við stefnum að því að
fara með tvö lið á Norðurlandamótið en
þetta mót er eitt af þeim sterkari sem hald-
in eru. Lið frá Norðurlöndunum eru með
bestu liðunum í þessari íþrótt."
- Góður árangur hjá íslensku fimleikafólki
hlýtur að gefa byr í seglin og vekja áhuga
þeirra yngri?
„Tvímælalaust hlýtur góður árangur að
þjappa okkur saman og vekja áhuga hjá
ungum krökkum. Þegar þeir eldri og
reyndari eru að standa sig vel þá rýkur
áhuginn uþp hjá þeim yngri. Það skiptir
miklu að þeir yngri eigi fyrirmyndir," sagði
Ása Inga Þorsteinsdóttir.
BAKKAVOR
www.spm.is /MMk/m w mm
ARKITEKTAR BOLHOLTI8
4 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands