Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 13
Fjölskyldan á fjallið - Kvöldgöngur UMSB: Á leið upp Brekkufjall. Göngumenn uppá Háahnjúk á Akrafjalli. m hátt og hefur gönguleiðin ver- ið stikuð frá bænum Hraunsnefi. Á leiðinni upp fræddi Jóhann Harðarson, ferðaþjónustubóndi á Hraunsnefi, göngumenn um staðhætti, m.a. um álfa og huldu- fólk sem býr í steinum og klett- um við fjallið. Göngumenn voru um þrjá tíma upp á tindinn og niður aftur með góðu stoppi uppi á fjallinu þar sem notið var útsýnisins, en þaðan er mikið útsýni yfir Borgarfjarðarhérað. Farið var með gestabók á fjallið. Göngumenn voru 24, sá elsti 76 ára og sá yngsti 7 ára. Að kvöldi 22. júní var gengið á Brekkufjall í Andakíl undir leið- sögn Péturs Jónssonar á Hvann- eyri en hann er frá Innri-Skelja- brekku og þaulkunnugur stað- háttum. Gengið var frá Ytri- Skeljabrekku og er nokkuð bratt að ganga fyrsta spölinn en þegar upp á fjallið er komið er gangan auðveld. Frá Brekkufjalli er útsýni yfir Skorradal, Andakíl, Borgarnes og Mýrar. Göngumenn voru 44. Næstvarfarið íhellaferð ÍVÍð- gelmi að kvöldi 6. júlí. Hellirinn var skoðaður með leiðsögn ferðaþjónustubóndans í Fljóts- tungu, Bjarna H. Johansen. Víð- gelmirereinn rúmmálsmesti hraunhellir í heimi, 148.000 rúm- metrarog 1585 m langur. ( hellin- um eru fallegar ísmyndanir og er innar dregur einnig dropasteins- myndanir. Göngumenn skoðuðu aðeins brot af hellinum þar sem mikið meiri tíma þarf en eina kvöldstund til að skoða hellinn ef vel á að vera. Eftir hellaferðina var gengið yfir hálsinn heim að Fljótstungu. Þar nutu göngu- menn veitinga hjá húsráðendum eftir göngu. Göngumenn voru 39 talsins. Kvöldið 20. júlí var gengið á Akrafjall í einu besta veðri sumar- sins og í frábæru skyggni. Safnast var saman við Berjadalsá og það- an gengið á Háahnjúk sem er 555 m hár. Leiðsögumenn voru hjónin Jóhannes Guðjónsson og Guðrún Guðmundsdóttir í Efri- Hrepp. Jóhannes er Skagamaður og búinn að hlaupa margarferðir upp á fjallið og því þaulkunnug- ur gönguleiðum þar. Guðrún sagði ýmsar sagnir er tengjast fjallinu. Uppi á Háahnjúk er fag- urt útsýni til allra átta, yfir í Hval- fjörð, til Reykjavíkur, yfir Akranes, Mýrar og út á Snæfellsnes. Göngumenn voru 24. Að kvöldi 3. ágúst, í roki og rigningu, var Eldborg í Kolbeins- staðahreppi gengin. Göngu- menn söfnuðust saman heima á Snorrastöðum og þar hitti hóp- urinn Hauk Sveinbjörnsson, bónda á Snorrastöðum, sem fylgdi hópnum á Eldborgina. Haukur fræddi göngumenn um náttúru og sögu svæðisins en Haukur er fróður um staðhætti og mikill sagnaþulur. Að ganga á Eldborg er auðvelt, gengið er eftir hrauninu og þegar upp á Eldborg er komið er gott útsýni yfir Kolbeinstaðahrepp, Eyja- hrepp og Mýrar. Göngumenn voru 16. Einkunnir í Borgarnesi eru útivistarsvæði Borgnesinga en þangað var farið að kvöldi 17. ágúst. Einkunnir eru sérkennileg- ur og fallegur staður vestast í Hamarslandi.Árið 1951 sam- þykkti hreppsnefnd Borgarnes- hrepps að girða þar allstóran blett og afhenti hann síðan skóg- ræktarfélaginu Ösp sem þá var stofnað. Þar hefur síðan verið gróðursett mikið af plöntum sem hafa dafnað vel. Á síðari árum he- fur sveitarfélagið séð um rekst- ur og framkvæmdir og hefur þar verið talsvert unnið til að gera svæðið að ákjósanlegu útivistar- svæði. Leiðin að svæðinu liggur frá hesthúsahverfinu í Borgar- nesi. Leiðsögumenn voru Finnur Torfi Hjörleifsson og Hilmar Ara- son. Alls mættu 11 göngumenn. Síðasta kvöldganga sumars- ins var farin 31. ágúst og þá var gengið á Litla-Skarðsfjall í Staf- holtstungum. Gengið var frá hlaðinu á bænum Litla-Skarði. Leiðsögumaður var Birgir Hauks- son skógarvörður en Litla-Skarð er í eigu Skógræktar ríkisins. All- mikið hefur verið plantað á jörð- inni og gengu menn fyrst í stað eftir skógarstíg. Auðveld ganga er á Litla-Skarðsfjall. Á leiðinni upp var mikið af berjum og gáfu göngumenn sér góðan tíma til að komast á fjallið. Þar sem þetta varsíðasta kvöldganga sumars- ins var Magnús Guðbjarnason frá Straumfirði tilnefndur göngu- garpur UMSB 2006 en hann var sá eini sem tókst að mæta í allar kvöldgöngurnar. Fékk hann að launum bókina íslensk fjöll - gönguleiðir á 151 tind - eftir Ara Trausta Guðmundsson og Pétur Þorleifsson. Var honum afhent bókin uppi á fjallinu og göngumenn lýstu því yfir að þeir væru tilbúnir að fylgja honum á alla þá tinda sem fjallað er um í bókinni. Göngumenn voru 12. Laugardaginn 21. október gengu 11 félagarfrá UMSB eftir gestabókinni sem farið var með 8. júní á Hraunsnefsöxl. Alls höfðu 154 skrifað nafn sitt í gestabókina yfir sumarið. Að lokinni göngu eftir bókinni var komið við í Hraunsnefi og fengu göngumenn sér kakó og epla- köku. Eins og sjá rná eru Borgfirð- ingar duglegir við að ganga um sitt fallega hérað.Til viðbótar þessum göngum eru ýmsir gönguhópar í héraðinu sem hittast reglulega og ganga mis- langar og erfiðar göngur. Ganga um fjöll og firnindi gefur manni bæði andlegan og líkamlegan styrk og ekki spillir að vera með í góðum gönguhópi og það á við um kvöldgöngur UMSB. Guðmundur Sigurðsson tók mynd- irnarsem birtasthéráopnunni. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.