Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 26
Flott án fíknar: 4 Fjölmennur kynningarfundur í Smáralind Fjölmennur kynningarfundur í Smáralind Kynning á verkefninu Flottán fíknarfór fram ÍVetrargarðinum í Smáralind fyrir skömmu en samhliða kynningunni var haldinn blaðamannafundur sem fjölmiðlar sóttu vel. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, flutti ávarp en Guðrún Snorradót- tir, verkefnisstjóri, og Bjöm B. Bjarndal, formaður UMFÍ, kynntu verkefnið. Kynnir á fundinum var Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona. Hljómsveitin The black roses of poetry kom fram og sömuleiðis söngkonan Ólöf Jara S. Valgeirsdóttir. Verkefnið er styrkt af Ungmennafélagi (slands. Nokkur hundruð krakkar komu á fund- inn ÍVetrargarðinum og fengu þau meðal annars afhentan sérhannaðan bol sem búinn hefur verið til fyrir verkefnið. Þessa dagana er verið að stofna níunda klúbbinn úr jafnmörgum grunnskólum vítt og breitt um landið. Að sögn Guðrúnar Snorradóttur gekk fundurinn mjög vel og ríkir mikil bjartsýni með þetta verkefni sem unnið er í sam- vinnu við Lýðheilsustöð. „Ég tel það skipta sköpum að verk- efnið sé komið til Ungmennafélags íslands en það auðveldar kynningu og öflun fjármagns," sagði Guðrún Snorradóttir. Flott án fíknar er verkefni sem tekur til þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Verkefnið byggist á samningsbundnu klúbbastarfi og við- burðadagskrá þarsem unglingar skemmta sér saman á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt. Flottán fíknarer íslensk hugmynd sem verið hefur í þróun í fjögur ár í Lindaskóla í Kópavogi og reynst vel. Ungmennafélag íslands hefur tekið að sér verkefnastjórn og kynningarstörf í þeim tilgangi að allir unglingar landsins geti notið góðs af. Verkefnið er unnið í samvinnu við Lýð- heilsustöð sem styrkir það fjárhagslega og Þórólf Þórlindsson, prófessor við Háskóla fslands, sem mun veita ráðgjöf í sambandi við mat á verkefninu og áframhaldandi þróun. Hugmyndafræði klúbbsins Flottán fíknar snýst um að koma í veg fyrir að ungl- ingar byrji að fikta við tóbak og áfengi og styrkja þá í þeirri ákvörðun. Markmiðið með klúbþastarfinu er að unglingum finnist eftirsóknarvert að eyða æskunni á heilbrigðan hátt og án tóbaks og vímu- efna. Rannsóknir sýna að áhrif jafningjahóps- ins eru mikil í lífi unglinga og því skiptir miklu máli að ungir sem aldnir standi sam- an um að skapa heilbrigða unglingamenn- ingu. Ungmennafélag (slands hvetur alla til að virða landslög um notkun tóbaks og áfengis og gera unglingsárin að góðum minningum fullorðinsáranna. Ungmennafélag íslands býður öllum sem áhuga hafa á að kynna sér klúbba- starfið Flott án fíknar að fá kynningu hvar sem þeir eru á landinu. Allir sem starfa með unglingum geta stofnað klúbb og er verkefnið bæði aðgengilegt og auðvelt í framkvæmd. Á næstu mánuðum mun verða haft samband og boðið til frekari kynningar en öllum áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu UMFÍ, i síma 568-2929. 26 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.