Skinfaxi - 01.12.2006, Side 10
Sambandsráðsfundurá Flúðum:
Gagnlegur sambandsráðsfundur
sambandsráðsfundur Ungmennafélags
íslands var haldinn á Flúðum laugardag-
inn 28. október sl.Yfir 50 þingfulltrúar
sóttu fundinn sem var afar gagnlegur og
skilaði miklu verki. Fjörugar umræður
spunnust um ýmis mál en fundinum lauk um kvöldmatar-
leytið á laugardeginum. Fundir sem þessi eru haldnir annað
hvert ár. Kynnt voru m.a. drög að 25. Landsmóti UMFl sem
haldið verður í Kópavogi 5.-8. júlí 2007. Auk hefðbundinna
keppnisgreina er verið að finna ýmsar keppnisgreinar sem
henta munu follorðnum, unglingum og börnum. Einnig
verða ýmsar sýningar í gangi, meðal annars afmælissýnin
UMFI’ í Gerðarsafni, en UMFI’ verður 100 ára 2. ágúst á
næsta ári. Heimasíða Landsmótsins er www.umsk/lands-
mot. Húsnæðismál hreyfingarinnar voru í brennidepli en
stefnt er að byggingu nýrra höfuðstöðva. Málin voru kynnt
fundarmönnum en nánari ákvörðun um framhaldið ætti að
liggja fyrir áramót. Jón M. ívarsson, sem ritar sögu UMFÍ í
tengslum við 100 ára afmælið á næsta ári, kynnti á fundin-
um bókina sem er í smíðum. Hann las kafla úr bókinni á
fundinum, fundarmönum til mikilla ánægju. Ragnhildur
Einarsdóttir, formaður USÚ, kynnti einnig á fundinum 10.
Unglingalandsmótið sem haldið verður á Höfn í Hornafirði
um verslunarmannahelgina. Ragnheiður fór yfir undirbún-
ing mótsins sem hafinn er á fullum krafti og miðar. UMFI’
hélt, í samvinnu við menntamálaráðuneytið, námskeiðið
Verndum börnin okkar, sem fjallaði um hvernig bregðast á
við grun um vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum og
unglingum. Umsjón með námskeiðinu höfðu Ólöf
Ásta Farestveit og Þorbjörg Sveinsdóttir.
ÖSSUR
10 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands