Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 20
Stunda saman nám viðíýðháskóla
C
66
S0NDERBORG
Vilhjálmur Þór Jónsson
er 22 ára gamall Keflvíkingur sem hafði um nokkurn
tíma reynt án árangurs að komast að í skóla sem hent-
aði honum. Sökum andlegrar fötlunar sinnar kom
Vilhjálmur alls staðar að lokuðum dyrum þangað til
móður hans, Brynju Sigfúsdóttur, var bent á að í gegn-
um Ungmennafélag íslands væri möguleiki á að kom-
ast að á íþróttalýðháskóla í Danmörku. Brynja setti sig
í samband við UMFÍ. Möguleikarnir voru skoðaðir og
eftir eftirgrennslan var íþróttalýðháskólinn í Sönder-
borg tilbúinn að taka á móti Vilhjálmi ef liðveitandi
fengist með honum sem yrði Vilhjálmi til halds og
trausts. UMFf auglýsti í kjölfarið eftir liðveitanda og
ekki leið á löngu áður en Karl F. Jörgen Jóhannsson
lýsti áhuga að vinna með Vilhjálmi í Sönderborg og
samhliða því stunda nám við skólann. Þeir félagar
héldu síðan til Danmerkur í ágúst sl.
Þetta var í fyrsta skipti sem íþróttalýðháskólinn í
Sönderborg tók inn nemanda sem átti við andlega
fötlun að stríða. Þetta var því tilraunaverkefni sem
skólayfirvöldum í Sönderborg fannst spennandi og
áhugavert að takast á við.
Yfir 40 íslendingar stunda nám í vetur í þeim sex
íþróttalýðháskólum í Danmörku sem UMFÍ hefur gert
samstarfssamninga við. Skólarnir eru vítt og breitt um
Danmörku og hafa hver um sig sérstöðu hvað varðar
þær íþróttagreinar sem lögð er áhersla á. Hægt er að
stunda nám í skólunum í fjóra, fimm eða níu mánuði
og í þeim er hægt að ná sér í þjálfararéttindi í flestum
íþróttagreinum. Hægt er að sækja um styrk til UMFÍ
og auk þess veita skólarnir afslátt af skólagjöldum.
„Ég er viss um að námið á
eftir að nýtastsyni mínum
vel í nánustu framtíð"
„Vilhjálmur hafði í nokkur ár verið
búinn að reyna að komast til
Bandaríkjanna en það gekk ekki.
Við höfðum reynt lengi og víða og
leitað fanga hjá mörgum, einstakl-
ingum og samtökum, og allt kom
fyrir ekki. Þetta strandaði eflaust á
tryggingum og umsjón með hon-
um. Norræna félagið var okkur inn-
an handar og reyndi að koma
Vilhjálmi til Kanada en eins áður
gengu hlutirnir ekki eftir þegar á
reyndi. Síðan leiddi eitt af öðru og
á endanum var mér bent á Ung-
mennafélag (slands. Þangað lá leið-
in og þar hitti ég fyrir Valdimar
Gunnarsson sem hafði íþróttalýð-
háskóla í Danmörku á sinni könnu.
Vilhjálmur getur ekki séð um sig
sjálfur. Því var farin sú leið að aug-
lýsa eftir liðveitanda og við gátum
í raun ekki verið heppnari í þeim
efnum. Hlutirnir gerðust hratt og
félagarnir voru komnir út í ágúst,"
sagði Brynja Sigfúsdóttir, móðir
Vilhjálms Þórs. Brynja sagðist vera
mjög ánægð með hvernig UMFl
hefði tekið á málum í byrjun. Hún
segir einnig að það hafi skipt sköp-
um að fá Karl F. Jörgen Jóhannsson
sem liðveitanda en hann hefur
staðið sig með prýði með Villa í
vetur. Karl taki á öllum málum af
æðruleysi og leysi vandamálin
áður en þau verða vandamál.
- íhverju er fötlun Vilhjálms fólgin?
„Hann var upphaflegur greind-
ur misþroska og í vandræðum með
samhæfingu hreyfinga. Það hefur
hjálpað honum mikið að hann hef-
ur stundað íþróttir alla tíð og ver-
ið í tónlistarskóla síðan hann var
fimm ára gamall.Tónlistarnámið
hefur ekki síður reynst honum vel
og verið gott veganesti út í lífið."
Vilhjálmur vann um tíma á leikskó-
la með námi sínu við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja en þar var hann
á svonefndri starfsbraut. Á þeirri
braut er reynt að undirbúa nem-
andann eins og kostur er áður en
út í atvinnulífið er farið. Vilhjálmur
hefur sl. ár fengið að vera á bekkn-
um hjá meistaraflokki Keflvíkinga í
körfu og hefur passað upp á að
leikmenn hefðu nóg vatn að
drekka. Hann ferðaðist mikið með
liðinu um landið og naut sín í hví-
20 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands