Skinfaxi - 01.12.2006, Síða 24
Margir stunda nám við lýðháskóla í Danmörku:
Það er mikið orðið um það að fyrir-
tæki ýmiss konar fari í svona verk-
efni í þeim tilgangi að skerpa á
samheldni starfsfólksins og hvetji
það til að vinna saman. Þetta er
eitthvað sem maður gæti nýtt sér
heima á íslandi og er aldrei að vita
nema maður gæti boðið upp á
svona þjónustu. Þetta er einn af
þeim möguleikum sem í boði eru
hér. Annað gæti líka verið sniðugt
en það er að kynna dönsku íþrótta-
lýðháskólana meira í íslenskum
framhaldsskólum. Þetta er mjög
spennandi kostur fyrir þá sem eru
á aldrinum 17-25 ára." Karl sagði að
hægt væri að sækja sér þjálfararétt-
indi í ýmsum greinum boltaíþrótta.
Hann sagði ennfremur að nemen-
dur lærðu meira um íþróttina út frá
bóklegu hliðinni en sá þátturyrði
svolítið útundan heima á íslandi.
Það gerði öllum gott að skoða
íþróttina frá öllum hliðum.
„Ég hvet alla sem eiga þess kost
að skoða þann möguleika að fara
til náms í íþróttalýðháskóla. Ef þú
stekkur ekki á svona möguleika á
árunum í kringum tvítugt þá gerir
þú það aldrei. Að stunda nám í
íþróttalýðháskóla er áhugaverður
kostur sem vert er að íhuga með
opnum hug.”Karl sagði það á
stefnuskránni hjá sér, þegar hann
kæmi heim, að Ijúka stúdentspróf-
inu. Hann sagðist alls ekki útiloka
það að verða íþróttakennari eða
fara í sjúkraþjálfun. Þar er verið að
vinna mikið með íþróttafólki sem
honum fyndist spennandi.
„Okkur fannst þetta spennandi og áhugavert"
Erling Jonsson , sem
er hálfur Færeyingur, er aðstoðar-
skólastjóri við íþróttalýðháskólann
í Sönderborg. Erling segir að Vil-
hjálmur sé fyrsti fatlaði nemandinn
sem komið hafi til náms við
íþróttalýðháskólann í Sönderborg.
Erling er öllum hnútum kunnugur
við skólann en þar hefur hann
starfað í 15 ár. Hann er íþrótta-
fræðingur að mennt og hefur nok-
krum sinnum komið til íslands til
að heimsækja UMFÍ og í tengslum
við badminton en hann þjálfaði
færeyska landsliðið um hríð.
„Það var mjög spennandi að fá
Vilhjálm í skólann á sl. hausti. Það
er ekki hægt að segja annað en að
þetta verkefni hafi gengið frábær-
lega vel í alla staði. Vilhjálmur er
góður drengur, duglegur í því sem
hann tekur sér fyrir hendur og við
erum hæstánægðir með frammi-
□ Landsbankinn
N A M O
stöðu hans. Við vorum ekkert
hræddir við að prófa þetta, fannst
það áhugavert og spennandi. Ef
upp hafa komið vandamál höfum
við leyst þau strax og svona heilt
yfir hefur þetta gengið mjög vel.
Við gætum vel hugsað okkur að
fá fleiri fatlaða einstaklinga í fram-
tíðinni," sagði Erling.
Fyrstu (slendingarnir komu til
náms í íþróttalýðháskólann í Sön-
derborg ári 2001. Erling segir mjög
gott að hafa fslendinga í skólanum
en þeir séu duglegir og skemmti-
legir félagar.
„Við höfum átt gott samstarf við
UMF( en í gegnum þá hreyfingu
fáum við nemendur hingað.
Markmið okkar er að héðan fari
nemendur sterkari en þeir komu.
Kennarar, starfslið og nemendur
vinna vel saman hér í skólanum
og úrverðurein stórfjölskylda.Við
getum sagt að hér birtist norrænt
samstarf
í sinni bestu mynd. Hér eru nem-
endur frá Danmörku, (slandi, Fær-
eyjum og Grænlandi og að auki
nokkrir nemendurfrá Ungverja-
landi/'sagði Erling Jonsson.
Orkuveita
Reykjavíkur
Nokkrar staðreyndir um íþrótta-
lýðháskólann í Sönderborg
(vetur stunda 93 nemendur nám við íþróttalýðháskólann í Sönder-
borg. Nemendurnir koma frá Danmörku, íslandi, Færeyjum, Græn-
landi og Ungverjalandi. Skólinn er alhliða skóli og þar eru í boði
flestar greinar íþrótta. Sönderborg er syðst á Jótlandi, skammt frá
landamærum Þýskalands. Skólinn á sér mikla hefð en hann var
stofnaður 1952 og var starfræktur fyrstu tvö árin sem kvennaskóli
og síðan sem (þróttalýðháskóli. í Sönderborg og á svæðinu þar í
kring er talið að á þriðja hundrað (slendinga búi. Á sumrin sækja
Danir mikið til Sönderborg í sumarleyfum sínum. Gott er að nýta sér
danska lestakerfið til að koma sér til Sönderborgar en ferðin þangað
frá Kaupmannahöfn tekur um fjóra tíma.
B/RT/NGAHOLT
®Almenna
í 19X34 I tvCóOv verkfræðistofan
BRIM SEAFOOD m A m Ó T U M AÐ M A M M V 1 R K 1
Jói útherji
KNATTSPYRNUVERSLUN »
24 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands