Skinfaxi - 01.12.2006, Qupperneq 25
Ragnhildur Einarsdóttir formaður USÖ og undirbúningsnefndar fyrir ULM 2007:
Við erum full tilhlökkunar hér á Hornafirði
10. Unglingalandsmót
UMFl verður haldið um
verslunarmannahelgina á
Höfn í Hornafirði. Undir-
búningur fyrir mótið hófst
fyrir allnokkru og að sögn
Ragnhildar Einarsdóttur,
formanns Ungmennasam-
bandsins Úlfljóts, USÚ, og
formanns undirbúnings-
nefndar, miðar undirbún-
ingi vel áfram. Helstu fram-
kvæmdir fyrir mótið eru við
byggingu nýs íþróttavallar
og sundlaugar.
„Það er allt á góðri leið og við erum búin að ráða sérgreinastjóra
í flestar greinar á mótinu. Við í undirbúningsnefndinni erum full
tilhlökkunar sem og bæjarbúar. Það er mikil spenna í loftinu og
þá ekki síður hjá ungu fólki. Það er komin mikil hefð fyrir Ungl-
ingalandsmótunum hjá mörgum fjölskyldum vítt og breitt um allt
land. Við búumst ekki við færri en fimm þúsund gestum og um
eitt þúsund keppendum. Það er geysilega gaman að takast á við
þetta verkefni og það gerir heilan helling fyrir þetta bæjarfélag,"
sagði Ragnhildur Einarsdóttir. Ragnhildur sýnir á sér hina hliðina
að þessu sinni.
Fullt nafn: Ragnhildur Einars-
dóttir.
Fæðingarstaður: Höfn í
Hornafirði.
Maki: Árni Rúnar Þorvaldsson.
Börn: Guðný 6 ára, Einar Karl
5 ára.
Aldur: 30 ára.
Starf: Grunnskólakennari.
Bifreið: Skodi.
Uppáhaldsmatur: Kjúklinga-
bringur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Besti prentmiðillinn: Les oft-
ast Fréttablaðið, það er ágætt.
Besti Ijósvakamiðillinn: RÚV.
Uppáhaldssjónvarpsþættir:
Tekinn er í uppáhaldi eins og
er.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Auðunn Blöndal ÍTekinn.
Besta íslenska bíómynd
sem þú hefur séð: Englar
alheimsins en mig langar
svakalega mikið að sjá Mýrina.
Frá Höfn í Hornafirði. Ljósmynd: Sigurður Mar/Gaidur ehf.
Besta bók sem ég hef lesið:
Er nýbúin að lesa Skugga
vindsins. Hún er frábær.
Besti leikari íslenskur: Ingvar
E. Sigurðsson.
Besti leikari erlendur: Kevin
Bacon.
Uppáhaldstegund tónlistar:
Ég hlusta á alla tónlist.
Uppáhaldssöngvari: Enginn
sérstakur.
Eftirminnilegasta augnablik:
Að sjá börnin sín í fyrsta sinn.
Fyrirmynd: Mamma og pabbi.
Fleygustu orð: Ekki flækja líf
þitt að óþörfu.
Áhugamál: Mér finnst gaman
að ferðast með fjölskyldunni,
en hef líka gaman af öllum
íþróttum.
Hvers gætirðu síst verið án:
Fjölskyldunnar.
Hvað tækirðu með þér á
eyðieyju: Góða bók sem
endist meðan ég lifi.
Hvað er ómissandi: Að
nærast.
Ef þú ynnir milljón í happ-
drætti: Þá færi ég gott ferða-
lag til útlanda og myndi byrja
ferðina í London.
Hvað gleður þig mest: Að
Ijúka góðu dagsverki.
Erfiðasti andstæðingurinn:
Allir andstæðingar eru erfiðir.
Besti knattspyrnumaðurinn:
Maradona.
Hvaða íslenskur íþrótta-
maður stendur fremstur í
dag: Eiður Smári Guðjohnsen.
Besti íþróttamaður í heimi í
dag:Thierry Henry í Arsenal.
Fallegasti karlmaður sem þú
hefur séð fyrir utan maka:
Allir strákarnir í Friends-þátt-
unum voru bæði sætir og
skemmtilegir.
Mottó í framtíðinni: Að flækja
ekki líf mitt að óþörfu.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 25