Skinfaxi - 01.12.2006, Side 28
Valur Magnússon, nýkjörinn formaður USAH:
USAH
Mikið af efnilegum
krökkum á svæðinu
Valur Magnússon var kjörinn nýr formaður
USAH á 89. þingi sambandsins, 11. nóvember sl.
Valur tók við formennskunni af Birki Freyssyni.
Að öðru leyti er stjórnin óbreytt. Valur hafði
áður verið formaður Ungmennafélagsins Geisla
í sex ár.
„Ég var í sjálfu sér ekki að sækjast eftir þessu
starfi en lét að lokum undan þrýstingi. Ég hef
lengi haft mikinn áhuga á ungmennastarfinu
og krakkarnir mínir eru mikið í íþróttum og hafa
verið að ná þar góðum árangri. Það ýtir að sjálf-
sögðu undir áhugann hjá manni," sagði Valur
Magnússon, nýkjörinn formaður USAH.
„Ég hef ekkert komið nálægt starfi hjá USAH
svo að sá starfsvettvangur er alveg nýrfyrir mér.
Það er alveg Ijóst að það þarf að taka til hend-
inni en hlutirnir gerast ekki í hvelli. Mikilvægt er
þó að fólk sjái að sé vakning í kringum héraðs-
sambandið. (mínum huga er mjög mikilvægt að
okkur takist að hafa starfsmann, þó að ekki væri
nema í hálfu starfi. Þetta snýst að sjálfsögðu allt
um fjármögnun og á næstunni er ætlunin að
setjast niður með sveitarfélögunum á svæðinu
og fá þau til að koma að verkefninu með okkur,"
sagði Valur.
Valur sagði töluvert af ungum og efnilegum
krökkum í sambandinu svo að framtíðin er björt
hvað því við kemur. Milli 20 og 30 krakkar mæta
orðið reglulega á frjálsíþróttaæfingar á Blöndu-
ósi svo að áhuginn ertil staðar að sögn Vals.
Nokkrireinstaklingarfrá USAH stóðu sig með
stakri prýði á Unglingalandsmótinu á Laugum á
sl. sumri.
„Mér finnst krakkarnir ekki vera fá þá þjálf-
un sem þau eiga skilið. Það er mikilvægt að þau
hafi góða leiðbeinendur. Það byggir upp áhug-
ann og skapar um leið betri anda."
Valur sagði að markmiðið væri að koma
starfseminni á góðan rekspöl á nýjan leik en til
þess þyrfti héraðssambandið að fá stuðning
frá sveitarfélögunum í kring. Á hann þar við
Blönduós, Skagaströnd og Húnavatnshrepp.
„Við setjumst niður með stjórnum þess-
ara aðila fyrir áramótin og vonandi skila þær
viðræður góðri niðurstöðufsagði Valur Magnús-
son í samtalinu við Skinfaxa.
SAFNASVÆÐIÐ
Á AKRANESI
• Steinaríki íslands
• Iþróttasafn Islands
• Byggðasafn Akraness og nærsveita
• Safn Landmælinga íslands
• Upplýsingamiöstöö ferðamanna
• Garðakaffi
• Handverkshús
Opnunartímar:
15. maí - 14. sept.
daglega frá kl. 10-17
15. sept - 14. maí
daglega frá kl. 13 -17
Tel: 431-5566 • museum@museum.is
www.museum.is
ilmandi jólatrjám,
greinum og eldiviði
Munid að íslensk tré eru umhverfisvæn
SKOGRÆKT
RÍKISINS
Sudurland 480 1821 / 864 1102 S Norðurland 462 5175
Austurland 471 1774 'é Vesturland 435 0047
m 0 0 0 m i « I 0 0
r ' ■ . ■ j{w 1
28 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands