Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 29
Jólasaga: Besta jólagiöfin Jólin voru að ganga í garð. Halli litli var kominn í sparifötin og beið nú jólagleðinnar. Hann gekk inn til ömmu sinnar. Þar ætlaði hann að stytta sér stundir, meðan jólamaturinn var borinn á borð. Mamma og pabbi voru búin að raða jóla- gjöfum umhverfis jólatréð í betri stofunni. Jóla- bögglarnir voru marglitir og skrautlegir. Halli var óþreyjufullur. Hann var vanur að fá margar jóla- gjafir, en nú var eftir að vita hvað hann hlyti að þessu sinni. Það var best að dveljast hjá ömmu um stund. Hún var vís til að segja honum sögu, en þær kunni hún margar og sagði þannig frá að unun var á að hlýða. Hún kunni vel þá list að segja sögu. Amma Halla sat í stólnum sínum og prjón- aði. Hún reri fram í gráðið. Hún var blind, eldur augnanna var horfinn, en það var eins og hún ætti innri augu sem greindu þá hluti, er öðrum voru huldir. Æviárin höfðu rist rúnir í svip henn- ar. Löng og hörð lífsbarátta hafði gefið henni minningar, sumar daprar, en einnig aðrar sem voru henni Ijós í myrkrinu og vermdu hana á ævikvöldi. Halli brosti til ömmu sinnar. Hún faðmaði hann að sér og faldi smáar hendur hans milli lófa sinna. Varmi og atlot þreyttra og hrukk- óttra handa veittu drengnum ró og innri hlýju. „Ertu nú kominn, blessaður stúfurinn minn?" „Já, amma mín, viltu segja mér sögu? Mér finnst tíminn svo lengi að líða. Ég hlakka svo til að fá jólagjafirnarog ganga íkringum jólatréð." „Jú, litli vinur, ég skal gjarnan gera það. En eitt verður þú að muna. Þótt jólagjafirnar þínar séu góðar, þá mega þær ekki verða til þess að þú gleymir öðrum, en munir aðeins eftir þér sjálfum. Þær mega aldrei verða svo margar að þú kunnir að hætta að meta þær. Gleymdu því aldrei að besta jólagjöfin, sem mennirnir hafa eignast, er lítið barn, sem lagt var í jötu, af því að ekki var rúm fyrir það í gistihúsinu." Svo hóf gamla konan söguna. „Þegar ég var lítil stúlka, átti ég heima í sveit. Ég hlakkaði til jólanna eins og þú. Sérstaklega eru mér minnistæð jólin sem ég nú ætla að segja frá. Frost og snjókoma hafði verið um langan tíma. Þá voru ekki mið- stöðvar eða rafmagn til þess að hita upp húsin. Ylurinn frá eldavélinni, sem kynt var með sverði, hrísi eða moði frá gripunum, var ekki nægur til að sigrast á kulda- num. Svo þurfti líka að spara eldiviðinn. Það logaði ekki eldurnema nokkurn hluta dagsins. Oft var því kalt og ónotalegt. Ég man líka, að hendur mínar voru bólgnar og rauðar. Kuldabólgan sagði til sín. Nokkrum dögum fyrir jól veiktist Nonni litli, bróðir minn. Honum versnaði með hverjum degi sem leið. Pabbi varð að brjótast í næstu sveit eftir lækni, hvað sem það kostaði. Við vorum aðeins fjögur á heimilinu, mamma og pabbi, ég og litli bróðir á öðru ári. Pabbi átti því illa heiman- gengt á þessum tíma árs, þegar allar skepnur voru á gjöf. Langt var til næstu bæja og enga hjálp þar að fá, því að karlmenn voru margir í kaupstaðarferð fyrir jólin. En nú var ekki um ann- að að ræða en að pabbi færi að sækja lækninn. Litli bróðir varð að fá hjálp ef mögulegt var. I bernsku minni þekktust ekki aðrar jólagjafir en einhver þörf flík. Ég fékk oftast nýja ullar- sokka og brydda skó og þótti mikið til koma, var glöð og ánægð. Nú vissi ég, að mamma gat ekki lokið þessum kærkomnu jólagjöfum vegna veikinda Nonna litla. Ég forðaðist að hugsa um þau vonbrigði, en bað þess heitt og innilega, að litli bróðir fengi að lifa. í þeirri bæn gleymdi ég öll-um erfiðleikum mínum. Ég gekk inn í svefnherbergið til mömmu. Það logaði á stóra lampanum í einu horninu. Mamma kraup við rúmstokkinn og hlúði að Nonna litla. Það var þung raun að sjá kvala- drættina í andlitinu og hlusta á kvein hans. Mamma sagði ekki neitt, en það blikuðu tár I augum hennar. Við vonuðum, að pabbi kæmi sem fyrst með lækninn þrátt fyrir veðurofsann. Ég kraup við hlið mömmu. Við grétum báðar við hvílu litla bróður. Tár okkar vættu heitar hendur hans. Bænin í saklausum aug- um barnsins gekk okkur til hjarta. Stormurinn hvein úti og nóttin var myrk. Loksins, loks- ins hrikti í bæjarhurðinni. Ég hentist fram og opnaði dyrn- ar. Inn úrdyrunum reikuðu tvær klökugar og fannbarðar verur, líkari ófreskjum en mennskum mönnum Það voru pabbi og læknirinn. Aðfanga- dagur jóla var kominn. Læknirinn, pabbi og mamma höfðu vakað alla nóttina. Þau höfðu sameiginlega gert allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að hjálpa litla bróður. Þessa nóttáttu þau aðeins eina ósk, óskina, sem fólst í bæninni um sigur lífsins. Ég hafði oltið út af í rúmi mínu í öllum fötun- um og vaknaði ekki fyrr en með birtu. Jólahátíð- in var komin. Pabbi og læknirinn röbbuðu sam- an. Mamma tendraði jólaljósin með bros á vör. Ég sat við rúm Nonna litla. Hann hreyfði sig ofur- lítið, opnaði augun og starði á mig um stund. Fagurt bros breiddist yfir andlitið. Þetta bros er fegursta og besta jólagjöfin, sem ég hef eignast um ævina. Heimild: julli.is Geisluðu afáhuga og prúðmennsku Sunnudaginn 27. nóvember var haldið héraðs- móti HSH í frjálsum íþróttum innanhúss í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Skráðir keppendur voru 87 talsins og er þetta stærsta frjálsíþróttamót sem haldið hefur verið í íþróttahúsinu til þessa. Keppt var í sjö grein- um (sjö aldursflokkum drengja og stúlkna. Mótið hófst kl. 10 og lauk fljótlega eftir hádegi þannig að skipulag og framkvæmd mótsins var til mikillar fyrirmyndar. Krakkarnir stóðu sig frábærlega en þau geisluðu af áhuga og prúðmennsku. Festir keppendur voru frá UMFG 33, 27 keppendurfrá Snæfelli, 12 kepp- endur úrVíkingi, 11 keppendurfrá Reyni og 4 keppendurfrá Umf. Staðasveitar. Keppendur frá UMFG báru sigur úr bítum í stigakeppninni með 117,5 stig, Snæfell varð í öðru sæti með 97,5 stig og Víkingur og Umf. Staðasveitar voru jöfn að stigum í 3.-4. sæti. Gaman var að sjá hve margir keppendur voru yngri en 11 ára. HSH óskar öllum til hamingju með árangurinn og vonar að allir krakkarnir haldi áfram að stunda íþróttir og njóti góðs gengs í framtíðinni. Mótsstjórn var í höndum Lilju Stefánsdóttur, en margar styrkar hendur komu að skipulagningunni. Ber þar helst að nefna frjálsíþróttaráð og framkvæmdarstjóra HSH. Styrktaraðili mótsins var Sparisjóður Ólafsvíkur. Frjálsíþróttaráð Víkings/Reynis vill þakka öllum þeim sem komu að þessu móti og gerðu það eins glæsilegt og raunin varð. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.