Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.2006, Qupperneq 35

Skinfaxi - 01.12.2006, Qupperneq 35
Félagsmálanámskeið UMFÍ og Bændasamtaka íslands: Félagsmálanámskeið vítt og breitt um landið Mynd hér að ofan sýnir félaga úr Umf. Islending fylgjast með að miklum áhuga. Á myndin tilhægri sýnir þátttakendur ásamt leiðbeinendunum Birgitog Petreu sem sitja fremstar. Ungmennafélag íslands og Bændasamtök íslands hafa staðið fyrir félagsmálanámskeiðum um allt land þetta ár. Dagana 28. og 29. nóvem- ber var haldið félagsmálanámskeið á Hvanneyri í umsjón UMSB. Farið var í fundarstjómun, fund- arsköp og framkomu í ræðustól. Námskeiðið var líflegt og fræðandi og var ekki annað að sjá en þátttakendur á námskeiðinu skemmtu sér hið besta. Leiðbeinendur voru Birgit Raschhofer, Petrea Kr. Friðriksdóttir og Ingimundur K. Guð- mundsson öll frá JC hreyfingunni. TM býður landsmönn- umuppá skautasvell í tilefni 50 ára afmælis TM þann 7. desember býður TM landsmönnum upp á skautasvell á Ingólfstorgi til 29. desember næst- komandi. Öllum er frjálst að koma með eigin skauta en jafnframt verður boðið upp á leigu á skautum og til öryggis lánarTM öllum hjálma. Skautasvellið verður opið frá klukkan 10 á morgnanatil 22 á kvöldin.Ýmsir viðburðir hafa verið skipulagðir í desember. Þar má nefna söng, tónlist og jafnvel íþróttaviðburði. Leiga fyrir skauta er 300 krónur og er hjálmur innifalinn. Fólk er hvatt til að koma með eigin skauta og hjálma. Skylt verður að nota hjálma á skautasvellinu íþróttamaður ársins 2006 útnefndur 28. desember Iþróttamaður ársins verður útnefndur í hófi á Grand Hótel Reykjavík 28. desember nk. Kjörið, sem fram fer í 51. skipti, verður með hefðbundnu sniði en nýr verðlaunagripur fylgir sæmdarheitinu íþróttamaður ársins að þessu sinni. Gripinn hannaði Sigurður Ingi Bjarnason gullsmiður. Nöfn tíu efstu í kjörinu verða birt í dagblöðunum viku fyrir hófið. Sýn og Sjónvarpið sýna beintfrá kjöri (þróttamanns ársins. Að vera valinn íþróttamaður ársins er mesta viður- kenning sem íslenskur íþróttamaður getur fengið. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 35

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.