Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 10
I
j
Forsetahjónin heimsóttu Unglingalandsmótiö
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff
forsetafrú heimsóttu Unglmgalandsmót UMF( í Þorlákshöfn.
Forsetahjónin komu fyrst við í ráðhúsinu og tóku þau Ólafur
Áki Ragnarsson, bæjarstjóri, og Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, á móti þeim.
Að athöfn þar lokinni héldu forsetahjónin inn á mótssvæðið
og fylgdust með íþróttaviðburðum. Þau afhentu m.a. verðlaun
og viðurkenningar [ nokkrum íþróttagreinum. Heimsókn þeirra
á mótið vakti mikla athygli keppenda og mótsgesta.
Forsetahjónin fylgdust m.a. með körfuknattleik kvenna þar sem
áttust við Haukar og Keflavík. Á myndinní hér fyrir ofan eru þau
á leiðinni í íþróttahúsið ásamt Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur,
formanni UMFÍ, og Ólafi Áka Ragnarssyni, bæjarstjóra í Ölfusi.
10 SKINFAXI tímarí! Urigmennafélags fslands