Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 19
70. Símdu/qðar- oa Vökumótið Ungmennafélögin Samhygð í Gaulverja- bæjarhreppi og Vaka í Villingaholts- hreppi, sem svo eru oftast nefnd, þrátt fyrir að vera nú bæði innan Flóahrepps hins nýja, héldu sitt 70. íþróttamót við Félagslund laugardaginn 16. ágúst. Fyrsta íþróttamót félaganna var haldið að Vill- ingaholti árið 1939 og hefur mótið verið haldið árlega síðan. Samhygðar- og Vökumótið er fyrir löngu orðið elsta íþróttamót tveggja félaga sem haldið er á íslandi og þrátt fyrir gott nágrenni félaganna hefur iðulega verið barist hart um sigurinn í mótinu. Ekkert kynslóðabil Veður var ágætt, sólarlítið en hlý gola af suðri, og drjúgur meðvindur í hlaup- um og stökkum. Fyrr á árum voru það ungmenni sveitanna sem reyndu nteð sér en með fækkandi íbúum hefur það færst í vöxt að brottfluttir ungmenna- félagar taki þátt í keppninni og jafnvel afkomendur þeirra. Flestir keppendur Samhygðar búa til dæmis utan sveitar- innar en halda tryggð við sitt gamla félag enda væri mótið líklega úr sög- unni ef þeir kæmu ekki til. Kynslóðabil þekkist ekki á Samhygðar- og Vökumót- unum og þarna keppa foreldrar við hlið barna sinna. Feðgarnir á Urriðafossi, Einar bóndi og Haraldur sonur hans, kepptu báðir í kúluvarpi fýrir Vöku og varð faðirinn hlutskarpari enda sigur- sæll á árum áður. Haraldur varð hins vegar stigahæsti maður mótsins, með 36 stig, og sigraði með yfirburðum í fimm af sjö keppnisgreinum karla. Hann vann einnig besta afrekið þegar hann hljóp 100 rnetra á 11,5 sek. sem gaf 783 stig. Dramatík í 100 metrunum Halldóra Markúsdóttir, Samhygð, vann besta afrek kvenna með því að hlaupa á 14,5 sek. í 100 metra hlaupi sem gaf 657 stig. Hún var einnig stigahæsta konan, með 25 stig, ásamt tveimur öðrum, þeim Heiðu Kristínu Másdóttur, Samhygð, og Ingunni Hörpu Bjarkadóttur, Vöku. Ing- unn Harpa varð fyrir því óhappi að detta í 100 metra hlaupinu skammt frá enda- markinu. Það kostaði hana sigurinn í hlaupinu og Vöku sigurinn í mótinu. Halldóra og Heiða Kristín voru stiga- hæstu keppendur Samhygðar og veittu viðtöku verðlaunaskildinum sem keppt er um í mótinu. Spennandi stigakeppni Stigakeppni mótsins var tvísýn og spennandi allt tii loka. Þegar komið var að síðustu keppnisgreininni, 1500 metra hlaupi karla, var Samhygð með sjö stiga forystu og ailt gat gerst því að keppend- ur Vöku voru taldir sterkari. Elsti og reyndasti langhlaupari Samhygðar, Markús ívarsson, var nú fjarri góðu gamni, staddur á Ólympíuleikunum í Peking en bróðir hans, Jason, sem gegn- um tíðina hefur verið sigursælasti kepp- andi Samhygðar, tók þátt í hlaupinu ásamt syni sínum, Ivari. Ivar varð annar í mark, Atli Már Ólafsson, Samhygð, fjórði og Jason í sjötta sæti þó að kom- inn sé vel á sextugsaldur. Vökumenn, með Harald Einarsson í fararbroddi, fengu fleiri stig úr hlaupinu en vantaði hersluntuninn og svo fór að Samhygð sigraði á mótinu með 149 stig gegn 145 stigum Vöku. Þeir feðgar fvar Jasonarson og Jason ívarsson kepptu fyrir Samhygð. Jason er sigursælasti keppandi Samhygðar frá upphafi og er enn að, kominn vel á sextugsaldurinn. Eftir mótið afhenti Stefán Geirsson, formaður Samhygðar, keppendum verð- laun í Félagslundi og þar nutu allir við- staddir rausnarlegra veitinga í boði Samhygðar. Frá verðlauna- afhendingunni sem fram fór í Félagslundi að móti loknu. Verkefnið Fiott án ffknar: Kynningar bókaðar vítt og breitt um landið Með verkefninu Flott án fíknar er markmiðið að styðja við ungmenni um að skemmta sér á heilbrigðan hátt og sniðganga áfengi og tóbak eins og lög gera ráð fyrir. Boðið var til þeirrar nýjungar s.l. vor að halda leikjakvöld fyrir félaga Flott án fíknar í Akurskóla í Reykjanesbæ. Jörgen Nilsson stjórnaði leikjum eins og honum einum er lagið og skemmtu ungmennin sér mjög vel. Áfram verður unnið að því að ná til ungmenna í vetur með þátttöku í heilbrigðu félagsstarfi. Þessa daganna er verið að stofna tvo klúbba, annars vegar i Sunnulækjarskóla á Selfossi og í Akurskóla I Reykjanesbæ hins vegar. Svo eru bókaðar kynningar vítt og breitt um landið í vetur að sögn ^ Guðrúnar Snorradóttur verkefnisstjóra FLOT Flott án fíknar. HiMilHiMél SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 19

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.