Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 18
Ungmennavika NSIJ eru p|>l Funog lífsreynsla Það var líf og fjör á ungmennaviku NSU í Danmörku í sumar. Auður, Hekla Karen, Jón, Olga Þórunn og Ómar sem tóku þátt í vikunni, sögðu hana snúast fyrst og fremst um að kynnast menn- ingu Norðurland- anna. áttum að búa til fleka, klifra upp í tré og byggja brú á milli tveggja trjáa. Á hverju kvöldi var gert eitthvað skemmtilegt. Við syntum og fórum í „Hit med sangen“ (Það var lagið), kveikt- um bál og gerðum margt fleira. Eitt kvöldið var næturleikur sem fór misvel í fólk. Þar þurftum við að leysa ýmsar þrautir og komast á leiðarenda í gegn- um skóginn, með aðeins eina lukt á hvern hóp. Leiðtogarnir voru búnir að koma sér fyrir á ýmsum stöðum og hræddu okkur á fjölbreyttan hátt, einn var búinn að „hengja sig“ upp í einu trénu á meðan annar var eins og frum- maður. Ungmennavika NSU er uppiifun. Hún er mjög góð lífsreynsla og við mælum með henni fyrir alla þá sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og kynnast nýju og skemmtilegu fólki. Maður æfist í Norður- landatungumálum og verður öruggari og ófeimnari í samskiptum við annað fólk. Ungmennavikan snýst fyrst og fremst um að kynnast menningu Norð- urlandanna og fólkinu á bak við hana. Auður, Hekla Karen, Jón, Olga Þórunn og Ómar. Ungmennavika NSU var haldin í Oksböl, litlum bæ rétt fyrir utan Esbjerg í Danmörku, dagana 26. júlí-2. ágúst 2008. Við vorum 5 sem fórum frá íslandi ásamt fararstjóranum okkar, Jörgen Nilsson. Á ungmennavikunni voru 47 ungmenni á aldrinum 15-25 ára sem komu saman frá ýmsum aðildarfélögum NSU. Fyrsti dagurinn fór í það að kynnast öllum krökkunum. Það var farið í ýmsa leiki til að læra nöfnin ásamt því að við fórum í vatnsslag úti á túni og fleira. Við fórum til Ribe og fengum þar leið- sögn um bæinn með misgóðum leiðsögu- mönnum, einnig fórum við til Mandö þar sem við veiddum krabba og ýmis sjávardýr en íslensku strákarnir töldu sig hafa séð kolkrabba. Við lærðum um það hve menning get- ur verið ólík frá einu landi til annars og hversu erfitt það getur verið að koma inn í menningu þar sem maður veit ekki hverjar reglurnar eru, á mjög skemmti- legan hátt. Okkur var skipt í tvo hópa þar sem hver tók upp sína menningu og svo fékk maður að fara í heimsókn til hins hópsins. National Danish Performance Team kom til okkar og var með workshop fýrir okkur, kenndu okkur dans og fimleika. Einnig sýndu þau okkur nokkra dansa sem eru hluti af sýningunni þeirra sem þau eru að fara að sýna um allan heiminn núna í vetur. Við fórum einnig á ströndina í sand- kastalakeppni og flugdrekasmíði. Eng- um hópi tókst að láta flugdrekann sinn fljúga en efnið í drekann var ansi tak- markað, ruslapoki, prik og snæri. Einnig fórum við út í skóg þar sem við 18 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.