Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 21
Gunnar Sigurðsson, frjálsíþróttaþjálfari: Frábært framtak Gunnar Sigurðsson, frjálsíþróttaþjálfari hjá Tindastóli, hafði umsjón með þjálfun við skólann á Sauðárkróki. Gunnar, sem er bóndi að atvinnu, hefur rnikla reynslu sem þjálfari. Hann hefur nú þjálfað sam- fleytt í þrjú ár en áður hafði hann tekið sér gott hlé frá starfinu. Gunnar sagði i samtali við Skinfaxa að frjálsíþróttaskólinn væri mjög gott fram- tak, hugmyndin góð og að skólinn ætti ábyggilega framtíð fyrir sér. „Ég var í upphafi svona hóflega bjart- sýnn á þátttöku en hún varð síðan meiri en ég reiknaði með. Við erum þarna að taka fyrstu skrefin á iengri leið og þetta framtak er gott og því ber að fagna. Það þarf kannski að kynna verkefnið meira í skólunum en annars er ég hvergi bang- inn um þetta verkefni í framtíðinni. Það væri sniðugt að fá þekkta frjálsíþrótta- menn til að koma í heimsókn, það fynd- ist krökkunum áhugavert og það myndi trekkja fleiri þátttakendur að skólanum. Það var athyglisvert að i skólann á Sauð- árkróki komu krakkar víða að af land- inu. Það kom manni á óvart því að ég átti alveg eins von á því að þeir yrðu flestir héðan úr nágrenninu. Mér finnst annars bjart fram undan í frjálsum íþróttum. Það er gríðarleg barátta um krakkana vegna annarrar afþreyingar sem í boði er. Sjónvarpið og tölvuleikir taka mikinn tíma frá þeim. Allt sem við erum að gera verður að byggjast upp á leikgleði og skemmtun. Frjálsíþróttaskólinn er frábært framtak og við verðum að hafa dug og kraft og trú á því sem við erum að gera,“ sagði Gunnar Sigurðsson. Gunnar Sigurðsson, frjálsíþróttaþjáifari, ásamt krökkum í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Sauðárkróki. Lu) UMSE/UFA Inkayrrtd/larí 16 ára, OjyKýri Lið UMSE/UFA sigraði samanlagt í bikarkeppni FRÍ16 ára og yngri sem fór fram á Sauðárkróki helgina 6.-7. september sl. Liðið hlaut alls 116,5 stig. í öðru sæti varð ÍR með 101 stig og FH í þriðja sæti með 97 stig. FH vann meyjaflokkinn með 51 stigi, UMSE/UFA var í öðru sæti með 48,5 stig og ÍR varð í þriðja sæti með 48 stig. í sveinaflokki vann UMSE/UFA með 68 stig, IR varð í öðru sæti með 53 stig og HSK í þriðja sæti með 47 stig. Alls tóku 8 lið þátt í keppninni að þessu sinni. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.