Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Síða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Síða 3
anna fyrir þann góða skilning og stuðning, sem niálefni samtakanna hafa oftast átt að mæta hjá Alþingi og stjórnarvöldum landsins á undanförn- um 20 árum. Þá vil ég og þakka öllum mínum stéttarbræðrum fyrir gott samstarf og samgleðj- ast þeim yfir því, hve margt hefur þokast áleiðis, sem við höfum beitt okkur fyrir. Svo að lokum stjórnarmeðlimum í stjórn samtakanna fyrir það góða starf, sem þeir hafa hver og einn innt af höndum á tímabilinu. Það þarf að halda starfinu áfram og efla sam- tökin til enn frekari dáða, til baráttu fyrir þörf- um og þjóðhollum málum, en leggja allan óþarfa krit á hilluna. Lítil þjóð, sem á í vök að verjast, þarf að eiga sem flesta samstillta sonu og dætur, svo að þjóðin geti unað glöð við sitt. Ég óska sjómönnum íslands til hamingju og heiti á þá við þessi tímamót í starfssögu þjóð- arinnar og trúi því, að þeir muni reynast góðir synir framvegis sem hingað til. Gleðilegt ár. Ásg. Sigur'ðsson. Knararósviti. Samtökin hafa stutt mjög að bættu vitalcerfi landsins og átt fulltrúa í vitamálanefnd. Strax í apphafi var hafin barátta fyrir aulcnum og bætt- um skipastól landsmanna og hefur ávallt verið stutt að þeim málum eftir megni. Mcnn frá samtökunum hafa lagt á sig mikið starf sam- bandi við sjómannadaginn, að gera hann sem bezt úr garði og þau menningarmál, s^m unnið er að í sambandi við hann. 3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.