Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Síða 6
GERARDUS MERCATOR Hinn fmbœri landfrœðingur og kortagerSarmaður Flæmski landfræðingurinn Gerhard Kremer vann mikið afrek í þágu siglinganna. Allir skip- stjórnarmenn eiga honum mikið að þakka. Hann var uppi mestan hiuta 16. aldar. Bezt er hann þekktur undir hinu latneska nafni sínu, Gerardus Mercator. Hann var höfundur Mercatorkortanna. Á 16. öld var þekking manna á lögun jarðar og landaskipan mjög af skornum skammti. Að vísu sannaði Magellan svo ekki varð um deilt, að jörðin var hnöttótt. En jafnvel þekking á lönd- um í stórum drátt- um og þó einkum legu þeirra var mjög í molum. Það ber gáfum og hug- viti Mercators fag- urt vitni að þrátt fyrir þetta tókst honum að gera kort, sem var til ómetanlegs gagns fyrir siglingamenn allra landa. Mercator fæddist 5. marz 1512 í Rup- elmonde í Flæm- ingjalandi (Fland- ern). Hann ólst upp að talið er við svip- uð skilyrði og marg- ir drengir á þeim tímum. Menntun hans var samt betri en í með- ailagi, því hann lauk stúdentprófi á 18. ári í Lovaine árið 1530. Þar hitti harn Gemma Frisí- us og það hafði gagngerð áhrif á stefnu hans í lífinu. Við viðkynninguna við Frisíus fékk hann áhuga á kortagerð og vísindalegri landafræði. Elzta kort, sem vitað er um eftir Mercator er frá árinu 1530. Nefndi hann það „terra Sanctae des criptio". Næsta kort eftir hann kom út ári seinna af allri jörðinni. Kort þetta er merkilegt, því það sýnir áhrif Ptolomys á kortagerð Mercators um þetta leyti. Claudius Ptolemarus frá Alexandríu var egypskur kortagerðarmaður á 2. öld. Um þetta leyti gerði Mercator kort af Flæm- ingialandi handa Karli 5.Þá teiknaði hann og bjó til athugunartæki til notkunar við áðurnefnt kort og er hann fyrsti kortagerðarmaður, sem slíkt hefur gert svo vitað sé. Hið fræga himinlíkan hans kom út árið 1541. Tileinkaði hann það ásamt ritgerð Nicholas Perrout, föður Granville kardín- ála. Þó engar sannanir liggi fyrir, getur vel verið að hann hafi gefið Karli 5. líkanið. Hvað sem um það er þá var Mercator nú talinn í röð fremstu |l kortagerðarmanna þeirra tima. ^ Árið 1544 var Mercator tekinn fastur og sak- aður um villutrú. Eftir það fór hann að hugsa um að fara úr landi. Ekkert verulega alvarlegt fylgdi í kjölfar ákærunnar á hann, en þó var hann grunaður um gi’æsku. Árið 1552 þáði hann boð hertogans af Julich og fór til Duisburg. Átti hann að hjálpa til við stofnun háskóla þar í borg. Var honum ætlað kennaraembætti í geimfræði við skólann; ekkert varð þó úr hinni ráðgerðu skólastofnun meðan Mercator lifði. Hann gerð- ist nú sérstakur geimfræðingur (cosmographer) hertogans og átti eftir það heima á þýzkri grund alla ævi síðan. Nokkru síðar heimsótti hann Karl 5. og gaf honnm himinlikan, en innan í því jarð- líkan. Ritgerð fylgdi, sem hann nefndi Declaratio. Karl 5. launaði honum með því að sæma hann titlinum „imperatio domesticus". Eftir þetta tóku starfsaðferðir Mercators miklum brevtingum. Hann hætti nú að bvggja á kenningum Ptolemys, sést það glöggt á hinu mikla Evrópukorti, sem hahn gaf út árið 1554. Eftir að hann var laus orðinn úr viðjum kenn- inga fvrri tíma manna veittist honum gangan auðveldari á framsóknarbrautinni. Næstu 12 árin efldi hann og þroskaði með sér gáfuna til sjálf- stæðra athugana. Troðnar slóðir hjátrúar, hind- urvitna og kreddumeistara urðu ekki hans slóðir. Hann athugaði sólmyrkva árið 1556. Mældi og gerði kort af Lotringen, risti brezku eyjarnar í kopar eftir korti William Cambdeus. Ýms öfl voru að verki í huga hans sem áttu eftir að leys- ast úr læðingi, koma fram í dagsljósið og bera ríkulega ávexti. Árið 1568 gaf hann út hið fræga Mercatorkort sitt Vaxandi kortið. Þetta var fyrsta kortið, sem teiknað hafði verið eftir hinum frægu Mercator aðferðum. Á nútíma mælikvarða var kort þetta fremur frumstætt. En sé litið á þær upplýsingar sem tiltækar voru og sé þess enn- frernur gætt, að hann varð að brjóta í bága við viðurkennd vísindi 16. aldar, þá var kortið ekk- ert minna en undravert afrek. Kort þetta var ekki tekið gilt í fyrstu. Vitneskjan um, að það var til orðið, breyddist út, en þó ekki eins ört og mál- efni stóðu til. Sennilega hefur það þó verið notað af nokkrum framsýnum og frjálslyndum mönn- um svo að segja strax, en margir vildu hvorki sjá það né heyra og enn síður nota það. Það var upprunnið í neðri byggðum og mætti raunar sjá á því fingraför Kölska all-greinilega. I 22 ár tók Mercatorkortið engum breytingum. Árið 1590 gerði Edward Wright á því ýmsar breytingar til bóta. Þrátt fyrir þetta liðu enn 40 ár þar til almennt var farið að nota það. Mer- cator vann sýknt og heilagt að rannsóknum og kortagerð. Árið 1585 gaf hann út fyrsta hluta kortabókar sinnar með kortum af Þýzkalandi, Gerardus Mercator. 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.