Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Page 15
Bryggjugerð á Gjögri
Mér fannst það rétt að snúa mér til S.iómanna-
blaðsins Víkings og fá prentaða þessa grein varð-
andi bryggjusmíði á Gjögri, síðastliðið sumar.
Sennilega hefði það verið skyldara einhverjum
öðrum, að rita um þetta mál, en það hefur alltaf
ríkt hér í sveit, að hvað sem mörg glappaskotin
hafa verið gerð af forustumönnum hreppsins, þá
hefur almenningur aldrei mátt um það tala eða
rita. Allt hefur orðið að fara eins hljótt og leynt,
eins og hægt hefur verið, en með þessari grein,
sem er líklega sú fyrsta um umkvartanir ráða-
manna í sveitinni, sem kemur út fyrir almenn-
ing, ætla ég mér að leyfa mér að brjóta þann
fornaldarskap manna hér á bak aftur og láta
þessa litlu grein úr Árneshreppi sjá dagsljós sitt,
með því að ég ætla að hafa það öðruvísi en aðrir,
sem gera ekkert annað en tala um það sín á milli
og baktala mannskapinn á Ijótan hátt. Heldur
sendi ég áskorun í Sjómannablaðinu Víking á
Guðjón Magnússon, sem var verkstjóri og yfir-
smiður við bryggjugerðina á Gjögri frá því byrj-
að var á henni, að svara mér nokkrum spurning-
um á heiðarlegan hátt.
Hér á Gjögri hefur það verið aðaláhugamál
manna í fjöldamörg ár að fá bryggju, sem auð-
vitað er sjálfsagður hlutur í öllum sjávarþorpum
landsins, og fyrsta skilyrði til þess að geta sótt
sjó er að bryggja sé á staðnum. En hér hefur
ekki þekkst annað í ómuna tíð en að klungrast
upp klappirnar eins og steinaldarmenn með fisk-
inn í pokum á bakinu eða á einhvern aulalegan
hátt. En sú steinaldarvinna var loks brotin á
bak aftur á síðastliðnu sumri.
•
Það var eitthvað um miðjan september síðast-
liðinn að hinn langþráði bryggjustubbur fram á
svokallaðan Brandsvíkurklett var talinn fullgerð-
ur. Auðvitað ríkti gleði og ánægja meðal þorps-
búa. Ánægðir köstuðu menn fiskinum upp úr
bátum sínum á bryggjuna, óku honum svo í mót-
tökuhúsið. Þetta var nú allt gott og blessað, og
ég viðurkenni að þetta eru mikil þægindi, sem
áttu að vera löngu komin, en nú vík ég að spurn-
ingunum. Hvernig er nú gengið frá þessari
bryggju? Er ekki allt í lagi með hana? Ég sæki
raunar ekki mikið sjó, en þó býst ég við að ég
sé búinn að leggja oftar upp að bryggjunni á
mínum bát, heldur en Guðjón Magnússon á sín-
um, sem auðvitað hefur allt öðru að sinna en
stunda róðra, eins og við slæpingjarnir. En hvað
sem því líður, þá tel ég bryggjuna, sem Guðjón
Magnússon var verkstjóri og yfirsmiður að, eitt
með hans mestu glappaskotum, sem hann hefur
gret í Árneshreppi. En nú spyrja menn, er ekki
bryggjan nógu bein? Og er hún ekki nógu slétt?
Jú, hún er það, hún er hvorttveggja. En spurn-
ingin er, hvað gerði verkstjórinn við allt sprengi-
efnið? Er það í raun og veru satt, sem ég hef
heyrt, að hann hafi sent sprengiefnið suður aftur
án þess að láta sprengja klettana að utanverðu
og klappirnar að innanverðu? Nú svarar þú, hátt-
virti verkstjóri. En ég segi, að stórhættulegt sé
að leggja að bryggjunni í súg eða ef einhver
áhlaðandi er, hvað þá heldur á hálfföllnu. Vegna
þess að það eru klettar að utanverðu við bryggj-
una, en klappir að innanverðu. Hvar þekkist það
að ganga frá steinbryggju, eins og hér hefur verið
gert? Hver hefur gagn af slíkri bryggju?
Því hefur verið fleygt, að Guðjón Magnússon
hafi sagt það, að hann hafi ekki mátt vera að
því, að láta sprengja þessar klappir, vegna þess
að byrjað hafi verið svo seint á bryggjunni í
sumar, heldur muni hann hafa í huga að sprengja
klappirnar að innanverðu við tækifæri. Ég spyr
enn, hverjum var það að kenna, að byrjað var
svo seint á bryggjunni? Var það ekki skylda odd-
vitanna í hreppnum, og þar sem þeir voru nú
tveir og Guðjón Magnússon er annar þeirra, að
reka betur á eftir efninu en þeir gerðu. Er hitt
svo heilbrigt, að sprengja klappirnar sem eru
fast við bryggjuna, eftir að bryggjan er fullgerð?
Álit mitt er, að Guðjón Magnússon hafi raun-
verulega alls ekki verið starfinu vaxinn, sem
yfirsmiður, og meðan bryggjan kemur ekki lengra
fram en þetta, þá er ekkert afdrep við hana.
Vonast ég til þess, að Guðjón Magnússon, sem
hefur verið eins og áður er sagt verkstjóri og
yfirsmiður og er einnig varaoddviti hreppsins,
en það er mikil staða hér í hreppnum, geri grein
fyrir máli sínu, og að hann svari mér í þessu
blaði, þeim spurningum sem að framan greinir.
Hann, með allar ritvélarnar og spekingsgáfuna,
verður nú ekki lengi að svara því, en það er
kannske ekki nóg að svara, það verður að styðj-
ast við sannleikann.
Hann lætur varla oft skora á sig, en þar sem
þessi grein kemur í Sjómannablaðinu Víking, en
ekki í Tímanum, vænti ég þess, að bæði ég og
aðrir, sem fáum blaðið, láni Guðjóni Magnús-
syni það til yfirlits.
Og að endingu þetta: Við, sem erum réttlát
í dómum, fögnum því að bryggjan er komin, en
við hryggjumst líka yfir því, hvernig frá henni
er gepgið. Það verður að gæta ýtrustu varúðar
við bryggjuna, ef ekki á illa að fara og ef ein-
hver súgur er. Menn hafa heldur lent í vörum
sínum, en við bryggjuna, nema þegar bezt hefur
verið og blíðast. Læt ég hér staðar numið og von-
ast til þess að við fáum góðar og glöggar upp-
lýsingar frá vara-oddvitanum á Kjörvogi í Árnes-
hreppi. A. J.
15