Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1957, Page 30
INNLENDAR Sölusamband íslenzkra fiskframleiSenda var stofnaö í júlímánuði 1932, með frjálsum samtökum fiskframleiðenda hér á landi. — Sambandið er stofn- að til þess að reyna að ná eðlilegu verði á útfluttan fisk landsmanna að svo miklu leyti, sem kaupgeta í neyzlulöndum leyfir. Skrifstofa Sölusambandsins er í Hafnarhúsinu Símnefni: Fisksölunefndin. Símar 1480 (7 línur). Búnaðarbanki íslands Austurstræti 5 — Reykjavík. Sími 81200 — Útibú á Akureyri. Bankinn er sjálfstæð stofnun unðir sérstakri stjórn, og er eign ríkisins. * Trygging fyrir innstæðu er ábyrgð ríkisins, auk eigna bankans sjálfs. Fylgist með efnahagsmálunum. Leslð FJÁRMÁLATÍÐINDI Greinar um: Landbúnað, Útgerð, Iðnað, Verzlun, Samgöngur, Byggingar, Atvinnumál, Verðlag, Fjármál. Aðeins 25 kr. á ári. LANDSBANKI ÍSLANDS 1/12. Vélbáturinn Skúli fógeti, RE 316, sökk vestur af Akranesi, en fyrir einstakt snarræði skipshafnar og skip- stjóra Auðbjargar frá Reykjavík tókst að bjarga áhöfninni, sem voru þrír menn. — Námskeið í meðferð og verk- un fisks haldið í Reykjavík, og er þetta níunda námskeiðið, sem haldið er á vegum sjávarútvegsmclaráðuneytisins. Um fjörutíu manns sóttu námskeiðið. — Togarinn Venus, sem legið hefur við festar í Hafnarfirði, slitnaði upp af legunni og rak á land í krika norðan hafnargarðsins, mun hann vera ger- ónýtur. • 5/12. Akranesbáturinn v.b. Keilir fékk um 700 tunnur síldar í netin, en á leið til lands munaði minnstu að báturinn færist, og varð að ryðja nokkru af aflanum út. Ekki er vitað til að nokkur bátur fyrr eða síðar hafi fengið þvílíkan afla í reknet. • 6/12. Mjög góður síldarafli hefur verið í Grindavikursjó undanfarið, og á öllum helztu vertiðarstöðunum á Suðurnesjum var unnið stanzlaust að söltun og frystingu. • 8/12. Freðfiskframleiðslan fyrstu 10 mánuði ársins reyndist vera 45.263 smálestir. Auk þess voru frystar um 1135 smálestir af hrognum og nokkuð af humar og rækjum. • 10/12. Stærsta skip flotans, Hamra- fell, væntanlegt til Reykjavíkur. Skip- ið flytur um 15.000 lestir af benzíni og gasolíu frá Svartahafshöfnum. — Raunverulegt verðmæti skipaflotans hefur aukizt um 350 hundraði síðast- liðinn áratug. • 15/12. Frá áramótum til nóvember- Ioka var heildarfiskaflinn á öllu land- inu 428.491 smálestir, þar af síld 96.167 smálestir, en á sama tíma í fyrra var heildaraflinn 391.732 smálestir. • 18/12. Búið er að selja mótorskipið Eldborg, sem ýmist hefur verið síld- veiðiskip eða flóabátur í förum milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness, til Noregs, en þaðan var skipið keypt fyrir 24 árum. • 27/12. Á þessu ári hafa íslenzkir togarar farið alls 96 söluferðir til Bretlands, Vestur-Þýzkalands og Aust- ur-Þýzkalands, og hefur ísfisksala tog- aranna alls numið rúmlega 36,5 millj. króna. • 3/1. Á þriðja hundrað bátar á ver- tíð frá Vestmannaeyjum og Faxaflóa- stöðvum. Hefst vetrarvertíð nú með allra fyrsta móti. — Togarinn Goða- nes strandar við Færeyjar. Skipstjór- inn á togaranum í þessari ferð hans, Pftur Hafsteinn Sigurðsson, drukkn- aði. • 5/1. Báturinn Sæborg sigldi á liafn- argarðinn í Ifeflavík og stórskemmd- ist. Báturinn, sem var að koma úr róðri, ætlaði að beygja inn í höfnina, en náði ekki beygjunni og lenti á hafnargarðinum. • 8/1. Togarinn ísólfur frá Seyðis- fifrði „brýzt út“ úr höfn í Skálafirði í Færeyjum, en Fiskimannafélagið þar lét leggja hald á skipsskjölin vegna skuldar útgerðarinnar á Seyðisfirði. • 10/1. Togarinn Akureyi seldi í Hull í Englandi 3.349 kitt fyrir 18.761 pund eða 844.245 kr. íslenzkar. Er þetta met- sala í Englandi síðan í stríðinu. — Það slys vildi til á vélbátnum Maí frá Vestmannaeyjum, að 30 ára gamall sjó- maður, Halldór Ágústsson, féll fyrir borð og drukknaði. — Vélbáturinn Hagbarður frá Húsavík gerði í vetur ýtarlega og merka tilraun með þorsk- veiðar fyrir Norðausturlandi. — Á þessari vertíð verða í fyrsta sinn not- aðar nýjar vélar við fiskverkun. Eru það þýzkar fiskflökunarvélar, sem gef- ist hafa mjög vel, og sem líklegt þykir að eigi eftir að gefast vel hér á landi. 30

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.