Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 2
ORN STEINSSON:
Vúingur 25 ára
I júnímánuði sl. voru 25 ár
liðin frá því að þetta blað hóf
göngu sína.
Þótt nokkuð sé umliðið frá af-
mælinu er ekki úr vegi að minn-
ast þess með nokkrum orðum,
áður en árið kveður.
Guðmund. H. Oddsson, formaður
ritnefndar.
Útkoma Víkings í júnímánuði
árið 1939 er tvímælalaust einn
merkasti atburður í félagsmála-
sögu sjómannastéttarinnar og er
glöggt dæmi um dugnað og á-
ræðni þeirra manna, sem þá
héldu um stjórnvöl félagsmál-
anna.
Enginn þarf að efast um að
þurft hefur samstililt átak og
einlægan vilja til að sameina
þau mörgu félagsbrot er standa
að útgáfu blaðsins.
Og þegar litið er yfir farinn
veg þau 25 ár, sem blaðið hefur
komið út, má segja að vel hafi
tekizt og það framar öllum von-
um.
f aldarfjórðung hefur Víking-
ur haldið fast á málstað sjó-
manna og margt hefur birtzt í
blaðinu, sem ekki fengi inni í
öðrum blöðum.
Hinn rauði þráður í blað-
stjórninni alla tíma hefur verið
að halda ritinu utan við pólitízk
áhrif og taka á málum með
hagsmuni og velferð sjómanna-
stéttarinnar fyrir augum án til-
lits til skoðana einstakra stjórn-
málaflokka.
Á tímamótum sem þessum
minnumst við þeirra eljumanna
með þakklæti er hrintu blaðinu
af stað og unnu ötullega án
nokkurs endurgjalds að útvegun
lestrarefnis í blaðið og útbreiðslu
þess um landið.
Hinn upphaflegi hópur þynn-
ist nú óðum fyrir tímans tönn,
og fáir, allt of fáir koma í stað-
inn til að bera merkið fram.
Viðfangsefnin eru þó óþrjót-
andi og þörfin fyrir sjómanna-
blaðið engu minni en var fyrir
25 árum. Nauðsyn er að halda
vöku sinni og samstilla krafta
til vænlegs árangurs.
Ég hvet yngri menn í sjó-
Örn Steinsson, ritstjóri.
mannastétt til að gefa blaðinu
meiri gaum, þjappa sér sam-
an um málgagn sitt, senda því
greinar um áhugamál sín og út-
breiða blaðið.
f ársskýrslu Vélstjórafélags
íslands árið 1939 birtist hvatn-
ing til vélstjóra um að standa
fast saman að útgáfu Víkings.
í þeim fáu línum kemur fram
svo einlægur samstarfsvilji og
þekking á málefnum sjómanna,
Guðmu. Jensson, ritstjóri
og ábyrgðarmaður.
að mjög til fyrirmyndar er.
En það voru ekki einungis
fulltrúar vélstjóranna, sem þann-
ig sýndu hug sinn í verki, held-
ur var þetta sameiginlegt ein-
kenni allra þeirra tíma forystu-
manna sjómannasamtakanna.
Þessi hvatningarorð vil ég nú
mega á 25 ára afmæli Víkings,
gera að mínum. En þar segir:
____________ • __
„Útgáfa þessa blaðs er ný til-
raun til sameiningar þeirra
krafta, sem sjómannastéttinræð-
ur yfir á þessu sviði. Allir kann-
ast við orðtakið: „Guð hjálpar
þeim, sem hjálpar sér sjálfur,"
VÍKINGUR
216