Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 3
og flestir munu trúa á sannleiks- gildi þess. En sjómennirnir sem heild hafa enn ekki gert sér grein fyrir því, að samvinna er stærsta menningarmál nútímans. Þeir hafa hingað til að mestu látið reka á reiðanum um svo mörg hagsmuna- og menningarmál sín, en ekki borið hönd fyrir höfuð sér, ekki reynt að hjálpa sér sjálfir. Þess vegna hafa formæl- endur þeirra í blöðum og bók- um, á þingum og mannfundum,. orðið færri en skyldi. Hversu ofarlega er það ekki í almenn- ingsálitinu, að sjómennirnir — „já, þeir eru nú bara sjómenn," og svo aka menn sér og yppta öxlum. Næstum því eins og setningin hafi framkallað ein- hverja andlega óværð. En hér er tregðan og vanans haft að verki. Sjómannastéttina vantar ein- hvern Eggert Ólafsson, einhvern Torfa Bjarnason til þess að sanna þeim, að þeir eru í einu og öllu eins góðir borgarar og þeir, sem meira láta á sér bera. Þeirri lítilsvirðingu,, sem því hefur fylgt, að vera „bara sjó- maður,“ þarf að sópa burt úr almenningsálitinu. Það þarf að hefja álit sjómannsins í þjóðfé- laginu á það stig, sem honum er samboðið. Það menntunarleysis- og siðleysisorð, sem annarra þjóða sjómönnum fylgir, á sér engan stað um sjómennina ís- lenzku. Þeir standa þar áreiðan- lega skör framar. En sjómenn- irnir verða að hjálpa sér sjálfir í þessu efni sem öðrum. Þeir verða með svörtu og hvítu að sanna, að þeir séu ekki neinir eftirbátar, og þurfi engir tagl- hnýtingar að vera annarra stétta í menningarlegum skilningi. Blöðin eru hið virkasta hjálp- artæki,. sem hægt er að beita í hagsmuna- og menningarbarátt- unni, enda telja allar stéttir sér hag í því, að halda úti blöðum eins stórum og mörgum og efna- hagur frekast leyfir. Farmanna- og fiskimanna- samband íslands hóf tilraun í þessa átt árið sem leið með út- VÍKINGUR gáfu Víkings. Það byrjaði með tvær hendur tómar. Trú for- göngumannanna á getu og sam- takavilja sjómannanna, og svo áhuginn fyrir því, að vinna þeim gagn, var eina veganestið, sem lagt var upp með. Mér er kunnugt um, að þeir hafa á engan hátt orðiðfyrirvon- brigðum. Sönnun er þegar feng- in fyrir því,, að verkefni er ærið nóg fyrir blaðið. Á rúmu hálfu ári er komin í gang allmikil starfsemi í kring um það. Því hefur verið vel tekið. Yfirleitt ekki annað að því fundið en að það væri of lítið. Það þyrfti að skrifa miklu meira og ákveðn- ara um áhugamál sjómanna. — Þetta er forgöngumönnum einn- ig Ijóst. En „mjó'r er mikils vís- ir.“ — Blaðið hefur á þessum stutta tíma fengið fleiri áskrif- endur en gert var ráð fyrir, Auglýsendur hafa og tekið því mæta vel og með því sýnt hug sinn til sjómannastéttarinnar, og nokkrir mætir menn í öðrum stéttum hafa sent því greinar. En við megum ekki gera okkur ánægða með lítið. Blaðið þarf að stækka. Það þarf að auka það og vanda á allan hátt. Það þarf að verða hrópandans rödd, ekki í eyðimörkinni, heldur af hafinu, rödd, sem allir landsmenn vilja hlusta á og veita athygli.“ Við lestur þessara orða er rétt að spyrja: „höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?“ Vissulega hefur margt áunn- ist og stór mál þokast í höfn. Blaðið stendur með blóma í 6000 mánaðarlegum eintökum, en betur má ef duga skal. Meiri fórnfýsi, meiri góð- vilja og dugnað vantar frá mönnum í samtökum okkar og umfram allt fleiri menn til að skrifa í blaðið. Á þessu aldarfjórðungs afmæli þakka ég öllum, nefni ekki nöfn, bæði lífs og liðnum, sem lagt hafa sig fram um að styðja blaðið. Auglýsendum allra tíma færi ég þakklæti fyrir viðskipti og velvilja, en án þeirra yrði illmögulegt að gefa út ritið. Kveðju og þakkir sendi ég öll- um umboðsmönnum Víkingsins víðsvegar um landið. Setjurum, prenturum og bók- bandsfólki ísafoldarprentsmiðju, sem annazt hafa búning blaðsins þennan aldarfjórðung,, eru færð- ar þakkir fyrir störf þess og gott samstarf. Og ekki hvað sízt þakka ég hinum mörgu góðu lesendum blaðsins, sem sýnt hafa okkur mikla þolinmæði í blíðu og stríðu. Vona ég að okkur megi á- fram auðnast að halda blaðinu úti um mörg ókomin ár, efla það að vöxtum og efni — sjómanna- stéttinni til gagns og sóma. Gleðileg jól! * „VitiS þér nokkuö um heimspeki," sjmröi prófessorinn ferjumann, sem var að flytja hann yfir fljót. „Nei, liana hefi ég aldrei heyrt nefnda,“ svaraði ferjmnaðurinn. Þá hafið þér glatað einum fjóröa hluta ævinnar. — En vitið þér nokkuS í guðfræði? „Ósköp lítið fram yfir faðirvorið." „Þá liafið þér glatað hálfri ævinni,“ sagði prófessorinn. — Vitið þér nokk- uð um stjömufræði? „Hreint ekkert.“ „Þá hafið þér glataö þrem fjórðu af ævi yðar.“ — Vitið þér nokkuö um ....... í þessu steitti báturinn á kletti og hvolfdi. „Kunniö þér nokkuð að synda, pró- fessor góður,“ spurði ferjumaðurinn, þar sem þeir héngu á kili fleytunnar. „Nei,“ svaraði prófessorinn dræmt. „Þá haíið þér glatað lífinu, — nema að ég syndi með yður í land. — Og það gerði hann. -x Forstjórinn hlýtur að vera oröinn kalkaður. Þarna hefir hann setið með heyrnartólið í hendinni í heilar 20 mínútur án þess að segja eitt orö. Þetta er ekki kölkun, — það er konan hans. 217
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.