Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Qupperneq 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Qupperneq 5
þeim, sem nefnd hafa verið hér að framan. — Ég hefi drepið á þetta hér af því að þetta eru allt greinar á þeim meiði, sem Sjó- mannablaðið Víkingur hefir hlúð að með góðum árangri. — Sýnir þetta að sjómannasamtökin geta með samstilltum átökum — þeg- ar við á, lyft Grettistökum á hvaða sviði sem er, „vilji allt sem þarf.“ Fólk er yfirleitt gleymið á hlutina, og er því ekki úr vegi að minna á að rétt eftir að Vík- ingur hóf göngu sína, hófust þeir atburðir, sem miðaldra ísl. sjó- mönnum eru ekki úr minni liðn- ir, þ.e. ófriðurinn á hafinu. Hafi íslenzka þjóðin ekki vitað það áð- ur, þá reyndi hún það næstu ár- in, hve störf sjómanna, fámenn- ustu stéttarinnár í landinu, eru henni mikils virði. Þá var alvara á ferðum, og oft svart í álinn. Þeir alvörutímar virðast nú með öllu gleymdir. Yfirborðsmennska og óhóf er farið að verða nálega taumlaust hér á ýmsum sviðum, svo að vel má benda á stað- reyndir nýliðinna tíma, sem auð- veldlega geta endui’tekið sig í einni eða annarri mynd. Það er engin svartsýni eða afturhald í því að mæla hófsemi. Viðeigandi hófsemi er dyggð, en ærsl og ó- hóf bjóða óláni heim. Sjómenn mættu minnast þess, að Víkingur studdi málstað þeirra á stríðstímunum eftir föngum. Hann vakti alþjóðax'at- hygli á því, sem gerðist á haf- inu, og er hann nokkuð gott heimildarrit um störf sjómanna- stéttarinnar þau árin, svo og yf- irleitt síðan hann fór að koma út. Um margt fleira hefir verið rætt í dálkum Víkingsins síðast- liðin tuttugu og fimm ár, en of langt mál yrði að rifja það upp. Af framansögðu er auðsættað ganga Víkingsins meðal sjó- manna og viðar, hefir ekki ver- ið til einskis. En sjómannastétt- inni ætti að vera það metnaðai’- mál, að útgerð hans verði fram- vegis með meiri glæsibrag en hingað til. — Hlutverk hans er margþætt og á alla þættina VÍKINGUR reynir nokkuð. Flestum er að vísu mest í mun sá málflutning- ur, sem snýst um kaupki-öfur og hafa ekki áhuga fyrir öðru. En hér er miklu fleira í efni. Við því mátti alltaf búast að sjó- menn yrðu þungir á bárunni ef til ósættis kæmi um hlutaskipt- in, en meiri hyggindi og reisn gætu, að mínum dómi, verið í málflutningi þeirra á stundum. Sannleikurinn er sá, að staða og áhrif einstaklinga og stétta í þjóðfélaginu er ekki í öllu komin undir hlutarstærð, heldur hinu, hvei’nig honum er varið. Fiski- mennirnir ísl. eru þeir beztu í heimi, að sögn fróðra manna, og verðmætin, sem þeir flytja að landi verða eftir nokkra vinnslu %o hlutar af útflutningsverð- mætum landsmaixna, auk þess fiskifangs, sem landsfólkið neyt- ir sjálft, sem er að líkindum þriðja eða fjói’ða hver máltíð. En áhi'if sjómannanna um ráð- stöfun þessara verðmæta er sennilega í öfugu hlutfalli við magnið, og vafasamt hvort slík verkaskipting sé ákjósanleg. Það er vitað að sjómannastétt- in er di'eifð og sundruð 1 skoð- unum um landsmál, sem svo eru kölluð, þess vegna fá tillögur þeirra oftast lítinn hiljómgrunn á hærri stöðum, aðhald atkvæð- anna fylgir sjaldnast með. Þetta vita líka þeir góðu menn þar uppi. En sjómannastéttin þarf að gera sér ljóst að þegar ryðja þarf úr vegi úi’eltum venjum og skapa nýjar og betri, þá fellur eikin sjaldnast við fyrsta högg, það þarf mörg til. Eflum Víking til þess að fylgja fram málefn- um sjómaxxnastéttarinnar um aukna menningu og betri sam- viixnu. Með samvinnu og góðum vilja má flytja fjöll. Hallgr. J. * — Það er dýrt að auglýsa. — Hvað hefur þú að auglýsa? — Ekkert, en konan mín les auglýs- ingarnar. RADIO- bilanabókin í samrœmi við nvitíma kröfur um radiotækjabúnað í skipum, fjölbreyni Jxún-a og notagildi, ])<á eru einnig gerðar kröfur um að þau séu ætíð í sem beztu lagi. Það er því mjög áríð- andi að hægt sé að lialda tækjunum í þessu ástandi, þar sem þau eru í notk- un, — þ.e.a.s. úti á sjó. Þar sem loft- skeytamenn eru um borð, þá fcllur ])að víðast livar í þeirra verkahring að inna af liendi þessa þjónustu, enda miðast menntun og skólaganga verð- andi loftskeytamanna ekki aðeins að ])ví, að þeir starfræki sendi og mót- tökutæki skipsins, heldur einnig að þeir verði liæfir til þess að annast við- hald og viðgerðir á þessum og öðrum electroniskum tækjum skipsins - bæði á stjómpalli og í loftskeytaklefa. Og enn þarf að auka þessa fræðslu, því að nútíma kröfur beinast í þá átt. — Danska loftskeytamannafélagið (RADIOTELEGRAFISTFOR- ENINGEN AF 1917) hefur verið vel á verði og séð nauðsyn þess að með- limir þess séu ætíð sem bezt undir það búnir að leysa störf sín vel af hendi, m.a. með fræðslu um nýjungar í fag- inu, tæknileg atriði útskýrð og spurn- ingum svarað í mánaðarriti félagsins, RADIOTELEGRAFEN. Einnig hefur félagið staðið fyrir stuttum námskeið- um um verklega þjálfun í viðhaldi og viðgerðum radiotækja og upprifjun á námsefnum fyrir meðlimi sína. í liaust gaf félagið út bók, sem ber nafnið „METODISK FEJLFINDING I MODTAGERE OG SENDERE." Eins og nafnið ber með mér, þá fjall- ar hún um kerfisbundna leit að bilun- um í sendum og viðtækjum, auk þess sem fjallað er um liyggingu og við- hald slíkra tækja og hagnýta notkun nlgengustu mælitækja. Bókin er rúmlega 100 lesmálssíður auk 68 blaðsíðna með teikningum. Húii verður til sýnis og sölu í afgreiðslu YÍKINGSINS, en einnig má panta hana í símum 16201 og 23198. Þá má einnig geta þess, að danska loftskeytamannafélagið er um þessar mundir að gofa út bréfaskóla um radartæki. í bréfaskólanum eru 20 bréf, sem alls eru yfir 300 bls., og á þessu bréfa-námskeiði að ljúka með 2ja vvikna verklegri kennslu í Kaup- mannahöfn. Kr. Júl. 219
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.