Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 9
F
j
*
Skúmsungi og skúmsegg einnig á ljós-
mynd eftir Penney. Hreiður skúmsins
er aðeins dæld milli smá steina. Ung-
inn er dökkgrár og því erfitt að koma
auga á hann úr fjarlægð.
gjörðu það að verkum, að
skúmaveiðar í handnet urðu
uppáhalds íþrótt á Suðurskauts-
landinu. Sjálfur handsamaði ég
mörg hundruð fugla á þennan
hátt.
Merkingar á skúmum sýndu,
að ungskúmar kunnu að dreifast
til ýmissa sumarstöðva frá ári
til árs. En þegar þeir fara að
auka kyn sitt um fimm ára
gamlir að því er virðist, hafa
þeir tilhneygingu til að halda
aftur til fæðingarstöðva sinna.
Þegar ungskúmar hafa gert sér
hreiður á ákveðnum stað, er full-
víst talið, að þeir komi þangað
og verpi ár eftir ár. — Af 277
skúmum, sem merktir voru
1956-1957 í nágrenni við Wilke-
stöðina, kom meira en helming-
ur þeirra þangað aftur næsta ár.
Þótt skúmshjón haldi sitt í hvora
áttina, þegar vetur gengur í
garð, þá hittast þau venjulega
aftur til að auka kyn sitt. —
Hjónaband Suðurskautsskúma
varir ævilangt, að því er virðist,
ef annar aðilinn deyr, tekur sá,
sem eftir lifir sér annan maka.
Af 19 hjónum, sem merkt voru
1956—1957 og sérstaklega auð-
kennd sem hjón, komu 14 aftur
til Wilkesstöðvarinnar og tóku
saman á ný næsta ár, 4 hjón
komu alls ekki, um ein hjónanna
er það að segja, að annar fugl-
inn kom með nýjum maka, hinn
fyrri hefur sennilega ekki lifað
veturinn af. Þetta sýnir mikla
tryggð í ríki dýranna.
VÍKINGUR
Til þess að kanna ratvísi
Suðurskautsskúmanna tók ég
annan fuglinn af tveim, sem áttu
hreiður saman, flutti ég hann 51
mílu burt frá hreiðrinu og
sleppti honum lausum á 4.200
feta hásléttu á hinu snævi þakta
meginlandi. Fuglinn var kominn
í hreiður sitt eftir 48 klukku-
tíma. Suðurskautssumarið 1962
starfaði Robert Wood lífeðlis-
fræðingur við Crozierhöfða á
Rosseyju nálægt McMurodsundi.
Þá gjörði hann tilraun, sem
leiddi í ljós enn eftirtektarverð-
ari ratvísi skúma. Hann tóksex
skúma úr jafnmörgum hreiðrum.
Þeir voru fluttir í flugvél til
Suðurskautsins um 825 mílna
veg og sleppt lausum í 9200 feta
hæð yfir sjávarmál. Vegna þess
hversu hæðin var mikil yfir
sjávarmál, virtust fuglarnir eiga
erfitt með að ná sér upp fráyf-
irborði jarðar. En innan 10 daga
var einn fuglinn kominn í
hreiður sitt hjá Crozierhöfða.
Það einstæða við þetta afrek
er, að engin kennileiti voru mörg
hundruð mílna leið frá staðnum,
sem fuglinum var sleppt á, og á
Suðurskautinu eru allar áttir í
norður. Þetta var í fyrsta sinn
í sögunni, sem ratvísi fugla var
prófuð á heimsskauti.
Með ýmsum aðferðum tókst
Skúmur steypir sér niður til að hremma
unga Adélie-mörgæsar. Ljósmyndina tók
Richard L. Penuey frá Johns Hopkins-
háskóla. Heilbrigður ungi getur varizt
einum skúm.
okkur að gera okkur nokkurn-
veginn grein fyrir tölu Suður-
skautsskúmanna og Adéle-mör-
gæsanna á aðseturshæfum stöð-
um Suðurskautslandsins. — Á
Vindmillueyja-svæðinu virtist
heildartala skúma vera 2300 og
tala mörgæsa við varp 155.000
Á Hallethöfða, þar sem Banda-
ríkin og Nýja-Sjáland höfðu sett
upp sameiginlegar stöðvar, virt-
ist tala mörgæsa á 22 hektara
svæði vera 215.000, og um það
bil einn skúmur á móti 360 full-
orðnum mörgæsum.
Skúmar, sem merktir
hafa verið frá því á ár-
inu 1957, hafa fáir verið
endurheimtir á öðrum
svæðum en þeim, sem
þeir voru merktir á. Þetta
bendir til þess, að fugl-
arnir haldi aftur til sömu
varpstöðva ár eftir ár.
Tala fugla, sem merktir
hafa verið í Wilkesstöð-
inni, en endurheimtir
annarsstaðar, er skráð £
ferhyrningi. Tala merktra
fugla í Hallet er sýnd í
þríhyrningi og Litlu-
Ameríku í hring. Talan í
reitnum er fuglafjöldinn
sem endurheimtur hefur
verið á staðnum; dæmi:
4 skúmar merktir í Wil-
kesstöðinni hafa fundizt
við McMurdo. Nöfn hinna
þriggja merkingastöðva
eru litprentuð.
223